Norðanfari - 10.05.1881, Side 4
— 68 —
9. Albert Jónsson . . . 5.41
10, Lúðvig Laxdal . . , 5.39
11. Theodor Jensen . 5.21
12. Anna Jóhannsdóttir . . 4.92
13. Esta Jensen. . . 4.78
N eðri deild:
1. Lára Sveinbjarnardóttir . . 5.47
2. Pálína Jónsdóttir . 5.43
3. Helga Jóhannesdöttir . 5.25
4. Aðalbjörg Hallgrimsdóttir . 5.06
5. Jónas Jónasson . 4.79
6. |>órgerður jpórgcirsdóttir. . 4.25
7. Jón Jóhannesson* . 4.23
F r j c 11 i r.
Brjef úr Skagafirði d. 5. apríl 1881.
Frjettir eru fáar að rita utan sem al-
mennt yfir gengur, einstök harðindi af jarð-
hönnum með grimmdar hörkum, sem optast
eru frá 20—30, stig á R. og þeir mælirar,
sem eigi taka meir en 28° hafa opt staðið
hotn. Nú er hjer um sveit húið að gefa full-
orðnu sauðfje og hrossum síðan 8. nóvember
í haust og lömhum um veturnætur, eða svo
er pað, hjer hjá mjer, en aíleiðingarnar, eru
líka orðnar bágar, mciri partur manna kom-
inn í lieyþrot sumir farnir að skera kýr og
hross, sumir að koma fyrir eða kaupa hey,
einstakir að selja af fjenaði sínum, og einn
búinn að skera megnið af kindum sínum, og
haldi þessu áfram til Páska, má svo að orði
kveða, að allur fjöldi manna verði þá þrotnir
með heybjörg fyrir fje og hross, að undan-
teknum fáum mönnum, er því hryggilegt að
horfa á framtíðina, ef eigi rætist því fljótar
úr fyrir mönnum. Almenn kvefveikindi liafa
gengið í vetur og mikill kíghósti í börn-
um og sum hafa dáið, en lieilbrigði almennt
að öðru leyti, þó hafa einstakir legið en fáir
dáið, utan hóndinn Björn Finnson á Skörðu-
gili syðra, er andaðist fyrir stuttu síðan,
eptir langa legu, hann var einn af þeim
mönnum, er ekki var mikill á lopti fyrir
heiminum, en íðil ráðvandur, trúr ogtryggur
og sá fyrir heimili sínu vel, konu og börn-
um, en þó jafnan heilsutæpur.
Af sýslufundi Skagfirðinga liinnl6.—17.
febrúdr næstl. er það að segja, sem mest
eru nýmæli, að þá uppástungan frá Amts-
ráðinu kom fram um búnaðarskóla fyrir
Skagafjarðar- og Húnavatnssýslur, fóru menn
að skoða liuga sinn um liæfilega jörð til
þess augnamiðs, og varð sú niður staðan, að
kaupa Hóla í Hjaltadal fyrir búnaðar skóla-
setur, en þá var komið í orð, að gildur
bóndi í sýslunni færi að kaupa Hóla og búa
þar eptirleiðis, var því afráðið að fara til
hans og fá uppldppt því kaupa tiltali, sem
hann snerti, en til þess þurfti að þægja hon-
um og útvega aptur jörð til kaups, en hvort
Húnvetningar vilja verða með Skagfirðingum
í þessu fyrirtæld er enn óljóst.
Annað nýmæli var, að koma upp kvenna-
skólahúsi á Kristfjárjörðunni Ytra-Vallholti,
ef yfirvöldin leyfa pað, og búið að panta til
hússins utanlands.
Einnig er ráðið að Sauðárhreppsmenn
komi upp barnaskóla á Sauðárkrók, og eru
þeir búnir að lofa talsverðum fjártillögum til
þessa augnamiðs. — Ákveðin er gripasýn-
ing 10. maí á sama stað og í fyrra.
Búfræðing ætlar sýslan að kosta næst-
komandi sumar til að leiðbeina mönnum í
*) 6 börnin voru lasin og voru eigi við
prófið , tvö úr efri bekk og fjögur úr
neðri bekk.
jarðabótum og búnaðarframförum; einnig var
rætt um fjársölu til Englendinga á næst-
komandi hausti, ef fje verður þá til, er miss-
ast má, því nú er ískyggilegt með fjárhöld
almennings. Líka var rætt um prentun
Markaskrár fyrir sýsluna á næsta sumri, á-
samt þeim almennu málumer vanalegakoma
fyrir á sýslufundum, ásamt fjölda mörgum
smámálum er jeg eigi greini, var eitt kæru-
mál úr Holtshrepp, risið út af útsvörum.
Brjef úr Strandasýslu dags. 3. marz 1881.
eSíðan jeg reit yður seinast hafa hald-
ist stöðug harðindi og hörkur, hjer var ó-
munanlegur hörku og hríðarbylur sunnudaginn
30. jan. þ. á., varð þá víða ekki vitjað húsa,
sumstaðar ekki farið í fjós, þetta veður hefir
víða ollað mildu tjóni, t. a. m. á Melgras-
eyri við ísafjarðardjúp, (sem áður er getið í
blaði þessu), einnig á Núpskirkju í Dýrafirði
og önnur kirkja er skekktist. Hey tók ofan
að veggjum að Beykjanesi á Barðaströnd.
Frostin hafa verið svo mikil, að í flestum
baðstofum hefir frosið, einn bær var yfirgef-
inn fyrir kuldasakir. Blota gjörði 19. febr.
en enginn hagi kom, svo að allar skepnur
standa stöðugt inni. Flestir hjer í Stranda-
sýslu munu standa með hey sín til sumar-
mála, og nokkrir lengur. Margir sagðir liey-
tæpir í Saurbæ í Dalasýslu. Heilbrigði er
almenn. Nýlega varð unglingsdreingur úti í
Geiradal í Barðastrandarsýslu, sem er ófund-
inn enn eptir tveggja daga leit. Hákarlsaíli
er mikill í Eyjum upp um ís. Engin höpp
liefur þessi ís fært oss, hvorki við nje hvali.
Skepnuliöld víðast góð og fremur horið lítið
á bráðafári.
Úr Húnavatnssýslu.
Kvefsótt hefir gengið hjer og er enn á
ferðinni, en ekki hefir sótt sú verið mann-
skæð að mun, lungnabólga hefir og gjört
vart við sig á nokkrum stöðum og sálgað fá-
einum mönnum; taugaveiki, sem kom upp
vestur í sýslunni í vetur, mun nú út dauð
og þakka menn það öruggri framgöngu Júlí-
usar læknis, að hún náði eigi að dreifast út;
mest kveður að veikindum á börnum, hinn
svo kallaði kíghósti liefir gengið um ogdeytt
fjölda barna án þess læknar hafi getað hjálp-
að, nú liggja t. d. 7—8 börn á börunum 1
einni lítillisókn. Nýlega er dáinn Magnús
Magnússon, óðalsbóndi að Holti í Svína-
dal, hann var góður búhöldur og merkur
maður í sinni sveit. — Einnig er nýsáluð
lieiðurskonan Jóhamia Jónsdóttir að
Kagarhóli, hún var hin mesta rausnarkona
og meðal helztu kvenna í því byggðarlagi.
Barnaveiki og kíghósti kvað geysa um
Skagafjörð og deyða fjölda barna.
Auglýsingar.
— Lýsing á óskilafje er selt var í Skaga-
fjarðarsýslu haustið 1880.
í Holtshrepp:
1. Hvíthornóttur hrútur veturgamall, mark:
Sýlt hægra, hamrað vinstra.
2. Hvíthornóttur lambhrútur, mark: Sneitt
biti aptan hægra, tvistýft framan biti
aptan vinstra.
í Hofshrepp.
1. Svartur sauður tvævetur, mark: Sneitt
framan biti aptan hægra, sneitt aptan
vinstra.
2. Hvíthornótt gimbur veturgömul, mark:
Stúfrifað biti framan fjöður aptan hægra,
sneitt aptan vaglskorið framan vingtra.
3. Hvítur lambhrútur, mark: Biti, aptan
hægra, stýft vinstra. •
4. Hvitur lambhrútur, mark: Tvístýft fr.
biti apt. hægra, fjöður apt. vinstia.
5. Hvit lambgimbur, mark: Sneitt fr.
hægra, sfcýft vinstra.
6. Hvitur lambhrútur, mark: Sneitt apt.
hægra, blaðstýft apt. biti fr. vinstra.
í Hólahrepp:
1. Hvítur lambhrútur, mark: Sneitt apt.
hægra, gagnbitað vinstra.
2. Hvít lambgimbur, mark: Stýft hægra,
sýlt biti apt. vinstra.
3. Hvitur lambhrútur, mark: Tvírifað i
stúf fjöður framan hægra, tvístýft apt.
vinstra.
4. Hvítur lambhrútur með sama markí.
5. Hvítur lambhrútur, mark: Stýft vagl-
skorið fr. fjöður apt. hægra, blaðstýft
apt. vinstra.
6. Hvítur lambgelclingur, mark: Sneitt
fjöður fr. bíti apt. hægra.
7. Svartflekkótt lambgimbur, mark: Geir-
stýft hægra, sneitt fr. vinstra.
1 Yiðvikurhrepp:
1. Hvítur lambhrútur, mark: Sneiðrifað
apt. biti fr. hægra, tvístýft apt. vinstra.
2. Hvitur lambhrútur, mark: Sýlt fjöður
fr. hægra, gat vaglskora apt. vinstra.
3. Hvitur lambgeldingur mark: Sneitt fr.
hægra, sýlt gagnbitað vinstra.
4. Hvitur lambgeldingur, mark: Sneitt
apt. gat hægra, miðhlutað biti fr. vinstra.
5. hvíthornóttur sauður veturgamall, mark:
Sneitt apt. fjöður fr. hægra, sneitt fr.
vinstra,
1 Akrahrepp:
1. Hvíthornótt ær tvævetur hornskellt, mark:
stúfrifað hægra, stýfður helmingur apt.
vinstra.
2. Grámórauð lambgimbur, mark: Bitar 2
fr. liægra, sýlt biti fr. vinstra.
í Lýtingstaðahrepp.
1. Hvítur sauður tvævetur, mark: tvístýft
biti aptan hægra, tvírifað í sneitt aptan
vinstra. Brennimark: P. Pálmas.
2. Hvit lambgimbur mark: Hvatt gat lögg •
fr. hægra, hvatt vinstra.
3. Svartur lambgeldingur, mark: Gat hægra
stýft biti fr. vinstra.
4. Bleikalótt hryssa, þrjevetur, óafrökuð,
hringeygð á báðum augum,mark: Sneitt
fr. hægra.
í Staðarhrepp:
1. Hvithníflóttur sauður trævetur, mark:
Líkast stúfrifað gagnbitað hægra, tvirifað
í stúf vinstra.
2. Hvíthornöttur sauður veturgamall, ínark:
Miðhlutað i sneitt apt. gagnbitað hægra,
sneiðrifað apt. vinstra.
3. Hvithornótt gimbur veturgömul, mark:
Sneiðrifað biti fr. hægra, blaðstýft fram.
bragð apt. vinstra.
4. Hvíthornótt gimbur veturgömul, mark:
Biti apt. hægra, stýft gagnbitað vinstra.
5. Hvítur lambhrútur, mark: Sneiðrifað
fr. hægra, biti framan vinstra.
í Skefilstaðahrepp:
1. Hvithyrndur sauður veturgamall mark:
Hvatt hægra, blaðstýft apt. vinstra.
2. Hvíthníflótt gimbur veturgömul, mark:
Miðhlutað í stúf vaglskorið apt. hægra,
hamrað vinstra. Brennimark: B. G. S.
3. Hvíthyrnd ær mark: Hvatt biti fr.
hægra, tvístýft fr. biti apt. vinstra.
4. Hvítur lambgeldingur, mark: Gat hægra,
biti apt. vinstra.
5. Hvitur lambhrútur, mark: Stýft biti fr.
hægra, stúfrifað gagnbitað vinstra.
6. Hvithyrnd lambgimbur, mark: Stýft
fjöður fr. hægra, sneitt biti apt. vinstra.
7. Svartbotnótt lambgimbur, mark: Sneitt
fr. hægra.
8. Hvítur lambhrútur, mark: Tvístýft biti
fr. hægra, miðhlutað vinstra.
í Seiluhrepp:
1. Hvítur sauður veturgamall, rnark: Sneitt
lögg fr. hægra, stýft vinstra.
2. Hvitur sauður veturgamall mark: Blað-
stýft apt. hægra, vaglskorið fr. biti apt.
vinstra.
3. Svört gimbur veturgömul, mark: Hamr-
að hægra, tvírifað í hvatt vinstra.
4. Hvít lambgimbur mark: Tvirifað í sneitt
fr. hægra, tvírifað i sneitt apt. vinstra.
peir sem sanna eignarrjett sinn, 4
óskilafje þessu, geta vitjað verð þess, að frá-
dregnum kostnaði, til næstkomandi septem-
berloka 1881.
Skarðsá 2. april 1881.
E. Gottskálksson.
Eigandi og ábyrgðarm.: líjörn Jónsson.
Prentsmiðja Norðanf. Guðin. Guðmundsson.