Norðanfari - 08.07.1878, Blaðsíða 3
allri framg5ngu, glaður og skemmtinn i við-
ræðu, en J)ó orðvar. Hann var hreinskil-
inn maður, og einarður, en stilltur vel, frið-
semdarmaður, en liafði pó jafnast paðfram
er hann vildi. Hann var samvizkusamur
maður, vandaðúr og siðferðisgóðúr og kom
vel fram í hvívetna. Hann var pví maður
vinsæll og vel látinn af æðri sem lægri
stjettar mönnum, og pykir að maklegleikum
sneiðir að honum.
G-rafskript pá, er hjer fylgir, hefir sókn«
arprestur hans sett honum, en erfiðljóðin
eru eptir Hans Natansson bónda á jþórey-
arnúpi.
Hrafskript.
Sól jarðar
fyrir sjónum hvarf,
gekk upp Gruðs sól
er til grundar hnje:
Jósef Jóelsson,
sjálfseignarhóndi á Spákonufelli,
fyrrum hreppstjóri og sáttasemjari,
fæddur 31. ág. 1814, kvæntur 30. des. 1842, dáinn 30 júli 1877.
Með konu sinni furíði Magnúsdóttur eignaðist hann 5 sonu,
er 2 eru dánir, en 3 lifa.
Að honum er pvi mikill sneiðir hæði fyrir skylda og vandalausa,
pví að hann var mikilmenni að mörgu leiti,
forsjáll og fyrirhyggjusamur,
ástrikur og trúfastur,
góðgjarn og hjálpsamur,
friðsamur og óáleitinn.
Hann óttaðist og elskaði Guð.
1. 3.
J>að hljómar heilög bjalla
opt húsi Drottins frá:
á hverja er hún að kalla?
og hvað er hún að spjalla?
|>au hlýðum helgmál á.
2.
Hún' les um lúðurhljóminn,
er liðinn vekur ná,
og líkir engla óminn
og oss um minnir dóminn,
er herran háir há.
J>ú hennar röddu hlýddir,
og helgan skildir róm;
pú engu illu kviddir,
en örugglega striddir,
að fengir fagran dóm.
4.
J>ú munnt af mold upprisa,
hún má ei halda pjer,
og djarft mun Drottinn lýsa,
að dýrð pú eigir vísa
á vist með sjálfum sjer.
„Yjer væntum nýs himins og nýrrar jarðar,
par sem rjettlætið mun búa“. (2. Pjet. 3., 13.).
Erfiljóð.
1.
Jþar sem i árdag und fellinu fríða
fjölvitra spákonan riklurfduð bjö,
og angaði blómgresis ilmanin fríða
algildri sumars í dýrlegu ró,
og fram par sem áin í fossöldum brunar
í fangið á báru við sólgljáða strönd,
og par’s á haustdögum hræsvelgur dunar,
og hafísar alklæða margýjar lönd.
2.
J>ar sem hin iðgræna brekka viðbreiðir
blómgylltan fífil um heitt sumarkvöld,
móts við par eygló með gullkambi greiðir
og glitar af Ijósmyndum sæmeya fjöld,
og par’s á blómfleti bragnar nú líta
byggingu vigða til lofsöngva-máls,
par sem er musterið marmara hvita,
—manns andi lifir par helgur og frjáls.
3.
Jpar sem und friðhelgu fellinu liggur
fjölmennur bólstaður skrautlegur nú,
musterið upp byggði mannbaldur tryggur,
og mærasta varði frjálslyndur bú,
á öldinni nítjándu eptir Krists fæðing
ægishjálm faldinn hjá búhölda sjót; •
mátti hann sannkalla mannkosta gæðing,
mörgum pví auðsýndi kærleiksrík hót
4.
Hreinskilinn, tryggur og hollvinur mesti,
hataði lastmælgi, smjaður og tál,
ástríkur faðir og ektavin bezti,
auðsýndi hvervetna teprulaust mál,
friðsamur, spaklyndur, vandur að vinum,
velgjörða-rífur og gladdi pá bezt,
falátur hjá sneiddi flestöllum hinum,
er fann hjá peim óholla siðgæða brest.
5.
Nú er sá háttprúði húsfaðir látinn,
heimilið tregar og ástvinir með,
ektamann syrgir pví ekkja sárgrátin,
eymist af söknuði viðkvæmast geð;
niðjarnir harma og nábúar kvarta,
nýtasta misst hafa föður og vin,
en vonarljós tendrast i veikluðu hjarta,
að verði peim stöðugri sambúðin hin.
6.
Hvað stoðar skamsýn^og hryggur að klaga,
pótt horfinn sjert ástvina návístum frá?
Síðar peir lita pá sólfögru daga
að sjá pig með fögnuði útvöldum hjá,
sem elskaðir hreinskilni, hógværð og friðinn
og hjálpaðir mörgum sem bágstaddur er.
Far pú vel, Jósef! til ljósheima liðinn:
lifir pín minnig með virðingu hjer.
f Laugardaginnn 1, desember fyrra ár
(1877) vildi pað slys til, að heiðurs-og sóma-
hjónin J>orsteinn Jónsson og Guðrún kona
hans Jónsdóttir og Mattías bróðir hennar,
öll á Skriðnesenni, og Bjarni Jónsson frá
Steinadal, drukknuðu á heimleið par utan
af rekanum á Skriðnesenni með peim at-
burðum, að báturinn rann upp á blindsker
og hvolfdi strax, pví bára var talsverð en
logn. Vinnumaður |>orsteins sál., Björn
Sæmundsson og vinnukona voru á bátnum
lika, pau komust af í bátnum fullum, pví
örstutt var til lands; pað var að sækja smá-
við til eldiviðar. porsteinn sál. var sonur
heiðurshjónanna Jóns Magnússonar óðals-
bónda á Broddanesi og húsfreyju hans
Guðbjargar Bjarnadóttur. Guðrún sál. kona
hans og Mattías bróðir hennar voru börn
fyrrum óðalsbónda og hreppstjóra Jóns sál.
Jónssonar og eptirlifandi ekkju hans Hall-
fríðar Brynjólfsdóttur á Skriðnesenni. Að
öllum pessum var mikil eptirsjá ekki ein-
ungis fyrir foreldra, systkini, vini og ná-
granna hinna látnu, heldur petta sveitar-
fjelag og alla sem nokkur kynni höfðu af
peim. jporsteinn sál. var einn hinn efnileg-
asti af yngri bændum hjer, og að öllu hinn
mannvænlegasti. þessi heiðurshjón voru
samvalin að höfðingskap, gestrisni og hjálp-
semi við alla er til peirra leituðu, og er
peirra [pvi sárt saknað af öllum er kynni
höfðu af peim. ]pau áttu 4 börn, hvar af
3 stúlkur lifa, allar í ómegð. 2 fósturbörn
tóku pau og fóru með sem sin eigin börn,
og mundu hafa fram haldið pvi ef peim
hefði enzt aldur til. Mattías sál. var vand-
aður maður í allri háttsemi. tryggt
vínur, heppinn blóðtökumaður, og fór ov
ast pær ferðir án nokkurs endurgjalds;
hann syrgir sárt eptirlifandi ekkja bnus
með tveimur börnum ungum. Bjarni sál.
var um tvítugsaldur, stilltur og efnilegur
maður að öllu, hann var til róðra á Skrið-
nesenni, hjá j>orsteini, og var aldurhnignum
foreldrum hans mikil eptirsjá að honum,—
Öll hafa likin fundist.
f
Grróa Jónathansdóttir.
Hæstliðna jólanótt, kl. 12, háttaði glöð
og heilbrigð, Gróa dóttir Jónathans bónda
i Miðhópi, enn vaknaði aptur kl. 2 við pað,
að hún hafði ekkert viðpol, fyrir innvortis
pjáningum og óstillandi uppsölu, sem pó
sefaðist nokkuð við meðala-tilraunir á jóla-
daginn; en næstu nótt sálaðist hún kl. 2,
eptir sólarhrings banalegu; petta var 20.
jólanóttin er hún lifði, sem hana greip pessi
hastarlega helsótt. Gróa sál. var einhver
sú efnilegasta stúlka til sálar og líkama á
peim aldri, og hugljúfi allra sem hana pekktu,
guðrækin og siðíerðisgóð. Er hennar pví
mjög saknað af foreldrum hennar og systkin-
um, vinum og vandamönnum.
Nú í foldu
fölnað sefur
meyja blóm
á morgni lífsins
Gróa Jónathansdóttir,
fædd í Miðhópi 6. júlí 1858, dáin samastaðar
26. desember 1878.
Gengin er gáfna
gnægtum búin
meyja mætust
að moldar sölum
valin foreldra
vonar stjarna!