Íslendingur - 30.09.1861, Síða 6

Íslendingur - 30.09.1861, Síða 6
86 borg (1848), þar er margir af þeim fjellu eptir drengi- lega vörn. J>á stóð upp maður frá »Sljesvík-Holtsetu«, cr barizt hafði móti Dönum, og mælti nokkur »hjartnæm« orð til þeirra, er við voru staddir. Af því, er þýzk blöð segja hjer um, má marka, eins og af öðru, hve rík hefnd- arfýsin og hatrið við Dani er meðal manna á þýzkalandi, Frá Póllandi. Sá kur, er vaknaði hjá Póllend- ingum í vor, hefur lengi við haldizt og stjórnarskráin nýja hugnaði þeim eigi svo, að um bœttist. Einatt hefur farið i úlfúð og aga í borgunum, en liðið hvervetna til taks að bœla niður ófriðinn. Nú er sagt, að lýðurinn sje far- inn að spekjast, og er það eignað hinum nýja landstjóra, Lambert hershöfðingja, sem fer að landsmönnum með vægð og stillingu; enda halda menn, að keisarinn muni láta meira af bendi rakna við þá, er fram iíða stundir. í brjefi hans til landstjórans stendur að niðurlagi: »Jeg ersannfœrður um, að Póllendingum, ef þeir gæta skyn- semdar, verður sú raunin á, að hœg og friðsöm nautn og lagfœring landslaganna leiðir þá til sjáifsforræðis í land- stjórninni. Safnaðu að þjer þeim mönnum, er vel hyggja, að það verði fyrir mjer upp borið, er þjóðinni er sönn þörf á. Kostaðu kapps um að spekja fólkið; jeg skal glaður því gleyma, er á hefur orðið, og gjalda líku líkt, ef Póllendingar tjá mjer traust og kærleika«. Austurrílti. Vjer lukum þar seinast máli um mis- klíðirnar við Ungverja, er keisarinn hafði tekið við ávarp- inu frá landsþingi þeirra. Höfuðatriðin í því voru, eins og vjer áður höfum á minnzt: fullur aðskilnaður frá Aust- urríki í stjórn og lagasetningum; lög Ungverjalands lúta að eins að sameiginlegum höfðingja fyrir bæði ríkin (Per- sonalunion), en eigi sameiginlegri stjórn (Realunion); lönd þau, er áður heyrðu til konungsríkisins, skulu að nýju tengd við það; valdaafsala Ferdinands keisara ólögmæt, af því Ungverjaland sje eigi nefnt í afsalsskjalinu. Ráð- gjöfum keisarans varð oerið langrœtt um andsvörin; en þar kom niður, að alls var synjað. það er helzt haft frammi í svarinu, að Ungverjar líti meir á lagastaf en lagavenju, á hag Ungverjalands en rjett sambandslandanna og helgi keisaradœmisins. J>að þykir sjálfsagður hlutur, að gjöld til alríkisþarfa sjeu rcedd á alríkisþingi, og eigi síður útboðalög, því herútboð líti eigi til varnar einstaks lands, heldur til viðhalds og frelsis allra þeirra landa, er lykjast í keisaraveldinu. Sameining Sjöborgaríkis við Ungverjaland leyfist eigi, því hvorki hafi hún gild lög við að styðjast, og svo sjái þeir af landsbúum hlut sinn i hættu, er eigi mæla á ungverska tungu. J>ar rœðir um Króataland og Slavóníu, þá verði Ungverjar að koma sjer saman við landsþingi þeirra, og ef samþykktir verða, þá að senda þær keisaranum til staðfestingar. Og öllu frem- ur verði þingið í Pestharborg að hyggja á og liefja slíkar lagasetningar, er miði að því, að vernda og tryggja þjóð- ernisrjettindi þeirra þjóða á Ungverjalandi, er að máli og öðru greinnst frá Magýörum. Afsalsskjalið álítur keisar- inn í fullu löggildi, því þar standi, að Ferd. keisari afsali keisarakrúnu Austurríkis »ásamt öllum tilliggjandi konungs- ríkjum og löndum«. J>ótt keisarinn væri svo þvertœkur og Ijeti það fylgja, að hann með alvöru og krapti mundi reka rjett sinn, ljetu Ungverjar engan bug á sjer til undanláts. Júngið tók spaklega við svarinu og lagði til ítrustu rann- sóknar. Deak tókst á nýja leik á hendur að semja and- svarsávarp, og var því í einu ldjóði jákvætt af báðum þing- deildunum. J>ar er hverju einstöku atriði í keisarabrjefmu hrundið með rökum, og skýlaust upp kveðið, að það standi á þeim stöðvum, er ekkert eiga skylt við lagagrundvöll Ungverjalands. Eptir margtekin og þversynjandi at- kvæði gegn innihaldi og stefnu keisarabrjefsins lýkur á- varpinu á þessa leið: »Verið getur, að ættjörð vor eigi þunga daga fyrir höndum, en oss þykir það drengskap flrrst, að afrœkjast skylduna til að afstýra þrautunum; lög- um stutt frelsi landsins er eigi í þeim skilningi vor eign, að vjer megum frjálst með það fara, eins og hvern hlut annan; þjóðin hefur lagt það í vorar vörzlur, treystandi einurð vorri og þegnlyndi, svo að vjer eigum reikning fyrir að gjalda bæði henni og sjálfum oss. Verði þess eigi auðið, að komast hjá þrengingum, tekur þjóðin öruggvið því, sem að höndum ber, að hún nái að varðveita óhagg- að fyrir niðja sína lagafrelsi það, er henni er leift af for- feðrunum. Hún mun bera þrautirnar með þolinmœði, eins og forfeður hennar hafa borið þær, til að veita vörð rjett- indum landsins. J>vi, er ofbeldi og yfirgangur ræna, má ná aptur, er fœri gefur, en á hinu er mesta torveldi og tvísýna, er þjóðir játa undan sjer af ótta og Jcvíða fyrir þjáningum og prautum. J>jóðin kýs þrautirnar, væntandi betri daga og treystandi því, að rjett mál beri um síðir sigurinn úrbýtum«. Seinustu aðgjörðir þingsins voru þær, að semja boðskaparbrjef til sambandslandanna, þar er yfir var lýst, að þau ásamt öllum þjóðernisflokkum Iandsins skyldu njóta jafnrjettis við Magýara, að því ástand heimti og lög lægju til. Nú hefur keisarinn það af tekið, er menn uggðu, að hleypa upp þinginu og boða menn á al- ríkisþing, og þar með nýjar kosningar til landsþingis á 6 mánaða frestí. þingmenn lögðu bann fyrir í nafni þjóðarinnar, og hvervetna er skírskotað til landslaga og lýriti varið, er embættismenn eða hermenn keisarans heimta gjöld cða reka aðrar sýslur af hans hálfu. Að vísu hefur ríkisráðið í Vínarborg, eður hinn þýzki hluti þess, lokið lofsorði á tiltektir keisarans, en þó er eigi sýnt, hversu lengi hann treystist að fara sínu fram, því það vitum vjer, að margt getur borið til vandræða í Aust- urriki, og að keisarinn, eigi síður en aðrir höfðingjar vorra tíma, mun þykjast fullþreyttur, er til lengdar leikur, að reka stjórn móti óvinsæld og mótþvkki þegna sinna, þótt við deigari væri að etja cn Ungverjar eru. Frakkar, Bretar og ítalir. Nú liafa þeirráð- ið sendiboða hvor hjá öðrum Napól. keisari og Viktor konungur, og upp tekið öll þau viðskipti, er tíðkast hjá vináttu- og sambands-þjóðum. Napóleon keisari sýnir enn af sjer sörnu tregðuna, að kveðja iið sitt burtu frá Róma- borg, og þykir það mest fyrir standa friði og friðarskipun á Italíu. Sumir halda keisarinn sje ráðinn í því, að láta hjer við standa, meðan Píus páfi 9. er á lífi, aðrir segja, að hann vilji fá greiðann borgaðan, en hugnunin sje engin önnur en Sardínarey. íbúar eyjarinnar eru 500 þús., lendur með lítilli rœkt, en hafnir og flotastöðvar hinar beztu. J>ví má nærri geta, að Rretar, er hafa ávallt glöggvan augastað á bandavini sínum, líti hjer grandgæfi- lega eptir, að eigi verði sjer of nær þokað um ríki í Mið- jarðarsjó. J>eir vilja hafa vinfengi keisarans og Frakka, en gjalda varhuga við, að hann verði þeim hvergi ofjarl, Jtar nje annarstaðar. f>að hefur verið upp kveðið af manni úr neðri málstofu Rreta (Roebuck), er þykist hafa gilda heimild fyrir sögu sinni, að fyrir löngu sje samningur um þetta við Viktor konung (Cavour). Ráðherrar Rreta sögð- ust einkis hafa orðið áskynja um samninginn, og stjórn- arblöð keisarans og Viktors konungs hafa þvcrneitað allri tilhœfu til slíks pata. En öllum er enn í minnum, hversu kappsamlega var móti borið kvittinum um afsölu Savoju og Nizzahjeraðs, og varð þó sú raunin á, sem kunnugt er. Mátti það finna á orðum Russels lávarðs, að lionum þótti sagan eigi svo trúleg; hann kvað það ráðlegast, að hafa andvarann á sjer, enda yrðu Bretar hjer að stöðva vin sinn, ef honum væri alvara. Fyrir nokkru ferðaðist Maxi-

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/86

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.