Norðanfari


Norðanfari - 20.04.1878, Blaðsíða 1

Norðanfari - 20.04.1878, Blaðsíða 1
17. ár. \OKBA\FARL Nr. 23—24. Brjef frá Amiríku. Grirnli, Keewatin, Oanada, 18. janúar 1878. Háttvirti herra ritstjóri. I brjeíi þvi, sem jeg ritaði yður i haust frá Minneapolis, áður en jeg lagði á stað hingað norður til Nýja íslands, mun vera eitt atriði, sem parf leiðrjettingar og skýr- ingar, einkum ef pjer hafið, sem jeg býst við, látið brjefið koma út I blaði yðar. Jeg man ekki nákvæmlega, hvað jeg ritaði við- vikjandi landnámi íslendinga hjer við Winnipeg-vatn, en jeg mun hafa gengið út frá pvi, að yfirstjórn Canada-„dóminionar“ veitti nýlendumönnum, sem flytjast vestur yfir Atlanzhaf og setjast hópum saman, út af fyrir sig, að í Manitoba, Keewatin eður norðaustan-territoríinu, styrk til pess að kom- ast af fyrsta frumbýlings-árið. |>etta var að minnsta kosti ætlan min, pá er jeg ritaði yður síðast, og út frá sömu ætlan gekk jeg, pá er jeg ritaði greinina í „Búðstikken*1 út af ferð minni norður hingað i sumar, er einn- ig mun hafa komið yður fyrir sjónir. Jeg sá í ýmsum blöðum syðra gengið út frá pessu sama, pá er rætt var um landnám bæði Mennonita og fslendinga hjer i Canada- löndum. Síðar fjekk jeg að vita, að Canada- stjórn hefði aldrei ætlað sjer, að veita öðr- um nýlendumönnum hjer styrk en peim, er myndaði landnámin og kæmi peim á fót. Nýlenda íslendinga hjer hefir pannig, sam- kvæmt pví, sem Canada-stjórn hefir yfir lýst (agent íslendinga hjer á Grimli, Mr. Taylor, hefir nýlega fengið brjef frá hlut- að-eiganda stjörnardeild í Ottawa, par sem petta er skýrt tekið fram), pegar fengið allan pairn sjórnarstyrk, sem hún getur fengið, og nýlendumenn verða pví framvegis, bæði peÍT, sem pegar eru komnir, og peir, sem eptÍTleiðis kunna að koma, að spila upp á eigin spítur. Einungis mun vestur- förum islenzkum, sem hjer ætla að setjast að, framvegis eins og að undanförnu tais- vert verða ljettur fararkostnaðurinn, en við ■öðrum stjórnarstyrk kvað enginn landnemi mega búast. - fetta er annars í rauninni fremur kostur en ókostur, pví reynslan hef- ir sýnt, að styrkur frá stjórninni elur upp i peim, sem linir eru til framfara og sem koma að helman án nægilegs trausts á Ðrottni og eigin kröptum, dáðleysi og ó- dugnað, heldur við svefndoða peim, sem fyrir illa stjórn og önnur pau ókjör, er ís- land hefir orðið undir að liggja frá einni kynslóð til annarar, hefir lagt yfir pjóð vora og fyrir löngu er orðið eitt af pjóðar- einkennum fslendinga. Enginn ætti að ráð- ast til vesturfara af íslandi, sem ekki hefir einbeittan hug og vilja til pess með Drott- ins aðstoð að brjótast sjálfur áfram til frjálsrar og óháðrar lífsstöðu. Nýlendu- menn hjer vilja engan hafa hingað og geta ekki tekið við neinum að heiman, sem ekki hugsar hærra en að gefa sig upp á náðir annara, og pað væri meir en illa gjört, ef hrepp8stjómirnar á íslandi skyldi taka til peirra úrræða, eins og fáeinar peirra gjörðu 1876, að kaupa ömögum sínum farbrjef og senda pá hingað allslausa upp á nýlendu- menn. Onytjungar og letingjar eiga ekkert erindi liingað vestur; peir príí'ast hvergi um Akureyri, 20. apríl 1878. endilanga Ameriku, og hjer i nýlendunni yrði peir auk pess hiuum betri mönnum til niðurdreps. Jeg get ekki sagt með neinni vissu, hvort jeg get komizt heim til íslands í sumar. Verði mjer pað unnt, gjöri jeg pað. Jeg fæ enn ekki sjeð, hvort jeg muni eiga heiman-gengt, og jeg get ekkert afráðið i pví efni fýr en i vor. |>essa get jeg af pví mig minnir jeg dræpi _ eitthvað á ferð mina heim í brjefi minu til yðar í haust. — Jeg hefi frjett fyrir nokkru, að síra Páli Pálssyni á Prestbakka sje veitt Stafafells- prestakall i Lóni, sem faðir minn resigneraði í sumar. Um leið og jeg með síðustu póst- skipsferðinni frá íslandi árið sem leið fjekk pá slæmu frjett, að faðir minn væri dauð- vona, frjetti jeg og, að hin megnasta óánægja væri meðal Lónmanna út af pvi, að biskup og landshöfðingi hafa skikkað peim prest, er peir með engu móti vilja hafa og sem i áliti almennings er til niðurdreps öllum sönnum kristindómi hvervetna er hann til nær. Hefi jeg jafnvel hálfvegis verið spurð- ur til ráðs um pað, bvort rjett myndi og bvort nokkuð myndi koma út af pvi, ef söfnuðurinu afsegði prest pennan, eins og ýmsum af sóknarmönnum kvað hafa pótt sjálfsagt, pegar er peir frjettu um „brauð“- veiting pessa. Til pess nú ekki að fara í lauukofa með tillögu mina i pessu máli, vil jeg geta pess, að jeg álit hvern kristinn söfnuð hafa ekki eiuungis rjett, heldur og heilaga skyldu, til að reka af höndum sjer hvern pann prest, sem lifir i opiniuberum holdsins verkum; og pegar veitingarvaldið felur einhverjum slikum á heudur andlega forustu í kirkjunni, á söfnuður sá, sem hlut á að máii, að láta til sin taka. Ef að bisk- up og landshöfðingi ekki vita, eða látast ekki vita, að prestar eiga að vera fyrir söfn- uðina, en ekki söfnuðirnir fyrir prestana, eins og yfir höfuð, að alpýða er ekki fyrir embættismenn, heldur embættismenn fyrir alpýðu, pá parf sem fyrst að koma peim, og öllum, sem eins hugsa, til sann- leikans viðurkenningar. — |>að er heilög skylda biskups, að sjá um að enginn sje í prestlegu embætti, sem að einhverju leyti veldur hneyksli i kristnum söfnuðum og sem ætla má um að óhæfir sje til að uppbyggja almenning með orði og anda kristindómsins. Hinsvegar er pað vitanlegt, að fjölmargir slíkir prestar hafa verið og eru enn á ís- landi, og fá ár munu nú i seinni tíð líða, að ekki sje einn eða fleiri drykkjuslarkarar vígðir til presta og síðan sendir út til að leiðbeina hinni islenzku alpýðu á Gruðs götu. í>etta er óhæfa, eins og pað yfir höfuð, að allur kristilegur agi skuli með öllu vera horfinn i hinni íslenzku kirkju. Víða er margt fúið i ríkiskirkjum Norðurálfunnar; |>að er nú almennt játað ekki einungis i Svípjóð eg Norvegi, heldur lika í Danmörk; en hvergi mun kirkjan eins hörmulega kom- in og á voru landi, íslandi. Jeg er fyrir löngu kominn >til peirrar sannfæringar, að engra verulegra umbóta í pessari grein sje að vænta fyr eu kirkjan er algjörlega skil- in frá hinni veraldlegu stjórn, og hverretna eru myndaðir frjálsir söfnuðir, sem sjálfir hafi að öllu leyti á hendi stjórn sinna kirkju- legu málefna. f>að er beint niðurdrep fyr- ir hið kirkjulega lif, pegar allir, opinberir — 45 — Guðs afneitendur og ólifnaðarmenn, eru að sjálfsögðu skoðaðir sem meðlimir kristinna safnaða, og verst af öllu er pó pað, að pví- likir menn skuli af yfirvöldum kirkjunnar vera notaðir fyrir andlega leiðtoga safnað- anna. Hvervetna par sem nokkurt eptirlit er haft með kirkjunni, eru peir prestar, sem fyrir alvöru eru grunaðir um gæzku, kallaðir fyrir af peim, sem yfirstjórn and- legra mála hafa á hendi, og allar pær sak- ir, er almennings-álitið á pá ber, til hlitar rannsakaðar, og fyr en sú rannsókn er um garð gengin og hlutaðeigendur dæmdir sýkn- ir saka, fá peir ekki að fremja neina prest- lega athöfn, pvi siður að peim sje orðalaust veitt nýtt prestlegt embætti. Ætlan mín er sú, að pegar biskup og landshöfðingi sendir söfnuðunum presta, sem peir (söfnuð- irnir) ekki geta tekið við með góðri sam- vizku, pá eigi söfnuðirnir að gjöra allt, sem landslög leyfa, til að losast við pá. Og við engum presti á kristinn söfnuður að geta tekið með góðri samvizku, sem vitanlega er allt öðruvisi en pað, sem Páll postuli heímt- ar af hverjum kristnum kennimanni i 1. kap. brjefs hans til Titusar. {>ar er meðal ann- ars tekið fram, að sá, sem er umsjónarmað- ur einhvers safnaðaðar (presturinn), eígi að vera ólastandi, ekki drykkjumaftur, ekkí ofstopasamur, nje sólginn í sví- viróilegan ávinning, rjettvís, lieilagur, bindindissamur, og fær nm að fræða í hinum licilsusamlega lærdómi. Almennt virðist ekkert eða sára-lítíð tillit haft til pessa við útdeiling prestakalla á íslandi. Prestaköllin eru líka almennt kölluð „brauð“, er virðist henrda á, að pau eigi fyrst og fremst að 6koðast sem atvinnuvegur klerka. J>essi skoðun parf sem fyrst að deyja út, ef hið kristilega líf i söfnuðunum á að geta rjett við. Til pess eiga lika hínír eínstöku söfnuðir að hjálpa, með pvi á krístiiegan hátt að reka af höndum sjer hvern pann prest, sem prásamlega og opinberlega brýt- ur á móti fyr greindi m skdyrðum heilagrar ritningar. í pessu shyni yrði söfnuðurinn að láta gegnum hlutaðeiganda prófast yfir- stjórnendur kirkjunnar (biskup og lands- höfðingja) vita, að peir hafi ekki haft heim- ild Guðs orðs fyrir sjer í pví að kalla til andlegs leiðtoga safnaðarins slikan prest. Vilji biskup ekki sinna pessu, og eigi sje kostur á „ólastandi“ presti úr peírri átt (o: frá veilingarvaldi ríkiskirkjunnar), pá á söfnuðurinn, ef kristilegur áhugi hans er nokkur, að neyta lagalegs rjettar síns, sem hins siðasta úrræðis, segja skilið við rikis- kirkjuna og stýra sjálfur öllum sínum kirkju- málum eptir leiðbeining heilagrar ritningar. J>etta er beinlinis heimilað i stjórnarskrá ís- lands, en pví miður er áhugi manna á Is« landi í trúarmálum yfir höfuð svo daufur, að fæstum söfuuðum mundi að svo stöddu koma til hugar, að neyta pessa rjettar síns. J>etta hafa fáeinir lúterskir söfnuðir gjört i Nor- vegi rjett fyrir skömmu, eins og lika tveir samvizkusamir lúterskir prestar par hafa sagt skilið við ríkiskirkjuna, og er pó marg- falt rikar gengið par eptir pvi að allt fari sómágamlega fram í kirkjunni heldur en á íslandi. En að einu ber að gæta, að svo lengi sem aðeins fáir söfnuðir sliíi sig úr ríkiskirkjunni á Islandi, myndi rikiskirkjan lialda í járðeignir pær, sem prestaköllunum

x

Norðanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðanfari
https://timarit.is/publication/88

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.