Norðanfari - 04.10.1878, Side 4
— 96
— Ar 1878, liinn 29. dag ágústmánaðar I
Var aðalfundur GránufjelAgsins haldinn á
Akureyri. Fundarstjóri var Arnljótur
prestur Olafsson og skrifari Davíð prófast-
ur Gruðmundsson.
Fyrst voru framlagðir til umræðu og
sampykkta endurskoðaðir reikningar fjelags-
ins fyrir árið 1877 með yfirlit yfir efnahag
pess við árslok, sem prentað verður í sjer-
-stakri skýrslu. Kaupstjóri skýrði frá pví á
ýmsa vegu. hvernig verzlanin hefði gengið,
og hve yfirgripsmikil hún hefði verið petta
ár, samt í hverja stefnu verzlanin pyrfti að
íærast. Ársgróði íjelagsins var reiknaður rúm-
ar 3,000 krónur, auk pess sem meira var
dregið frá en áður fyrir vanhöldum á úti-
standandi skuldum og afslajtti á vöruleifum
Var pannig fjárauki frá byrjun fjelagsins
orðinn 79,110,66 krónur, og hlutabrjef seld
alls 1791.
J>ví næst var rætt um, hversu verzlun-
arskuldir færi sívaxandi, enda að tiltölu
meira en verzlun fjelagsins ykizt. Hneigðust
umræður í pá átt, að mundi nokkuð hindra
menn frá lántöku mikilli, ef rentur væru
teknar og greiddar í verzlunum; auk pess
sem pað væri sanngjarnt að peir, sem ættu
til góða, fengju leigu af pví, og hinir sem
skulduðu yrðu að greiða leigu. Var að
síðustu sampykkt með samhljóða atkvæðum,
að taka skyldi 5 °/0 vöxtu af skuldum við
verzlanir fjelagsins, og sömuleiðis greiða
5 % vöxtu af pví, er verzlunarmenn ættu
inni í verzlun pess frá 1. janúar 1879 að
telja; pó eingöngu af pví fje, er ógreitt
verður 14. október 1879 ng við árslok.
IJm vöruvöndun var pað ályktað í
einu hljöði að á aæsta sumri, svo framarlega
sem kau.pstjóri sæí sjer pað fært, skyldi
gjöra verðmun á ull eptir gæðategundum,
•eða sundurgreining í 3 flokka; skyldu deild-
arfundir sjá nm, að matsmenn yrðu kosnir
á bverjum stað til að meta gæði ullarinnar,
eptir nákvæmari reglum frá kaupstjóra.
Var sampykkt, að svo sem í fyrra
skyldi greiða eigendum blutabrjefa 1 krónu
auk hinna lögákveðnu vaxta í viðbót af
hverju pví hlutabrjefi, er peir hurgað hefði
fyrir árslok 1877.
I stað gestgjafa L. Jensen, er átti úr
að ganga stjór.narnefndinni og mæltist und-
an endurkosningu, var kosinn síra Davíð
prófastur Guðmundsson.
Til endurskoðunarmanna voru kosnir
síra Arni .Tóhannsson og Gunnar verzlunar-
maður Einarsson.
J>ann 24. f. m. kom hingað til Oddeyr-
ar gufuskipið „C'umbrae11 til að sækja lif-
andi sauði til Gránufjelagsins, og fór aptur
27. p. m. með 1,341 sauð. Áður hafði pað
sútt einn farm, 954 sauði, til Djúpavogs og
Eskifjarðar, sem Gránufjelagið hafði keypt
fyrír Mr. Slimon i Leith. í 3. skiptið á :
pað að koma til Seyðisfjarðar 3. október
eptir farmi af lifandi sauðum. — J>etta er
11. skipið sem komið hefir til Gránufjelags-
verzlunar á Oddeyri í sumar.
1. „Hertha“ 112 Tons; kom 10. maí frá
Kaupmannahöfn með allskonar vörur.
2. „Zampa“ 138 Tons; kom 27. maí frá
Kaupmannahöfn með allskonar vörur;
fór með nokkurn hluta farmsins til
Siglufjarðar.
3 „(3arl Emil“ 134 Tons; kom 12. júní
frá Englandi með salt.
4. „Grána“ 88 Tons; hom 15. júni frá
Englandi með salt.
5. „Activ“ 73 Tons; kom 20. júni frá
Noregi með timhur.
6. „Sophie“ 100 Tons; kom 14. júlí frá
Noregi með timbur; fór samt með
meiri hlutann til Siglufjarðar.
7. „Elise Dyreborg11 96 Tons; kem 5.
ágúst frá Noregi með timbur.
8. „Lyna“ 108 Tons; kom 17. ágúst frá
Itaufarhöfn með vöruleifar.
9. „Gestrian“ 120 Tons; kom 2. septem-
ber frá Englandi með salt.
10, „Herta“ 112 Tons; kom 12. sept. frá
Kaupmannahöfn með allskonar vörur.
Til annara verzlunarstaða fjelagsins
liafa komið 8 beilir skipsiarmar i sumar,
og að auki nokkur hluti af farmi ofan-
taldra skipa.
Með „Hertha“ frjettist, að skip pað, er
herra kaupstjóri Tryggvi Gunnarsson keypti
á Austurlandi í sumar, var komið til Kud-
kjöbing, og hafði ferðin gengið vel. Búið
var að gjöra að skipinu, og kostaði aðgjörð-
in eigi nema fáar hundruð krónur. Var
pað siðan tekið til 5 ára í 1. flokk. Skipið
hafði reynst til siglinga í hezta lagi.
J»akkarávarp.
Jeg undirskrifaður get ekki látið hjá
liða, að minnast opinberlega peirra, sem nú
uin fleiri ára tíma hafa verið mjer og mín-
um sannir velgjörðamenn í langvinnum sjúk-
dómi mínum og bAgum lieimilishögum. Vil
jeg fyrstan nefna hærra Samúel Sigurðsson
á Helgavatni, er hefur sýnt mjer og mínum
einstakt örlæti og hjálpsemi; parnæst einnig
prófstainn herra E. Briem i Steinnesi og
föður hans herra sýslumann E. Briem, er
báðir liafa gefið mjer til mikilla nrana.
Ennfremur vil jeg minnast hinna heiðruðu
hjóna á Löngumýri Arnljótar Guðmunds-
sonar og Gróu Sölvadóttur, er optar en
einusinni hafa rjett mjer hjálparhönd, sömu-
leiðis einnig mad. Guðrúnar Jporsteinsdóttur
og jporsteins sonar hennar á Haukagili, er
hafa gefið mjer stórkostlega. J>essum gef-
endum öllum og velgjörðamönnum mínum
bið jeg himnaföðurinn að launa, pví að hann
er ríkur og góðgjarn, en jeg er fátækur
aumingi.
Geirastöðum 3. september 1878.
Jón Runólfsson.
Auglýsingar.
íslenzkum kaupmönnum gefst til vit-
undar, að undirskrifaður hefi látið stein-
prenta og innbinda Afhendningsbækur,
pannig að pær eru með allri yfirskript og
fullstrikaðar, svo að pær eru algjört útbún-
ar eins og pær eru venjulega notaðar nú
við verzlanir hjer á landi. í von um að
kaupmenn fremur kaupi bækur pessar, held-
ur enn að hafa pá miklu fyrirhöfn, að láta
strika pær, er verð peirra sett svo vægt
sem verða má pað er 3—4 krónur, eða
litlum mun dýrari en pær eru bundnar úr
venjulegum skrifpappir.
Auk pess, sem jeg ætla framvegis að
hafa nægar byrgðir af bókum pessum beima
hjá mjer, pá hef jeg í hyggju að láta pær
verða fáanlegar á næstkomandi sumri og
svo framvegis hjá pessum mönnum : herra
Kristjáni Ó. J>orgrímssyni bókbindara í
Reykjavík, herra J>orvaldi Jónssyni lækni
á ísafirði og herra Sigmundi Mattíassyni
gestgjafa á Seyðisfirði.
Akureyri, 1. októher 1878.
Frb. Steinsson.
Eptir ráðstöfun herra alpingismanns
Tryggva Gunnarssonar hefi jeg nú til sölu
töluvert af Alþingistíðindum 1877, sem
einstakir menn geta fengið fyrir 3 krónur;
og sveitastjórnirnar móti pví að greiða 1
krónu og kvittun fyrir móttöku peirra.
Akureyri, 1. október 1878.
Frb. Steinsson.
T i 1 s ö 1 u e r nýprentu? Ræöa á 4.
sunnudag eptir prenningarhátíð 1878, flutt
í dómkirkjunni í Reykjavík af Hallgrími
Sveinsyni. Verð 20 aurar.
Ákureyri, 1. október 18/8.
Frb. Steinsson.
Leiðrjettingar á nokkrum prentvillum,
sem finnast í Bænakveri síra Páls Jónssonar
á Viðvík: A bls. 41., í 3. 1. a. n., les: í
hjörtum vorum; á hls. 56., í neðstu 1. a. n.,
les: hljóma; á bls., 62., 7. 1. a. o., les: al-
máttugi; á hls. 75., í 4. 1. a. n., les: hjer-
vistardvöl vor.
Ef fleiri prentvillur finnast í kveri pessu,
pá er lesarinn beðinn góðfúslega að lesa í
málið. Útgefandinn.
Eigandi og ábyrgðarm.: BjörnJónsson.
Prentari: Ólafur Ólafsson.
að út í stöðuvatnið, pví í sllkum jarðlögum
geymist ávallt nokkuð saltkyns frá eldri
tímum, og verður pað þá brátt saltvatn. —
Nú getum vjer skilið hvernig á pví stend-
ur, að söltin geta verið ýmislegs eðlis bæði
að megni og efnasamsetningu, pví pað kem-
ur aðeins af náttúru landa peirra, er veita
fljótum og ám til vatnanna. Ef jarðvegur
kringum eitthvert vatn einkum inniheldur
brennisteinssúra magnesíu, pá verður aðal-
megni af söltum pess líks efnis, svo er t. d,
við kaspiska hafið, en ef jarðveguiinn
er blendinn matarsalti, pá verður stöðu-
vatnið fullt af pví, eins og til dæmis
Eltonvatnið. Sama er um megni saltanna.—
Af pessu sjest, að »altvötn ekki hafa af-
rennsli, og þvi er hægt að skilja, að sölt
vötn og ósölt geta verið ^ivert hjá öðru.
Gegnum Genesarethvatnið i Palæstinu og
hið litla Utahvatn í Ameriku falla ár, og
þvi eru pau ósölt, „dauða hafið“ og „salt-
vatnið mikla“ eru afrennslislaus og eru því
sölt. Undantekningar frá þessari reglu
finnast aðeins par, sem rennandi vatn er
ákaflega salti blandið, pvi pá getur mynd-
ast saltvatn með afrennsli.
Eptir pvi sem hjer hefir verið sagt, má
hæglega segja fyriríram hvar saltvötn sjeu
á jörðunni. I norður- og vesturhluta
Európu er loptslag mjög saggasamt og
rigningar tíðar, og pví eru þar engin salt-
vötn; á Ungverjalaudssljettu er regnlag
pað, er á jörðina fellur árlega, aðeins 12
til 13 pumlungar á hæð eða minna, og pví
finnast par saltvötn. I mesturn hluta Asíu er
purrt lopt og regn lítið, og því eru þar
saltpollar margir. Menn vita alls eigi til
pess, að sölt vötn finnist í Arabiu, en petta
I kemur af pví, að par er um mestan hluta
landsins alveg regnlaust, og pví geta par
hvorki verið saltvötn nje önnur. Af sömu
ástæðu er minna um þess konar i Sahara
en menn geta búist við. í Suðurafríku og
Nýja-Hollandi eru allar kringumstæður með
saltvatnamyndun og því eru pau fjöl-mörg
um pær slóðir, en saggasamt loptslag í
Ameríku gerir aptur að verkum, að par
eru pau íá. —- Með verkfæri geta menn
pví ákvarðað hvar saltvötn finnast, nefni-
lega með regnmælirnum, og er pað litil
sönnun fyrir pví, hve náttúruvísindin finna
samanhengi millum náttúruafla og eðlis
jarðar vorrar. J>að er mark og mið nátt-
úruvísindanna, eins og Alexander von
H u m b o 1 d t segir : „að grípa anda náttúr-
unnar, sem er hulinn af hinum einstöku
náttúruviðburðum11.