Norðanfari


Norðanfari - 22.06.1876, Blaðsíða 2

Norðanfari - 22.06.1876, Blaðsíða 2
— 54 — telur upp ímynda jeg mjer ekki purti að telja jörðunni mikið til gildis. Brjefritarinn furðar sig á að síra Arnl. Olafsson, í sinni ágætu ritgjörð í Norðl. „Um skóla á Möðruvöllum“, skuli ekki miklu held- ur benda á aðalbólið (fuimus Troes) Hóla i Hjaltadal, og gizkar á að pað muni koma af pví, að Hólar nú sje bændaeign o. s. frv. þessu mun ekki pannig varið, síra Arnljótur til tekur Möðruvelli vegna pess, að alpingi veitti í fjárlögunum „til undirbúnings gagn- fræðisskólastofnunar á Möðruvöllum í Hörg- árdal, fyrir fjúrhagstimabilið 1876—77, allt að 10,000 krónur“. p>að hefði pví að líkind- um verið árangurslítið, pó síra Arnljótur hefði „bent á Hóla“ í pessari áminnstu rit- gjörð, pegar alping liafði áður ákveðið Möðru- velli fyrir skólasetur, og pví miður kemur nú pessi kafli brjefritarans of seint fyrir al- menningssjónir, svo vel sem hann að öðru leyti kann að vera meintur. Eins og jeg sagði áður, vil jeg leiða lijá mjer að jafna saman kostum beggja jarð- anna; pað liefir á báðum verið búið vel, enda höfðu ábúendurnir, sem fyrmeir bjuggu á báðum jörðunum, við íleira að styðjast en búskapinn einan. Margir biskupar á Hól- um græddu stórfje, liið sama gjörði Stefán sálugi amtmaður, sem bjó á Möðruvöllum, og íleiri. Að hafa skrálæst lopt og svo vel um vandað að engin mús komist í pað, eru að sönnu miklir kostir! ! á smábýli, en síður telj- andi „höfuðbólum“ til gildis. J>ó plógur, lierfi og kerra með tillieyrandi aktýgjum sje til á Hólum, pá bætir pað ekki jörðina svo mjög, pví pessi verkfæri eru nú ekki svo sjaldgæf í heiminum, að ekki megi víðar fá pau keypt en á Hólum. — Hið síðasta sem brjefritarinn telur Hólum til gildis, hljóðar pannig: „J>að má og telja Hólum til kosta Bll ítökin í hvalrekum og viðarrekum, sem dómkirkjan á víðsvegar fyrir Norðurlandi, par sem Möðruvallakirkja á ekki tiltölu til eins álnarkeflis eða hi-yggjarliðs úr lival“. Yæri nú petta svo, að kirkjan á Hólum ætti rekaítök víðsvegar fyrir Norðurlandi, væri pað ekki lítil hlunnindi, en jeg er hræddur um að sala jarða peirra, sem til- lieyrðu Hólakirkju meðan hún var dómkirkja, hafi sett fullt eins öflugan lás fyrir pessi rjettindi hennar, eins og læsingin er fyrir kirkjuloptinu á Hólum!! J>að er engum efa bundið, að dómkirkj- an á Hólum átti reka fyrir sínu landi, o: á peim jörðum sem henni höfðu verið gefn- ar eða hún keypt, en eins víst hlýtur einnig að vera, pegar hún að konungs boði 'seldi pessar jarðir, hafa öll hlunnindi fylgt peim til lands og sjávar, pví aldrei liefir heyrzt að nein ítök hafi veríð undanskilin við söluna; pað liefði heldur ekki verið samkvæmt pví augnamiði, sem stjórnip hafði með söluna, pví henni var um að gjöra að sem mest fengist fyrir jarðirnar; einnig bendir pað til pessa, að pær jarðir, sem nokkur von var til að hval eða trjávið ræki á, seldust miklu bet- ur en aðrar jarðir. Jeg vil taka til dæmis Flatatungu og Hraun í Skagafjarðarsýslu, sem pá voru byggðar með jafnhárri land- skuld; hin fyrnefnda, sem er sveitajörð, seld- ist við uppboðið 451 rd. 50 sk., en hin síð- arnefnda, sem hefir góða rekavon, 1010 rd., og hvernig gat svo inikill mismunur orðið á verði pessara jarða, ef rekinn á Hraunum hefði ekki fylgt peirri jörð, sem bæði er landrninni en hin og lílca liggur í miklu meiri harðinda- og snjóasveit. Til dæmis um að Stefán sál. amtmaður ekki áleit að Hólakirkja ætti neitt tilkall til reka á peim jörðum, sem hún lrafði keypt, sjest bezt á pví, að hann, sem sjálfur keypti Hóla, ekki gjörði neitt tilkall til hvalreka sem urðu á jörðum peim, sem kirkjan pá nýskeð hafði selt, og pað áður en konungur hafði sam- pykkt söluna. Siðan veit jeg ekki til að nokkurt umtal hafi orðið um pó hval hafi rekið á fyrverandi jörðum kirkjunnar, nema pegar Benedikt sál. prófastur, sem eigandi Hólakirkju 1839, gjörði tilkall til livals, sem rak undir |>órðarhöfða og voru kirkjunni pá, eptir sem jeg hefi heyrt sagt við hæstarjett, frádæmd öll rjettindi til reka fyrir Höfða- og Bæjar-landi, og hið sama hlýtur að gilda um allar aðrar rekajarðir, sem kirkjan átti. |>au einustu hlunnindi, sem jeg hef heyrt getið um að Hólakirkja eigi nú, eru lítil rekaítök í |>ingeýjarsýslu, sem lögðust und- ir hana árið 1820, en livernig pessi hlunn- indi eru undirkomin eða hve mikil not kirkj- an eður eigandi hennar hefir haft af peim, er mjer ekki kunnugt, en brjefritarinn, sem virðist vera svo kunnugur á Hólum, veit efa- laust nákvæmlega um petta. Að brjefritarinn kallar kirkjuna á Hól- um dómkirkju, ldýtur að standa í sam- bandi við pessi ímynduðu rekaítök víðsveg- ar fyrir Norðurlandi, pví dómkirkjan á Hól- um átti fyrmeir reka á sínum jörðum, en jarðirnar voru seldar með rekanum, já, dóm- kirkjan var sjálf seld og er nú prívatmanns eign, en ekki mjer vitanlega dómkirkja. Hin síðasta ráðlegging sem brjefritarinn gefur, nefnil. að „reisa petta höfuðból eða rjettara nefnt sinn forna höfuðstað upp úr öskunni, og útvega lionum sín fyrri rjettindi o: gjöra hann að skóla- og biskupssetri“, er ein af peim ráðleggingum, sem hægra er að setja á pappírinn en framkvæma i verkinií, eða hver ráð sjer brjefritarinn til pessa? Viti hann einhver möguleg ráð til pess, væri pað óskandi að hann vildi gjöra pau heyr- um kunnug; að fjölga biskupum, mun nú sumum sýnast nokkurskonar óhóf, ekki pýð- ingarmeira en pað embætti er nú orðið, eða víll brjefritarinn fyrir pá ánægju að geta nefnt kirkjuna á Hólum með rjettu nafni dómkirkju láta borga 7,000 krönur í laun handa biskupi? og svo að öllu búnu að liann ekki liefði meira vald en svo, að landshöfð- inginn einn rjeði hvaða presti Hólabrauðið sjálft væri veitt. Nei, pað væri of dýrkeypt- ur heiður fyrir Norðurland. Sín fyrri rjett- indi öðluðust Hólar ekki heldur pó par væri aptur reistur skóli og biskupsstóll, nei, til pess pyrfti að allt væri sett í sama ástand eins og var áður en stólsjarðasalan fram- fór1. Hver ráð sjer brjefritarinn til pess? og væri pað yfir höfuð æskilegt eins og nú er ástatt? |>etta væri æskilegt að hann í næsta skipti vildi fræða lesendur Norðan- fara á. Bóndi á stólsjörð. Frá sýslunefudarfundi pingeyinga, er haldinn var 21. — 25. dag janúar- mánaðar p. á. í Húsavík. Á fundinum voru 10 nefndarmenn að oddvita með töldum, og komu par til um- ræðu mál pau, er hjer skal telja: 1. Um efnahag sýslusjóðsins; voru eptirstöðvar frá fyrra ári hjer uin bil 230 krónur, og samdi nefndin áætlun um tekjur og gjöld sjóðsins á pessu ári, jafnaði hún 4 aurum á hvert hundrað í sýslunni, en par eru 7032 4 fasteign- 1) í Sigurðarregistri eru við fráfall Jóns * biskups Arasonar 1550 jarðir og jarðarpart- ar Hólakirkju taldir 352. Við fráfall Ólafs biskups Hjaltasonar 1569 eru kirkjujarðir taldar 302. 1570 eru jarðir taldar 305; og þegar Guðbrandur biskup porláksson kom til stólsins 1571, eru kirkjujarðir taldar 298. pað pyrfti pví að kaupa nokkur jarðar- hundruð handa kirkjunni, ef hún ætti að fá „sín fyrri rjettindi“. arhundruð og 4704V2 lausafjárlmndruð. Meðal gjalda var ætlað fje til að prenta nýja markaskrá og reglugjörð fyrir sýsl- una um fjallskil og melrakkaveiðar. 2. Var samin fyrirmynd til áætlana um tekjur og gjöld hreppanna handa lirepps- nefndunum. 3. Var gjörður upp reikningur yfir pjóð- vegagjald sýslunnar næstl. ár, og hafði 662 kr. 74 a. verið varið til aðgjörðar á þjóðvegum á árinu. 4. Nefndin veitti af pjóðvegasjóði til vega- bóta í ár á Fljótsheiði 200 krónur og í Gerðunum í G rýtubakkalirepp 200 kr. 5. Enn fremur veitti hún til aðgerðar á veginum að brú peirri, er Reykdælir ætla að leggja yfir Laxá, 250 kr. 6. Ræddi nefndin um að brúa Skjálfanda- fljót skammt frá Goðafossi, og var pað sameiginlegt álit allra nefndarmanna, að fyrirtæki petta væri nauðsynlegt og gæti orðið sýslunni til sóma. Nefndin ákvað, að gjörð yrði hið fyrsta nákvæm skoð- unargjörð á brúarstæðinu, og sampykkti að biðja um allt að 4000 kr. lán af við- lagasjóði landsins til fyrirtækisins, að fengnu samþykki amtsráðsins, og skyldi lán petta endurgoldið af pjóðvegasjóði sýslunnar, þannig, að greiddir væru 10 af hundraði á ári til lúlmingar skuld- inni og í vöxtu, unz skuldinni væri að fullu loldð. Ennfremur skyldi skora á sýslubúa, að styrkja fyrirtæki petta með frjálsum samskotum til viðbótar peim, sem pegar hefir verið lofað, en pað erix hjer um bil hálft fimmta hundrað krónur. 7. Eptir beiðni ábúanda Reykjahlíðar á- kvað sýslunefndin, að fylgdarkaup paðan austur að lögferjunni á Jökulsá skyldi á öllum árstímum vera 6 krónur, þegar eigi pyrfti nema 1 mann til að ferja, en 8 krónur, ef 2 menn þyrfti til pess. 8. Nefndin fól oddvita sínum á hendur að mæla fram með því, eptir ósk Sigurjóna óðalsbónda Jóhannessonar á Laxamýri, að hann fengi af almannafje ferðakostn- aðarstyrk handa vatnsveitingamanni, er Sigurjón hefir í hyggju að fá á næsta sumri til að veita vatni á engjarnar á jörð sinni. 9. Sömuleiðis fól nefndin oddvita að mæla með bænarskrá Jónasar óðalsbónda Jó- hannessonar á J>verá um 400 króna styrk handa Páli syni hans, sem nu er í bún- aðarskóla í Noregi, af pví fje, sem veitt er í fjárlögunum til vísindalegra og verk- legra framfax-a. 10. Og enn fremur fól nefndin oddvita, að styrkja eptir pví, sem honum pætti bezt við eiga, beiðni Pjeturs óðalsb. Jónsson- ar í Reykjahlíð um póknun af samskota- fje pví, er gefizt hefir utan lands og innan til að bæta úr afleiðingum eld- gossins í fyrra. 11. Yar rætt um að koma á gripasýningum í sýslunni, en pví máli hafði áður verið hreift í amtmannsbi'jefi 23. dag septem- bermán. 1874. Höfðu nxargir hreppar sýslunnar sent nefndinni álit sitt um petta efni; töldu flestir á pví vankvæði vegna hinnar miklu strjálbyggðar, sem er í Júngeyjarsýslu, og póttist nefndin pví eigi geta haldið lengra út í petta mál að sinni. 12. Á sýslunefndarfundi 15. febr. f. á. hafði verið kosin 5 manna nefnd af flokki sýslunefndarmanna til að semja frum- varp til reglugjörðar fyrir sýsluna um afrjetti, upprekstur geldfjár, fjallskil, melrakkaveiðar o. s. frv. Lagði nú nefnd pessi fram frumvarp sitt, og ræddi sýslu- nefndin pað vandlega í heilu lagi og grein fyrir grein. Yar frumvarpið sam- pykkt með ýmsum smábreytingum og á«

x

Norðanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðanfari
https://timarit.is/publication/88

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.