Íslendingur - 10.05.1861, Page 6

Íslendingur - 10.05.1861, Page 6
30 spurningum þessum að því leyli, sem jeg get. Jeg hef nú borið mig saman við gamla menn bjer í sókninni um hafísinn og verkanir hans, og kemur það að mestu leyti saman við það, sem jeg hef sjálfur tekið eptir í þau 12 ár, sem jeg þegar hef verið hjer á Ströndunum; að öðru leyti skal jeg að eins skýra frá því um hafísinn og verkanir hans, sem jeg veit með vissu, en sleppa þá held- ur hinu, sem jeg er í nokkrum efa um. Jeg tek þá spurningarnar í röð, eptir því sem þ;r.r eru prentaðar. 1. Spurningu þessari get jeg ekki svarað með neinni vissu, en eptir því, sem gamla menn rekur hjer frekast minni til, þá mun mega fullyrða, að hafís haíi rekið hjer að landi 42 sinnum á þeim 60 árum, sem liðin eru af þessari öld, eða að hafis reki hjer inn að jöfnuði 7 ár af hverjum 10 árum, og síðan jeg kom hingað, vorið 1849, hefur hafís rekið hjer að landi í 10 árin, stundum meir, en stundum minna. 2. Áður en hafísrekið byrjar, er veðurátta hjer ætíð mjög óstöðug og umhleypingasöm; ýmist eru þá útsynn- ingsbleytur og blotar eða norðankafaldshríðir, en af hverri átt sem vindurinn er, stendur það sjaldan nema eitt dœg- ur í senn; slettir þá opt mjög íljótt í logn, en hvessir aptur eins fljótt af annari átt. 3. Hafísinn rekur jafnaðarlega fljótt hjer inn, með norðanstormum og miklum kafaldshríðum, en þó ber það stundum við, að straumar bera ísinn hjer að landi í logni, þó ekki haíi sjezt til hans áður, og hefur þetta tvisvar viljað til, síðan jeg kom hingað; annars er enginn efl á því, að straumar ráða ferð issins, og flýtahenni, en vind- ar alls ekki, því jeg hef opt sjeð isinn berast með all- miklum hraða móti vindi, og það þó stormur hafl verið, sem sýnast hefði mátt seinka ferð hans; eins er því varið, þegar ísinn fer, að þá eru það straumar, sem flýta ferð lians í burtu, og fer hann stundum svo fljótt í burtu, að ótrúlegt þykir; stundum berþað við, að þó ísinn sje orðinn samfrosta, og nái 4 til 5 vikur sjávar út frá Iandinu, og hver vík og fjörður fullur af ís, þá sprengja straumar ísinn hast- arlega allan í sundur, og hverfur svo ísinn með þvílíkum hraða, að eptir 1 eða mest 2 dœgur sjest ekki jaki, svo langt sem augað eygir; þetta skeður þá annaðhvort í logni og þoku, eða þá með sunnanblota; þegar hafísinn hverf- ur svona fljótt, segja gamlir menn hjer, að hann sökkvi allur, en reyndar eru það ekki annað en straumar, sem þannig ílýta ferð hans, enda hef jeg sjeð stóra liafísjaka berast hjer inn í Húnaflóa í logni, með þvílíkum hr'aða, sem þá kaupskip sigla í allgóðum byr. (Framh. síðar). 59 Stafni í Svartárdal um veturinn af fje Staðarmanna, og hundur þeirra ofan að Rugludal vestan Skínanda. f>að varð og um vorið, er rakað var af lirossum við Staðar- rjett, að graðhestur grár kom hneggjandi sunnan Lang- holt, ofan hjá Svarðarhól; var hann úr för Staðarmanna; gekk Halldór þá heim frá rjettinni, er hann sá hestinn, og lá í viku, en Ragnheiður barst betur af og harkaði af sjer. það er í sögnum, að eptirleitarmenn nokkrir, og þó eigi glögglega getið, iivort heldur va:ru Ilúnvetningar eður Skagíirðingar, fœru fram allt í Iijalhraun öndverða jólaföstu, og hafi þá heyrt kall eður ldjóð, og ef nokk- uð er satt í, hefðu þá einhverjir Staðarmanna orðið þeirra varir, og þá enn eigi verið allir látnir. Segja þó aðrir, að þeir Jón og Björn heyrðu það, er þeir riðu suður; en með öllu þrætti Björn fyrir það, er liann var um það spurður, og mjög efum vjer sann á því, þó að þeir lifðu þar nokkrir eigi allstutta hríð, og hyggðu í fyrstu að bíða mannbjarga með Jóni Austmann, er frá þeim hafði riðið og ætlað til byggða að komast, að því er síðar vitnaðist. t Nóttina milli hins 13. og 14. októbers f. á. andaðist konan Björg Ásbjarnardóttir áGarðsvík á Svalbarðs- strönd, rúmra 28 ára gömul, fœdd 29. september 1832, giptist 11. júní 1858. BJÖRG ÁSBJARNARDÓTTIR. 1. Liðinn var dagsbjarmi bafs undir heiðir, hátignin kyrrláta drottnaði þá, svifaði njóla um sólkerfa leiðir, sá að eins tindrandi stjörnulog blá; en skjótfœr sem elding — þá skýbólstra-hringur skelfandi þrumugný kastar sjer frá — leið þar fram dauðinn úr launsátri slingur lífsblóm af sníða og sigur að fá. 2. Hann skar við rœtur frá lífsmeiði ljósum litskreytta fjólu úr ástanna reit, blíðörtuð hneig þá, sú bar lof af drósum, Björg dóttir Ásbjörns og lífdögum sleit; hreinhjörtuð, siðgóð og hœglunduð var hún, hjónaband skrýddi með dyggðanna fjöld; viðkvæmni ástar og blíðlyndi barhún, bágindum þjakaðri liðsinnti öld. 3. Mótvindur lífsins þó haföldum háum hjerveru kastaði fram yfir sjó, glansaði stilling af brá-stjörnum bláum blíða og sálunnar inndæla ró; innileg hlutdeild í ektamanns kjörum, ástin á velsœmi, rjettlæti, dyggð, hennar var falin í hógværðar-svörum, hrœsninnar tilgerð hún mat viðurstyggð. 4. Ó, hvað þinn tími varð návista naumur, nipt gulls ástkæra, í deyjendra reit, ó, hvað fljótt líður frarn æfinnar straumur, óðar en varir því lífinu sleit; og inndælu blómin, sem eiga sjer rœtur í elskuðu hjarta og lífstunda ró, hann eins af skyndingu hrifin burt lætur, harmsöltum tárum og útrennsli bjó. 5. Sakna þín vinir og syrgja þig frændur, en sárþjáður ekkill hann tregar þó mest, liann var svo sviplega hrifinn og rændur því hnossinu, sem að hann unni þó bezt; hjartað slær dvnjandi hryggðar í barmi, því hjartað er brostið, sem unun því bjó, og svipti burt lífstunda svíðandi harmi, þá sorgmökkva-skýjum á geðshimin sló. 6. En lít þú til stjarnanna, líðandi bróðir! þær leiptra eins skært og þá hörmunga nótt,, þá numin var frá þjer um náheima-slóðir nátengda sálin af dauðlegum þrótt; þangað er liafin, sú hjarta þitt þráir, og hvarmstjörnum trúar þú sjer hennar ljós; hún lýsir þjer, uns hennar líking þú náir, og lif þitt er umbreytt í vegsemd og hrós. Jánas Jónsson. r.o 18. Fundin lik Staðarmanna. Um vorið, erferðir hófustum Iíjöl, fundu menn tjald- hrauk Staðarmanna. Tómás Jónsson hjet maður, er bjó að Flugumýri; sá hann fyrstur tjaldið, og kvaðst hafa lagt steina á jaðra þess utan, að hrækvikindi riíi þau|íð- ur, en œrinn óþefur þótti Tómási og lagsmönnuin iftms inn að líta í tjaldið; við það reið Tómás undan lest sinni norður að Reynistað og sagði tíðindin; var síðan haft eptir honum, að lík þeirra brœðra væru í tjaldinu og tveggja annara. Eyfirðingar fóru síðan um Iíjölinn; er sagt þeir fyndu tjaldið, og þóttust sjá, að áður væri fundið, en eptir þeim var haft, að eigi sæju þeir nema 2 líkin. Jón lijet maður Egilsson, Iiiugasonar, Sigurðarsonar prests á Auð- kúlu, er dauður fannst með Svínavatni, illa útleikinn og beinbrotinn (1657), Magnússonar prests á Auðkúlu, Ei- ríkssonar prests á Kúlu. Bjó Jón Egilsson á Reykjum á Reykjaströnd; hann kom úr fjárkaupum sunnan um þetta leyti; var hann klausturlandseti; höfðu þau Ragnheiður á Stað sent með Jóni Björn Illugason til kaupanna, er suð-

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/86

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.