Ný tíðindi - 10.03.1852, Side 1

Ný tíðindi - 10.03.1852, Side 1
y. bi. 1853. N Ý TÍ ÐINDI. 'IO. d. miirzinánaðar Til áskrifenda cíNýrva Tíðinda”. Undir eins og jeg hjer ineð fiakka mínum heiðruðu áskrifendum nNýrra Tíðinda* fyrir öll þeirra góðu og alúðlegu brjef til mín núna nieð póstunum, leyfi jeg mjer einnig að láta í ljósi ánægju mína yfir því, að „Tiðindin“ hafa enn ekki komið neinstaðar þar, sem þeim hefur ekki verið vel tekið. Jeg dylst þess ekki, að þegar jeg byrjaði að gefa út tímarit þetta, þá bjóst jeg ekki við, að það myndi verða svo heppið, að vinna sjermikla liylli meðal landsmanna, þar sem jeg var slikum starfa öldungis óvanur, og frábitinn öllum stjórnfræðismálum (Politik). jrað geng- ur því nærri þ,ví yfir mig, að Tiðindin skuli nú þegar (á 3 mánuðum) vera búin að fá rúma 400 áskrifendur, og það flest alla sunn- anfjalls. jjessar góðu viðtökur skulu því vera mjer hvöt, til þess að vanda Tíðindin sem jeg hef bezt vit á, og laga þau sem mest eptir bendingum skynsamra og velviljaðra manna, sem nú þegar hafa ritað mjer um það. Jetta er mjer því hægra, sem þeir hafa flest- ir mælzt til, að jeg hefði „Tíðindin* í líku sniði, og „Klausturpósturinna var, og það var einmitt ætlan mín frá uppliafi, jafn vel þó að það sje, ef til vill, ekki nógu Ijóst orðað í 1. bl. En það má enginn ætla, að jeg geti gefið annað eins tímarit út, og hann var, og það því síður, sem hinir vöiiu blaðamenn vorir hafa enn ekki þótt geta það. Jað sem menn í brjefum til mín hafa tekið fram eins og galla á Tíðindunum, skal jeg lijer eptir forðast sem mest; því jeg þykist sjá, að þeir hafi rjett að mæla. — 5að sem sumir eru liræddir um, að loforð mitt, að taka aðsendar Titgjörðir í Tiðindin, muni ekki verða sem bezt haldið hjá mjer — heldur en hinum blaðamönnunum sínum —, þá get jeg ekkert um það sagt enn, nema það, að jeg heftek- iö allt, sem mjer hefur borizt hingað til — og það er flest aðsendar greinir, sem eru í þeim blöðum, sem enn eru koinin út. — En auðvitað er það, að ef mikið berst að, þá verður eitthvað að verða á htikanum, þar sem rúmið er svo lítið, og þykist jeg þó nota það svo vel, sem leturtegundir prentsmiðjunnar leyfa. — Hingað til hafa mjer ekki verið sendar neinar aðfinnsluritgjörðir um neina grein í Tíðindunum, en jeg hef heyrt getið uin eina þess konar ritgjörð, sem sje bráð- uin væntanleg, og þar eð jeg álit það efni mikils varðandi (þ. e. „Um undirst. hvers lanils velmeg.*), þá vildi jeg óska, að hennar yrði ekki langt að bíða. Jeg óska þessa því heldur, sem jeg hef komizt á snoðir uin, að höf. hennar er fœr um efnið, rjettsýnn og velviljaður, og jeg er því sannfærður um, að það hljóti að vera rangherint, að aðfinnslu- Titgjörðin sje þess ekki verð, að vera lesin; því til þess yrði hún, «ð minrii ætlun, að vera endileysa ein. En þó svo væri, að ritgjörð- in hefði einhverja töluverða galla — eins og flest mannaverk hafa — getur hún þó verið mikils virði; því hlutdrængislausar aðfinnslur og útásetningar, sem gjörðar eru í bezta til- gangi, og ekki til þess, að meiða neinn, eða gjöra gott málefni tortryggilegt með hæðileg- um orðum og hártogunum, eru ætíð mikils met- andi, og þakkarverðar af hverjum manni. jþá fjekk jeg og brjef frá „sveitunum á íslandi“, sem mjer þykir einkar vænt um; því jeg ætla, að það sje ágætlega vel samið í anila fjölmargra landsmanna, svo höf. þess kann jeg miklar þakkir fyrir það. En auk þess, að þar er nokkuö í af gáleysi rang- hermt úr „Tíðindunum“, sem höf. gjörir svo vel og gæta að seinna, þá er og þar eitt at- riði, sein jeg leyfi mjer að benda á. — jþetta brjef er, eins og öll hin, sent jeg hef fengið,

x

Ný tíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný tíðindi
https://timarit.is/publication/77

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.