Norðanfari - 02.01.1880, Page 4
— 4 —
læt jeg ósagt. — Ljóðmæli J. Á. munu
licldur eigi skerða skáldheiður V. Á., að svo
miklu ieyti sem hann á hann skilinn. Slíkt
er á dómi alþýðu manna, en eigi á dómi Y.
Á. eða hlutaðeigandi valdsmanna.
Frjettir innlendar.
Úr brjefi af Rauðasandi í Barðastrandar-
sýslu, d. 18. okt 1879. „Síðan jeg ritaði
yður seint í júlí er allt tiðindalítið. Tíðin
var hin ágætasta allt fram í sept. En síðan
eptir 7. sept. hefir veðurátta verið rosafengin
og óstillt, stundum mjög miklar rigningar
siðara hlutann af sept. bleytu köföld, sem
að vísu urðu að vatni í byggð en festí á
íjöll, svo á þau sum var komið allt að pví
linjesnjór. Erost hefir opt verið á nóttum.
Síðan kom fram í þennan mánuð og svo er
aptur annað veifið piða ogrigning; hefir því
snjóinn tekíð aptur upp af íjöllunum að
mestu. Heyskapur hefir vist viða orðið í
minna lagi, þó sumstaðar í meðallagi. Eink-
um brugðust túnin, því að af þeim hafði
víða brunnið í hitunum framan af sumrinu.
Urðu þvi sumir að fækka kúm í haust.
Fje hefir reynzt heldur illa.
Barnaveiki hefir verið að stinga sjer
niður hjer um. Lungnabólga hefir oggjört
vart við sig. En að hvorugri þessari sýki
má heita að mikið hafi kveðið, þó hefir
fólk dáið hjer í flesta lagi í sumar, en
enginn nafnkenndur svo jeg viti. Og yfir
höfuð hefir verið nokkuð kvillasamt á sumr-
inu. En hjer er eigi um læknishjálp aö
tala, og má hver deyja Drottni sínum fyrír
því. Yerð á helztu útlendum vörum var
hjer í sumar á þessa leið: Rúgur 17 kr.,
bankabygg 28 kr., grjón (hálfgrjón) 20 kr.,
salt 6 kr., kaffi 95 aura, kandissykur 50
aura , hvitsykur 50 a., rjól 1 kr. 50 a.,
rulla 2 kr. 30 a., steinkol kr., steinolía
30 a. pundið. Innlend vara: Ull hvit 70
a., mislit 50 a., fiður hvitt 1 kr., mislítt
67a., smjör 70a., fiskur saltaður skp. 60kr.,
þyrsklingur 32 kr., hákarlsl t. 38 kr., sellýsi
38 kr., selskinn 1 kr. 30 a., pundið, nauts-
skinn og brossskinn eins.
Eigi sýnist mjer launum presta vera
sanngjarnlega niðurraðað eptir þvi, sem em-
bættunum er háttað. f>að er engin sann-
girni, að láta erfiðustu embætti vera með
jöínum eða minni launum., en þau þar sem
prestur þarf ekkert að hreifa sig. Eigi
er heldur sanngjarnt að láta prest, sem
hefir slitið sjer út á erfiðu brauðí, ef til vill
á nokkrum árum, hafa jöfn eptirlaun fyrir
hvort embættisár og þann, sem situr á hægu
brauði og getur endst miklu lengur. f>að
er hætt við að margir kynoki sjer við að
sækja um erfið útkjálkabrauð til að þjóna
•eptir að þessi lög eru búin að fá gildi.
Að hlýða lögunum um uppfræðmg barna í
skript og reikningi, verður víða eigi hægt.
Ur brjefi úr Miðdalahreppi í Dalasýslu
dags. 79 HHjeðan er stórtíöindalaust
að frjetta, heilsufar almennings allgott og
engir nafnkenndir nýlega dánir, tíðin hetir
verið mjög umhleypmga og illviðrasöm sið-
an á rjettum, en ómunalega góð um hey-
skapartímann, varð því heyskapur i betra
lagi, þó víðar væn snöggslægt. Fjárheimt-
ur eru með versta móti því vegna þurr-
viðranna. í eumar hefir fje runmð afgeipa.
f>að er leiðinlegt, að vita hvað margt
óskilaije er selt í hverjum lireppi og eig-
endur þess skuli þannig tapa eign sinni,
sem ekki þyrf'ti að vera ef auglýst væri í
blöðunum hvað selt er, en það eru allt of
fáir hreppar hjer vestanlands, sem gjöra
það, því að það ætti að auglýsast úr ölluin
hreppum landsins. Hjer úr dölum liefir fje
verið rekið fil sláturs, til þriggja kauptúna,
Stykkishólms, Borðeyrar og Brákarpolls, fer
þessi fjárfjölgun allt af vaxandi ár frá ári,
sem jeg hygg að ekki stefni i farsæla átt.
Brákarpolls kaupmaður tók fjeð á fæti, en
uppskorið var það tekið bæði í Stykkishólmí
og á Borðeyri, kjöt frá 14—20 a., tólg 28 a.
gærur 1 kr. 50a., 2 kr. og 2 kr. 75 a. Skip
sem von hefir verið á til Brydes verzlunar
á Borðeyri, er ókomið enn“.
Úr brjefi úr Broddaneshrepp í Stranda-
sýslu d. 26. nóv. 1879. Sumarið var óvenju
þurrkasamt og hagstætt, en graslitið harð-
velli og brann víða af túnum, svo töður
urðu víða helmingi minni en venjulega, en
úthagi i meðallagi og sumstaðar góður til
fjalla, málnyta allstaðar mjög rýr, haustið
fjarskalega rigningasamt og opt talsverð veð-
ur af suðri og vestri, enda hafa orðið hjer
3 bátstapar. 1. þ. m. drukknuðu 2 menn
af bát í Steingrímsfirði, en 1 varð bjargað,
hann var frá Hafnarhólmi á Selströnd. 6.
þ. m. drukknuðu 3 menn frá KleifumáSel-
strönd, sem voru til fiskiróðra norður á
Eyjum. allt ungir menn og ógiptir, formað-
urinn ujet Jóhannes, þeir fórust í vestan-
veðri og enn er sagt að ekkert hafi rekið
af þeim bát. 8. s. m. drukknuðu 4 menn
frá (xuðlaugsvík, 3 bændur, Ólafur bóndi
og formaðurinn, Magnus bóndi frá Skálhoits-
vik, þeir voru i fiskiróðri og þann dag var
hjer afar mikið veður, og brast á allt einu“.
Úr brjefi úr Miðfirði d. 8. des. 1879.
„Frjettir eru nú þær helztu, að veðuratta
er óvanalega frostalítil, það má kalia, að
frá 26. sept. hafi optast verið sunnanátt og
þíða, rigningar í mesta máta og vindur eins.
Að sögu hafa 2 skip íarist af Snæíjallaströnd.
Fiskirí liefir i haust venð i góðu meðallagi
hjer við Miðfjörð, samt bagaði beituskortur og
hans vegna urðu margir að hætta við róðra
hlutir munu vera 5 til 8 hundruð tólfræð.
Verzlun hjer í nálægum kaupstöðum hefir
verið í lakara lagi, kjöt 14—20 aura pund-
ið, mör 28, tóig 30 a. ull 40 a., og nú er
hún að sögn 30 a. pundið, þar við bætist
að tiltinnanlegur skortur er á útlendri nauð-
synjavöru. Stórkaupmaður Munch, sem reið-
ír á Hóianesi, eina verziun á Biönduósi og
aðra verziunina á Borðeyri, hefir sent hmg-
að 2 skip að mestu ferind aí sandi, eu þau
fóru aptur með farin at kjöti, ullu og tóig.
þ>etta eru ójöfn skipti“.
Ur brjefi af Suðurnesjum 22. 'nóv. f. á.
“Hjer er allt tiðindalaust, bezta árferði
upp á landið. Umhleypmgar hindra sjó
gæitir. Snemma í nóvemberm. rak hval
eða aptari part aí honum í jporlákshöfn,
lika livalstykki á Asfjörum, fremri part íisks-
ins hatði rekiö á Skúmstaðfjöru, en tók út
aptur“.
díelztu frjettir að sunnan eru þessar:
Tíðaríár hefir verið þar mjög óstöðugt og um-
hleypingasamt, einkum háta þar gengið dæma-
fáar rigningar af suðri og suðvestri, voru svo
mikil brögð að peim að hross voru farin að
leggja af tii muna og sauðfje sömuleiðis.
Hey orðin skaðskemmd víða í görðum og
tóptum, og eidiviður einnig. B.rakviður þessi
hafa gengið yfir Suðurland í allt haust að
undanteknum vikutíma fyrir jólaíöstu. Gæft-
ir voru stirðar en afli góður einkum á Sel-
tjarnarnesi og Akranesi, gekk liskur óvana-
lega grunnt og þess vegna höfðu menn gagn
af honum þó veöur væri stirð; voru komnir
7—800 hlutir af saltandi fiski á Seltjarnar-
nesi. Fiskurinn var ákaflega vænn. Um
miðja jólaföstu var afli um allan Faxaflóa
bæði djúpt og grunnt. Haustverzlun vargóð
og töluvert mikil á Akranesi og Brákarpolli;
var þar íjársala í betra lagi, gáfu þeir bræð-
ur Snæbjörn og Böðvar, |>orvaldssynir á
Akranesi 10- llkr. fyrir veturg. ogum 20kr.
fyrir sauði. Var mest selt á fæti og sumt
sókt til bænda, líkt þessu var á Brákarpolli.
Mun heill skipsfiirmur liafa farið frá|hverj-
um þessum verzlunarstað með kjöt og gær-
ur. Minna orð var gjört á fjártöku í Rvík.
Nægar byrgðir sagðar í öllam suðurkaupstöð-
um. Heilsufar manna gott yíir höfuð og
slcepnuhöld sæmileg. Um miðja jólafóstu
gjörði töluverðan snjó um Borgarfjörð afsuð-
vestri og allt norður yfir Holtavörðuheiði.
Aptur dreif niður talsverðan snjó aðfaranótt
21. f. m. um Víðidal, Ása, Vatnskarð og
Hólminn í Skagafirði, varð þar jarðskarpt
um tíma. Fyrir norðan Yxnadalsheiði snjó-
laust. Úr Rvík lítil tíðindi, farið að efna
þar til alþingishússbyggingar, og fleiri stór-
hýsi er talað um að reisa þar næsta sumar.
— 5. f. m. var Jón landritari lirópaður afi
af meðnefndarmönnum sínum úr bæjastjórn
Rvíkur, og mun slíkt fálieyrt hjer á landi.
Um nýár skyidu kosningar fara fram á bæj-
arfulltrúa í stað Magnúsar assessors, er þá
skyldi úr ganga. — f>á varð einhver óvand-
aður þorpari til þess að sýna presti Rvíkinga
banatilræði, með því að kasta 5 pd. steini
inn um skrifstofuglugga að honum; brotnaði
stóll sá er klerkur sat á, en hann sakaði
ekki. — í flestu gengur Rvík á undan öðr-
um bæjum á landi hjer, þó synd sje að segja
með góðu eptirdæmi.
Mannalát.
Um miðjan nóvemb. fyrra ár andaðist
snögglega á heindeið frá barnskírn sira Páll
Ingimundarson á Gaulverjarbæ. f. 1812.
Útskrífaður úr Bessastaðaskóla 1836. vigðist
aðstoðarprestur að Gaulverjarbæ 1839 veitt
brauðið 1856.
Afaranóttina hins 1. des. andaðist úr
brjóstveiki? Hannes Arnason kennari við
prestaskólann. f. 10. okt. 1809. Útskrif-
aður úr Bessastaðaslcóla 1837, fór sama ár
til háskólans, iærði þar til þess hann varð
cand. theol. Yigðist prestur að Staðastað
en var það skamina stund því að hann varð
1848 kennari við lærðaskóiann sama ár, o"
við prestaskólann 1850.
Einnig er dáin i Rvik ekkjufrú Thor-
oddsen þorvaldardóttir Sivertsen frá Hrapps-
ey á Breiðafirði.
13. f. m. drukknaði í Ólafsfjarðarvatni
unglingsmaður, hjer um 17 vetra, er hjet
Jón Olafsson er átti heima á Reykjum í
Ölafsfirði og var á skautum út eptir vatninu,
en hvassviður á sunnan.og vakir í það undan
lækjarósum er að því liggja. og lenti hann í
einni af vökum þessum. Maður reið á móts
við hann á landi, og sá hvað Jóni leið,
hleypti þá maður þessi til sunds í vökina,
til þess aðreyna að bjarga drengnum, en þá
vatnsdrifið í vökinni, svo mikið, að hestinum
| og honum lá við köfnun og varð því að
hverfa frá við svo búið til lands.
Aiiglýsingar.
— Með því hin núverandi stjórn þjóð-
vinafjelagsins til þessa, þrátt fyrir ítrekaðar
áskoranir, ekki hefir fengið nægileg reikn-
ingsskil fyrir efnahag og bóka afhendingu
| fjelagsins hjá formönnum sínum, eru allir
I íjelagsmenri og aðrir skiptavinir fjelagsins
beðnir um, hver fyrir sig, góðfúslega að láta
undirskrifaðri forstöðunefnd fjelagsins hjer
I á landi í tje skýrslur um, hvað þeir hafa
inngoldið, og við hverju þeir hafa tekið af
I hókum.
• Bessastöðum. Görðum og Rvik 1. des. 1879.
Grímur Thomsen, |>órarinn Böðvarsson
varaforseti.
Magnús Andrjesson,
fjehirðir.
— Kvöldið 20. nóvember tapaðist af
Bakariinu og út á Oddeyri eða jafnvel að
Krossanesi, gömul peninga budda með 27
kr. í gulli og fáum aurum, sem finnandi er
beðínn að skila mót sanngjörnum fundar-
lannum á^skrifstofu Norðarifara.
Eigandi og ábyrgðarm.: lljörn Jónssoil.
Prentsmiðju Norðanfara. B. M. Stephánsson.