Norðanfari


Norðanfari - 11.03.1881, Blaðsíða 4

Norðanfari - 11.03.1881, Blaðsíða 4
- 44 — t>ar, og byrjað að leggja hana að sunnan. Landar þyfcjast nú fyrst hafa fundið par gott land, enda eru nú par orðnir 150 íslenzkir landtakendur, fyrir utan alla pá sem húnir cru að ánafna sjer land og eigi seztir á pau, og ætla að flytja með vorinu pangað, J>að lítur út fyrir að þar verði fjölbyggt af Ts- lendingum, áður langt líður. |>angað íluttu nokkrir frá Minnesota í vor scm leið, og einnig frá Schawano í Wisconsin, og flestir ef ekki allir paðan koma á eptir. Líka er sagt, að til Dakota vilji laudar leita, sem hufa hafst við í Ontario nálægt Itosseau, ef peir geti losast við lönd sín; svo hafa og Islendingar frá Nýja Skotlandi, skrifað sjera Páli um styrk til að komast í fjelagið. Svo margir viija leita pangað, enda kvað par nóg af samkynja landi ónumið langt vestur 1 land. Svona langt er pað komið með land- námið í Dakóía, prátt fyrir allan undirróður mótstöðumanna sjera Páls, enda leggur liann allt í sölurnar til pess að nýlenda pessi kom- ist upp, pó heilsa huns sjc á veikum fæti. iNvle a hefir liann verið í Minnesota, að safna nautgripum og sauðfje sem hann hefir feugið upp á lán til priggja ára. ílann var búinn að fá 50 af hverju, pegar seinast frjettist, viðhót við 50 nautgripi, sem hann útvegaði í vor með sömu kostum. Af öllum kringumstæðum er það nú fulljóst, að útsjeð er um nýlendu okkar við Winnepeg vatn, og hefir pessi óáran, nú loksins opnað augun á mörgum peim sem hjeldu lienni fastast fram, t. a. m. sjera Halldór Briem, ritstjóri »Framfara» lieitins. f>ar hefur líka brugðist, fiskafli í sumar og ekkert heppnast vel nema fyril'tæki herra Sigtryggs Jónassonar og peirra fjelaga með gufuhátinn «Yictoríu», sem þeir keyptu í fyrra liaust, pað liefur gengið vel og ekkert ólag orðið á með hann, ■pó allir mennirnir á Jbonum hafi verið fs- lendingar nerna maskínumaðurinn. Sigtriggur liefir verið yfirmaður á hátnum (JónasJónas- son Bárðdælingur stýrimaður og verkstjóri) unnið tálsvert íje á hátnum, pví nóg hefir verið að gjöra með hann hæði til flutninga hjer um Bauðá, cn pó mest út uin Winne- pegvatn, hefir pað pá við og við komið fyrir, að hann licfir flutt íslendinga, sem ferð hafa átt úr Nýja-íslandi lijcr upp tilWinnepeg, og heíir Sigtr. opt lánað peim fargjaldið sem ckki hafa liaft pað til, og ekki gengið hart eptir, og pað enda pótt sumir af þeim hafi verið að segja sig alveg skilið við nýlenduna, pótt margir mættu ímynda sjor, að honum mundi pykja pað leiðinlegt, að pað skyldi verða lilutfall hans, að flytja menn aptur úr j heuni. Aldrei hefir verið eins gott um vinnu hjer í Manitoba og í sumar , og liafa flestir verkfærir menn úr nýlendunni, sætt henni, kuup>iö er 1 Va—2 dollara um daginn, væri pað stórmikið fje, ef pað hefði komizt í eitt, sem landar vinna sjer hjer inn á þessu sumri». K y e ð j a til Jakobs Líndals í samsæti íslend. í Ontario 31. jan. 1880. Farðu vel, frændi kæri! Yið felurn pig drottins verndar liönd, Farsællega þig færi Hans forsjá blíð, of liöf og lönd. Unz færðu aptur líta Okkar hjartkæru fósturgrund Með faldinn fanna hvíta, Með fjöll og dali og eyja sund. Heilsaðu öllum lieima Hjartkærum vinum okkur frá; En pú mátt ekki gleyma, Astsama kveðju líka að tjá, Bernsku stöðvunum blíðu Bjarta, livar við um æsku tíð Ljekurn með lyndi pýðu, Og lífsins ekkert pekktum stríð. Heilsaðu, fjöllum háum; Heilsaðu dal og sljettri grund, Og fugla fjölda smáurn; I’agra sem einatt vorsins stund Vorn gladdi hug og hjörtu Himneskum meður söngva klið. Minnstu við blómin björtu, Og blárra strauma sætan nið. þó aldrei aptur sjáum Unaðar-sæla fóstur mold, Á meðan andað fáum Og ofar jörðu bærist liold, Isafold aldrei gleyma Einasta hennar barna skal. Yjer biðjum Guð að geyma Og gæðum krýna pað landa val. Jósefína Baldvinsdóttir. Frjcttir. Herra verzlunarstjóri E. E. Möller, Ijot 25. febr. pjakka gat á lagísinn lijer á skipa- legunni, og vár hann pá 2 ál. 3 þuml. á pykkt, hvað pá nú 12/a 81?. Yeðráttan hefir nú dægrum saman verið hin sama, kafpokur með meiri og minni snjókomu, (10. birti upp), svo mikil fönn er komin aptur og illkleyft fyrir menn og liesta. j>að mun nú aptur vera orðið haglaust. Nokkrir eru vegna heyskorts, farnir að koma niður skepnum fiínum, og fæztir munu telja sig heybirga Icngur en til Suínannála, Alveg er nú sagt 'lijer á firðinúm aflalaust upp um ísinn. Hvcrgi er nú getið almennra veikinda, manna- láta, nýrra slysfara eður skiptapa. Norðan- póstur Danjel Sigurðsson lagði bjeðan frá Akureyri 3. p. m. mcð póstkistur á 4 héstum, en herra umboðsmaður E. Gunnarsson 7. p. m. á leið til til Beykjavíkur og þaðan ætlaði hann til útlanda til vöru útvega handa þeim er höfðu pantað pær hjá lionum. Iíann lxafði í vetur lengst farið austur undir Eyja- fjöll, suður í Grindavík og vestur fyrir Hvítá í Borgarfirði. f næstl. mánuði aflaðist á Skagafirði talsvert af hákarli, undan Höfðaströnd, Sljettu- lilíð og Eljótum, einkum Hofsós, hvar tveir mcnn fengu yíir 30 tunnur lifrar. í suð- vestur af Málmey á Skf. höfðu á dögunum sjeðst í hafísvök 7 reiðarfiskar og lkatthveli; i einn eða tvo reiðarfiskana hafði verið skotið mörkuðum járnum, einum eða tveimur dögum síðar, leysti hafísinn frá, og hvalirnir pá ásamt í ísnunr horfið. Mennirnir, sem komu járn- unurn í livalinn eða hvalina, eru sagðir eiga bcima á Áruastöðum í Fellshrcpp í Skaga- fjarðarsýslu. Birna með tveimur luinum, Iiafði sjezt fyrir skömmu yzt á Tjörnesi og liin sömu aptur á Eyri á Flateyjardal, fjórða dýrið sást á Skarði 1 Laufássókn og liið 5. á lcið millum Látrastrandar og Hríseyjar. Hvergi liafa dýr pessi sýnt sig í pví að ráðast á menn eða skepnur eða brjóta upp hús eða hjalla, lieldur ætíð hörfað undan pá peim hefir verið veitt eptirför, en ekkert peirra náðst eða unnist. II i 11 og ]> c 11 a. Yindurinn, g o 11 m a n n o r ð og sakleysið liöfðu hitzt og voru um stund sainan, pótt ei sje líklegt; pau urðu brátt að skilja. Far vel sagði vindurinn bros- andi og hoppaði glaður burt. Far vel, jeg kem bráðum aptur, og við sjáumst aptur. Far vcl sagði hið góða mannorð með gremju. Hver veit hvort við hittumst nokkuru tíma aptur. Sjaldan, — ofsjaldan kem jeg aptur. Far vel, og far vel til eilifðar, sagði sakleysið með sorg, pegar jeg eitt sinn fer burt kem jeg aidrei aptur. fjjófur einn var fluttur fram fyrir konunginn. Konungurinn dæmdi hann frá lífi. þá mælti þjófurinn: Herra! jeg kann hina óviðjafnanlegustu iprótt heimsins. Leyf- ið mjer að kenna yður liana og gjörið síð- an það, sem yður póknast. Konungurinn svaraði: Ef pú kannt slíka íþrótt, livers vegna hefir pú þá farið að stela? þjofur- iun sagði konunginum, að hin mikla iþrótt heppnaöist einungis peim manni, sem aldrei heíði stolið einni ögn. ]>á sagði konung- urinn víð ráðherra sinn: Láttu hann þá kenna pjer ipróttina! En ráðherrann af- sakaði sig með pvi, að konungleguin em- bættismanni væri eigi unnt, að varðvéita sig alveg flekklausan í pjófnaði. Konugur- inn kallaði pá hirðprest sinn fyrir sig og sagði: Lær pú þá iþróttina! En prestur- inn játaði pað, að hann véeri eigi heldur sýkn í pví efni. |>annig afsakaði liver einu sig, og alls enginn porði að kalla sig sýknan saka. Loks kom sú ætlun mannaíljós, að konungurinn ætti sjállur að læra pessa í- þrótt. f>á mælti konungur: Jeg irian elcki nú, hvaða heimskupör jeg drýgði, pá er jeg var krónprinz; en jeg er ekki viss í þvi, að mjer takist að lama íþróttina. — þjófur- inn var síðan náðaður. A u g I ý s i ii g a r. — Undirskrifaður kaupir egg þessara fuglategunda, fyrir vanalegt verð: fálka, gæsa, brúsa, straumandar, húsandar, fíór- goða, sntfxiís, hrafns, og maríuerlu. Múla 23. d. febrúar 1881. Sigfús Magoússon. — Hjermeð kunngjörist landsetunum á umhoðsjörðum Möðruvalla klausturs,- að par jeg nú er komin til heilsu, hef jeg að fullu og öllu tekið við umhoðsstörfum apt- ur, og pví ógilt horgi nokkur landseti jarð- arafgjald sitt til hins setta umboðsmans er aður var, stúdents |>orláks Thorarensens, sem nú eigi lengur hefur neina heimild til að fremja nokkur umboðsstörf. Skipalóni, 4. marz 1881. Tli. Daníelsson. — Nýtt brennimark: S. M. Múli. er tekið upp af mjer undirskrifuðum. , Múla 23. d. febrúar 1831. Sigfús Magnússon. — Fjármark Stefáns Bjarnarsonar á Rauf á Tjörnesi í Húsavíkurkrepp: stýft hægra tvær fjaðrir fram. vinstra Brenni- mark: St B. — Fjármark Páls Guðmundssonar á Brettingstöðum í Hálshrepp í fúngeyjar- sýslu : Sýlt hægra, livatt og fjöður framan vinstra. Fjármark Tryggva Jóhannesar Guð- mundssonar á Bröttingsstöðum í Háls- hrepp í þingeyjarsýslu: Vaglskorið fram- an biti aptan hægra, vaglskorið aptan biti framau vinstra. Fjármark Helga þorkelssonar á Hóli á Tjörnesi í Húsavíkurhrepp í jpingeyjar- sýslu: Sneitt aptan biti framan hægra, hvatnfað vinstra. Fjármark Bjarnar Fr. |>orkelssonar samastaðar: Stúfrifað, hiti framan hægra, Sneiðrifað framan biti aptan vinstra. Fjármark f>orkels J. Helgasonar samast.: Fjöður aptan liægra, sýlt vinstra. Eigandi og ábyrgðarm.: Björn Jónssoii. Prentsmiðja Norðanf. Guðm. Guðmundsson.

x

Norðanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðanfari
https://timarit.is/publication/88

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.