Norðanfari


Norðanfari - 06.07.1877, Blaðsíða 4

Norðanfari - 06.07.1877, Blaðsíða 4
16. Frumvarp um frárkláða. 17. Frumvarp um birting laga. 18. Frumvarp um kosningar til alpingis. 19. Frumvarp um endurskoðun jarðamats. 20. Frumvarp um skipti á búum. — Af Suðurlandi á J»ingmaríumessu. „Siðan brjefkafli minn síðasti endaði 18. f. m., hefir verið góðviðri með hlýindum og regnskúrum, öðru hvoru, hefir grassprett- unni farið fram töluvert við pað. Enda var pess pörf, pví jörðin var víða kalin og gras- lítil. 1 gær gekk veðráttan til norðurs með kulda og hreti, til fjalla, og i dag er sama veður, og kyrkist gróðurinn aptur við pað, og litur illa út ef petta helzt lengi. — í vikunni sem leið, var góður afli á Seltjarn- arnesi, af porski og stútungi. — jSI afnkennd- ir hafa eigi aðrir dáið, enn húsfrú Anne Maríe Margrete Hansen, ekkja eptir Tærge- sen sáluga kaupmanní Reykjavík; hún and- aðist 28. f. m. — 30. júní kom gufuskip frá Englandi, til að sækja liesta, með pví kom Halldór Briem kand. theol., er verið hefir í Ameríku síðan í fyrra sumar“. Útlendar frjettir. (Eptir „ísafold11, 3. júlí 1877). Ófriðurinn. Nú hafa hingað borizt frjettir af ófriðnum til fyrra laugardags, 23. f. m., en harla tíðindalitlar. Rússar voru pá ókomnir suður yfir I)óná, en búnir að draga allt sitt lið, vistir og hernaðarföng fast að ánni, og var á hverri stundu búizt við höfuð-atrennu til að komast yfir um. ]?að var skipzt skotum yfir ána öðru hvoru, en mannfall orðið hvorugu megin að nokkr- um mun. Enginn efi pyldr á pví, að Búss- um muni takast að komast suður yfir, peg- ar peir ætla sjer, en eigi öðru visi en með miklu manntjóni. 1 Asíu höfðu og engin atkvæða-tíðindi orðið frá pvi er síðast frjett- ist. Bússar voru búnir að draga megnið af liði sinu saman í umsát um Kars, kastala- borg allmikla i Armeniu austarlega og aðal- varnarstöðvar Tyrkja, og var talið óefað, að hún ynnist innan skamms. Rússar fara að engu óðlega, og varast mest að stofna sjer i nokkurn voða, enda vinnst pað sem peim vinnst. I Montenegro var barizt af kappi, vannst hvorugum á til muna. Serbar eru fyrir utan ófriðinn enn, í orði kveðnu, og eins Grikkir, en Rúmenar búnir að steypa her sinum saman við lið Rússa, og jarl peirra búinn að taka sjer konungs nafn. Á Krit hjelt við uppreist. Með Bretum ganga ófriðai’-dylgjur talsverðar, og pykir sem brugð- ist geti til beggja vona ineð frið frá peirra hálfu, pegar Rússar eru komnir suður yfir Dóná. Jjjóðverjar hafa sent flotadeild mikla suður í Miðjarðarliaf, og lagt par saman við ítali; en er Frakkar urðu pess visari, beidd- ist stjórnin fjárveitingar hjá pinginu til að vigbúa sinn flota sem fljótast. Frakkland. J>ess var getið siðast, að í miðjum maí tók Mac Mahon forseti sjer til ráðaneytis bertogann af Broglie og nokkra hans nóta, stæka klerkasinna, í stað Júles Simons og hans fjelaga, er lionum pótti hallast of mjög að vinstrimönnum á ping- inu. Siðan frestaði hann pinghaldinu um mánuð. Og er pingið kom saman aptur 16. f. m., ljet hann bera pað upp í öldunga- deildinni, að fulltrúadeildin skyldi rofin, og efnt til nýrra kosninga. J>jóðvaldsmenn eru fáliðaðri en hinir í öldungadeildinni, og varð pví meiri hluti atkvæða með forseta. En pað gekk forseta til pessa tiltækis, að hon- um pótti fulltrúadeildin eigi nógu spaklát og leiðitöm sjer og sinum vinum, klerka- sinnum og einvaldsmönnum. En uggvant pykir, að kosningarnar takist nú svo, að peim forseta og hans vinum líki betur, og pá verður siðari villan argari hinni fyrri, enda mælist nú pegar hið versta fyrir öllu pessu atferli forseta. — Borgarbriini. Hinn 20. júní brann meira en helmingur af borginni St. John í Nýju-Brúnsvík í Yesturheimi, par á meðal 12 kirkjur og 25 stórhýsi. Skaðinn metinn 15,000,000 dollara. Um 15,000 inanna urðu húsnæðislausir, og fjölda peirra hjelt við hungursdauða. Embættaskipui). 28. f. m. setti lands- höfðingi 1. meðdómanda í landsyfirrjettinum, Jón Pjetursson, til pess fyrst um sinn frá 1’ p. m. að gegna dómsstjóra-störfum nefnds rjettar, upp á eigin ábyrgð, með óskertum launum peim, er embætti pessu eru lögð, og sem eru 5800 kr. S. d. var 2. meðdómandi í landsyfirrjettinum, Magnús Stephensen, sett- ur til að gegna störfum 1. meðdómanda og landfógeti Árni Thorsteinsen settur 2. með- dómari og dómsmálaritari yfirrjettarins fyrst um sinn frá 1. p. m. gegn hálfum yfirdóm- aralaunum. Hinn 29. f. m. veitti landshöfðingi Barð í Fljótum sira Tómasi Björnssyni á Hvann- eyri (vígður 1867). Aulc hans sóttu: sira Markús Gíslason á Blöndudalshólum v. 1862, sira Eyólfur Jónsson í Kirkjubólspingum v. 1865 og sira Magnús Jósepsson á Halldórs- stöðum v. 1875. (Eptir ,,Tsafold“). — Hinn 29. júní tóku pessir skólapiltar burtfararpróf frá latínuskólarmm í Rvík: J>órli. Bjarnarson lilaut 1. eink. 93 stig. Magnús Helgason — 1. — 92 — Halldór Haníelsson — 1. — 90 — Jón Finsen — 1. — 87 — Ólafur Halldórsson — 1. — 84 — Ólafur Ólafsson — 1. — 80 — J>órður Thoroddsen — 1. — 79 — Jón S. K. K. Sigurðss. — 2. — 73 — Jón J>órarinsson — 2. — 72 .— Morten Hansen — 2. — 70 — J>orsteinn Haldórsson — 2. — 69 — Jóhann J>orsteinsson — 2. — 69 — B. Stefánss. (utansk.) — 2. — 57 — — í júní tóku 17 nýsveinar inntökupróf í lærða skólann í Reykjavík. — Hinn 11. p. m. lagði danska herskip- ið „Fylla“ hjeðan, sem kom hingað 27. f. m., Ghef Gapt. Jakobsen, degi síðar, vegna ó- veðurs, en hann hafði ætlað, á leið til Fær- eyja, hvar hún á að vera komin 13. p. m.) jafrframt og póstskipið „Valdimar“ frá Kaupmannahöfn á leið sinni til Reykjavík- ur. Á meðan „Fylla“ lág hjer, voru skip- verjar stundum í landi að skemmta sjer og öðrum og stundum við heræfingar. Sumir af yfirmönnuin skipsius riðu 3. p. m. ásamt amtmanni og nokkrum fleiri hjer úr bæn- um, svo að alls urðu um 30 manns í för- innni, norður í Fnjóskadalsskóga (Vagla, Lunds og J>órðarstaða) og sumir norður að Goðafossi í Skjálfandafljóti. J>eir voru og eitt sinn i boði hjá amtmanni, og 7. p. m. voru nokkrir í boði um borð í „Fyllu“. Vfirmenn skipsins og einkum Chefinn og næsti yfirmaður Lieutenant Caroc, er hjer var á ferð í fyrra ásamt herra prófessor Johnstrup, voru hinir ljúfmannlegustu og kurteysustu, einnig hinir aðrir skipverjarnir, er alls voru sagðir á skipininu 89 talsins. Áður en „Fylla“ kom hingað, hafði hún far- ið norður undir Grænland til að kanna dýpið á peirri leið, og svo straumana m. fl. — 5. p. m. hlýnaði veðrið, svo hitinn varð um morguninn mót sól yfir 20 stig á Reaumur og eins 7. s. m. Aðfaranótt hins 10. var hjer mikil rigning og nokkur um daginn, svo nú hefir gróðrinum farið tölu- vert fram og málnytan sögð heldur vaxið. J>að sem náðist af hvalnum, er „Sjó- lífið“ fann undir Hornströndum, var alls eptir sögn að vigt: Spik 38J/4 vætt, og af rengi 112J/2 vætt. Rengisvættin var seld 3 krónur en í spikvættina voru boðnaa 6 krónur, sem pó ekki fjekkst keypt. Smávegis. — Nýlega hefir — í gömlum „Munka- pverárbrjefum“ — fundist, blað eða einhver skræða, er menn meina úr hinni fornu „Krukkspá“; pað kvað vera máð og rifið og pví mjög ólæsilegt; pað helzta er lesið varð, er pannig: „Á tímum peim munu einstakír píslar- vottar Mammons í ljós leiðast, erfyrirhans sakir ekkí lilífa sjer við eignir sínar og óðul að yfirgefa, og jafnvel brúka hin lielgu náð- armeðul, til að skinhelga sjer verustað, í byggðarlagi öðru, hvar minni eru matgjafir. ítem mun fjegirnd og flokkadráttur, með öldum ankast. Deyi bjargálna-bóndamaður, barnlaus, munu heim ríða hópar manna, af norðri og suðri, með „procuratóra“ í broddi fylkingar, er hvorirtveggja framkvæma upp- skriptargjörðir, samdægurs, uggir mig pá boðorðið 8. brothætt verði og bús aurar af málastappi uppetist, pví vitringar peirra tíma, munu sjálfir pykjast verlc sín eiga og vilja vel-launuð hafa“. — 147 stúlkur, er lært höfðu skólalær- dóm, ljetu 10. sept. f. á. skrifa sig inn á læknaskólann í Pjetursborg á Rússlandi. — Kona ein í París, sem gipt er fyrir 9 árum síðan, hefir 8 sinnum verið á barn- sænginni og í hvert sinn alið príbura, svo nú á hún 24 börn, er öll lifa, og allt eru stúlkur. — í Pólínalandi, lifir enn kona ein, sem er fædd 13. des. 1709, hún er pví næst- komandi 13. des. 166 ára. Hún er hjá syni sonarsonar síns. — 3,590 skip ensk, strönduðu á tímabil- inu frá pví í júní 1874 til pess í sama mund 1875. Af mönnum peim er voru á nefnd- um skipum, drukknuðu 926. AUGLÝSINGAIÍ. — „Orgel HarmoniunT1 er til sölu, með niðursettu verði, og ættu peir sem kaupa vilja, hið fyrsta að snúa sjer til undirskrif- aðs, sem eptir umboði sýnir hljóðfærið, gefur nákvæmari upplýsingar, og semur um kaup- in. „Orgel“ petta (keypt 1875 fyrir 180 kr.) er einungis selt vegna pess, pað pykir oflítið í Möðruvallaklausturs-kirkju, sem er svo stór; pað er óbilað og gott hljóðfæri, eink- um að hljóðinu til. svo að „Orgel“ sem keypt hafa verið hjer um nærsveitir, fyrir allt að priðjungi meira verð pykja ekki bera af pví í hljómmagni og hljómfegurð, pað hefir fullar 5 áttundir eða 61 tón. Óskað verður, að kaupin gjöríst fyrir 12. ágúst næstkomandi og að kaupandi greiði helm- ing verðs pá strax, en ekki verður hljóð- færið afhendt fyrr en eptir 20. sept. p. á. Stóra-Dúnhaga, 1. júlí 1877. Ólafur Tr. Jónsson. Blaðið „SkuRl“ fæst hjá Friðb. Steinsyni á Akureyri. •— Á fjörunni fyrir innan bræðsluhúsin hefir fundist millumskirta úr töi sem rjett- ur eigandi má vitja hjá ritstjóra Norðan- fara og um leið borga pessa auglýsingu á- samt sanngjörnum fundarlaunum. Eigandi og ábyrgðarm: Björn Jónsson. Prentari: Jónas Sveinsson.

x

Norðanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðanfari
https://timarit.is/publication/88

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.