Ingólfur - 09.06.1854, Blaðsíða 1

Ingólfur - 09.06.1854, Blaðsíða 1
£ I § 'V !!? •v $ 3uflólfui\ 2 9. d. júnim. i§54. Kostnatarmaður o® útgefari Svb. H allgrimsson. t I -I »<- Bænarskrá Húnvetuinffa. Oss hjer undirskrifuðum jarðeigenduin og búendum innan Húnavatnssýslu í Islandi, jiyk- ir mjög undarlegt, að vjer skyldum ekki geta att neinn fulltrúa fyrir þetta kjördæmi á al- {)ingi {)ví, sein í surnar var haldið í Reykja- vík, {iar sem |)ó bæði var til fulltrúi og vara- fulltrúi. Oss er aft sönnu kunnugt: að amt- maður J. P. Havstein bannaði fulltrúa vorum lækni J. Skaptasyni að sitja á alþingi, vegna embættisstöðu þessa manns; og getum vjer ekki annað enn viðurkennt, að þessi hái em- bættismaður hafi hjer í gjört, livað lög og skylda bauð honum, af því engan annan mann, prófaðan í læknisfræði, var að fá í hans stað um þingtímann, sem vjer gætum náð til, oss til hjálpar, í uppáfallandi hættulegum sjúk- dóms tilfellum. En það hefur vakið hjá oss megna óánægju, að varaþingmaður vor, um- boðsmaður R. M. Ólsen, skyldi ekki geta náð þingsetu, þó hann eptir löglegri innköllun væri kominn til Reykjavíkur í byrjun þings- ins, lieldur var honum hrundið frá þingsetu nieð 11 atkvæðum móti tíu af þeirri ástæðu, að hann væri ekki rjettkosinn varaþingmaður, eptir alþingistilskipuninni, jafnvel þó sjálfur konúngsfulltrúinn, allir liinir konungkjörmi, og flestir — ef ekki allir — lögfróðir menn á þinginu, væru samdóma í þvi, að þessi þing- maður væri rjettkosinn; og getum vjer ekki efast um, að svo muni vera. eins og hjer með fylgjandi staðfest afskript af sýslunnar kjör- bók vottar, af hverri sjá iná: að kjörstjóri vor hefur fullkomlega hagað sjer eptir orð- um og anda alþingistilskipunarinnar, og að hann gat ekki hagað kosningunni rjettar á annan hátt, og sjeð fyrir þvi, að kjördæmið yrði ekki varaþingmannslaust. Vissir menn á alþingi eru því auðsjáanlega sök í því, að varaþingmaðurinn náði ekki þingsetu, og fell- ur oss þetta þvi þýngra, sem vjer geturn ekki annað, enn verið sannfærðir ttm, að þeir al- þingismenn, sem með atkvæðum sínum hrundu vara{)ingmanni voruin frá þingsetu, hafi gjört. það móti betri vitund, af þykkjufullum hug- móð til amtmanns Ilavsteins, fyrir það, að hami bægði J. Skaptasyni frá þingsetu; hefur þingmaðurinn fyrir Skaptafellssýslu, Jón Guð- mundsson, sjálfur á prenti látið á sjer heyra þessa meiningu um þingið, og því getum vjer ekki efast mn, að þessu muni þannig háttað vera; þar seni það þó var auðsjáanleg skylda þingmannanna, að láta ekki kala til nokkurs einstaks inanns leiða sig í atkvæðagreiðslu, frá rjettum skilningi þess lagaboðs, sem þeim var beinlinis regla i þessu máli, og ekki varð skilið rjett nema á einn veg. Jetta þykir oss öldungis óþolandi af þessum þinginönn- um, bæði af því, að þeir með þessum hætti sviptu oss og aðra landsmenn duglegum þing- manni, að vorri meiningu ranglega og ástæðu- laust, og svo líka af því, að mjög líklegt er, — ef þetta er óátalið, að lík tilfelli, og — ef til vill — langtum meira áríðandi málefni, geti fyrirkomið síðar, hverjum vissir menu gætu uppá líkan hátt ráðið til lykta, til tjóns og skaða fyrir land og lýð. Af þessum ástæð- um finnst oss óþolandi að gjalda vora hlut- deild af kostnaði þeim, sem af þessu alþingi væntanlega leiðir, og álítum öldungis rjett, að hann sje aptur í staðinn beinlínis lagður á þá ellefu alþingismenn, sem með atkvæðum sín- um hrundu varaþingmanni vorum frá þingsetu. En vjer vonum, að vor allramildasti konung-

x

Ingólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ingólfur
https://timarit.is/publication/79

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.