Norðanfari


Norðanfari - 15.11.1881, Blaðsíða 3

Norðanfari - 15.11.1881, Blaðsíða 3
Gullmyntir er gengu manna á milli voru sag- aðar sundur eptir miðjuin fletinum, skafnar að innan og fylltar með platínu og síðan ná- lívæmlega lóðaðar saman, svo að myntin lijelt pyngd sinni, lögun og hljóm, og var eigi auð- velt að svikin kæmust upp. í Níkaragúa var sapóeplið haft fyrir viðskiptameðal og hafði tvöfalt gildi við kakaobaun. Enn pá er kakao- haunin höfð á mörgum mörkuðum í Mið- Ameríku sem peningar. Humholt segir, að ú peim tíma er liann ferðaðist í Mexikó gilti «medióinn» eður hálfur real jafnmikið og 72 kakaóbaunir. Hið eiginlega gangverð pess- ;ira hauna lagar sig eptir uppskerunni og ept- ir pví hvað mikið er til af peirn. |>að er almennt að káríurnar, smáir postu- líns skelfiskar, eru hafðir fyrir peninga. J>að aflast mjög mikið af peim í net á Maldíoun- um og eru pær fluttar út frá Bornbay og Kalkútta. 5 púsundir af peim hafa sama gildi og rúpía (dálítið meira en 2 krónur). jpegar á 13. öld, pegar Marcó Póló pjónaði við liina mongólsku hirð, gengu pær manna á milli par og í hinu kinverska skattlandi Tunan. A 16. öld gengu enn pá heilir skips- farmar af káríum til Bengalen og Siam, og Portúgalsmenn fluttu pær inn til Blökku- mannapjóða í Beniu og Kongo. í brezka Indlandi og í gíam eru postulínsskelfiskar al- mennt hafðir fyrir smápeninga. J>eir eru líka hafðir til skrauts hinum innfæddu, éink- um í hálsbönd. (Niðurlag síðar). Feiðir mínar og' vera í Danmörk 1877— 81. (Af Guðmundi Hjaltasyni). (Kramhald). I Noregi eiga skólar pessir erviðara uppdráttar. Trúarstefna Norðmanna er mjög ströng og opt nokkuð hörð viðureignar, og af pví að Grundtvigsmenn gjöra svo mikið úr sögU) skáldskap, fróðleik og frelsi, og framhalda öllu pessu á skólum sínum, pá potti peim norsku trúmönnum að skólar pessir væru of mjög veraldlegir, pótt sum- um öðrum pættu peir of andlegír! En nú eru samt margir af hinum norsku trúmönn- unj farnir að sjá, að sá kristilegi andi sem e]ukennir flokk Grundtvigs, er harla vel lagaður til þess að sameina hið himneska eg jarðneska í fagurri fyrirmynd og fer Pessvegna góðan meðalveg á milli ofurtrú- armanna, sem opt álíta allt veraldlegt sem verk hins vonda, og peirra vantrúuðu, sem ueita tilveru guðlegs og andiegs heims. I Svípjóð hafa skólar þessir nokkuð annað fyrirkomulag. en alveg hið sama mark og mið og hinir norsku og dönsku, peirhafa ei próf nje fyrirsetningar en fleiri og strang- ari reglur en hinír, þeir leggja meiri stund- an á pá náttúrufræðislegu en aptur minni a Þá andlegu menntun heldur en peir dönsku °g norsku skólar, peir hafa (held jeg) enga íast ákveðna eða sjerstaka trúarstefnu, en íaía samt átt í talsverðu stríði við hleypi- dóma höfðingja 0g alpýðu pó ekki hfefi kveð- ið eins mjög að pvt eins 0g j Noregi eða Danmörk. Fyrirlestrar eru eins viðhafðir í Svípjóð við skólana, og annars er það Grundtvig mest að pakka, að hið munnlega orð hefir fengið meira rúm og betra álit í nor- rænum skólum yfir höfuð en áður hefir fer- þegar jeg einhverntíma seinna rita um ferð og veru mína í Sviþjóð, skal jeg na- kvæmlegar lýsa skólum þeirra. 6. Hinn stækkaði skóli í Askov 1878— 79. þareð lýðháskólarnir hafa fjölgað og — 7 — ýmsir barnaskólar („barnafriskólar'1)* fæðst út af þeim, pá varð sú ósk látin í ljósi af mörgum, að æskilegt væri að fá einhvern aðalskóla, sem gæti verið einskonar mið- punktur fyrir liina aðra, svo að þeir er hefðu verið á þeim, en óskuðu frekari menntunar, gætu fengið hana hjer, og eins að peir er vildu verða kennarar við „barnafrískólana“ og lýðháskólana eða vildu verða prestar í þehn frjálsu dönsku kirkjum í Ameríku, gætu fengið menntup sína hjer. En mönn- um bar ekki saman um hvar pessi skóli ætti að vera. Grundtvig hafði óskað að hann yrði settur í Sórey og sömu ósk höfðu fleiri, en pó lauk svo, að menn byrjuðu hann í Askov 1. nóvember 1878. Skólastjórinn, sem varð sá sami og var par áður, heitir Ludvig Schröder, varð sjer strax úti um nýjan kennara, nátt- úrufræðing eínn er Pál la Cour heitír og auk hans voru hinir gömlu kennarar. Sama regla og tímaniðurröðun var við höfð og fyrra veturinn pó með peim mismun, að lærisveinum var skipt í 2 deildir eldri og yngri deild, og pað var einkum i eldri deild- inní, að pær nýju fræðigreinir voru kendar, pær voru: stærðarfræði, rúmmálsfræði, eðl- isfræði og stjörnufræði, voru haldnir fyrir- lestrar um allt petta, og síðan voru við- hafðar æfingar i öllu því pannig, að 1 timi 1 var til fyrirlesturs og annar til æfinga, auk pessa voru piltum gefin mörg dæmi til að leysa úr í þessum fræðum. þá var kend uppdráttarlist og heilbrigðisfræði, saganorð- urlanda og norræn goðafræði, íslenzk tunga. danska, pýzka, og enska, og par að auki gríska fyrir pá er vildu verða prestar í Ameríku, líka var gefið yfirlit yfir bæði sál- arfræði og siðafræði og par í fylgt skoðan Grundtvigs með stöðugri hliðsjón af siða- fræði Martensens. En fyrir pá er voru í yngri deildinni var kend saga, landafræði reikningur o. s. frv. eins og í fyrra, en samt gátu þeir er í henni voru fylgt með, bæði i biflíuþýðingum og norrænni goðafræði ef þeir vildu, og var enginn glöggur mismun- ur gjörður á milli kennslunnar í eldri og yngri deild. Svo var til ætlað, að pessi stækkaði (udvidede) lýðháskóli ætti að vera 12 mánuði fyrir hvern pilt, varð pvi kennsla pessi að eins- hálfnuð 1 maí 1879 þá er hinn fyri'i námstími hans endaði. A skóla pessum voru nú hjer um Í00 piltar, voru þeir svo fáir af pví að kennarar vildu ekki taka aðra á hinn stækkaða skóla en pá sem voru yfir 20 ára gamlir og sem að minnsta kosti höfðu gengið á áðra lýðháskóla i 2 missiri, hjer voru líka 3 norskir á skólanum. 7. Vera mín i Sljesvík sumarið 1879. þegar pessi skólavetur endaði, fór jeg til míns gamla húsbónda og góða vina Jep Einks og hjá honum var jeg 7 vikur í vinnu og fjell par pví betur sem jeg var par leng- ur, þaðan fór jeg til Hafnar og var par i 14 daga til pess að lesa islenzkar fræði- og fornbækur á bókasöfnunum og til að skoða pau mörgu og fróðlegu gripa og lista- söfn par. lærði jeg mjög mikið af pví, en að öðru leytí kynntist jeg Hafnarbúum mjög lítið nema 2 dönskum mönnum, sem voru kunningjar liúsbónda mins, peir útveguðu mjer ódýrt og gott húsnæði, veittu mjer að- göngu til bókasafna og hjálpuðu mjer í mörgu, en að öðru leyti bar par ekkert sjer- legt fyrir mig, og lýsing á þeim mörgu gripasöfnum o. s. frv., yrði hjer oflöng. þar eptir fór jeg suður í Sundeved, sem er sveit á suðurhlið Sljesvikur, parvar *) „Barnafrískólar11 eru einna einkennileg- astir af öllum Grundtvigskum skólum, en jeg sleppi peim hjer. jeg i vinnu í 3 mánuði hjá kunningja hús- bónda míns, hafði mjer oít áður dottið í hug að kjmna mjer ástandið par syðra, og gat nú fengið færi til þess. Hjer vur mjög frjótt og fagurt land og i mörgu líkt pví sem var í Heils; bær- inn stðð við læk í fögrum skógdal með fjörð að austan og sunnan, en mót vestri blasti Dyböl, hár höfði fyrir austan Elensborg. J>að er einmitt höfði sá, par sem að Danir áttu hvað harðasta orustu 1864, var pað sorgleg sjón fyrir alla pjóðlundaða Dani að horfa pangað og sjá varnarvirki sín i hönd- um fjandmanna, og pessir pjóðlunduðu Sljes- víkurbúar eru heldur ekki öfundsverðir. |>að er nú eitt af þeim hörmulegu ax- arsköptum Danastjórnar, að hún hefir vilj- að halda Holsetulandi en ekki taka boði þjóðverja þegar peir buðu þeim að halda pví sem danskt var í Sljesvik en skila því er pýzkt var, jafnvel pótt sagt verði, að pað sje þjóðverjum að kenna, að hið pýzka þjóðerni komst þar inn, en pess mega nú danskir og pjóðhollir menn gjalda og verða nú að lúta ánauðaroki hinnar pýzku stjórn- ar. þeir eru skyldaðir til að láta börn sín læra þyzku, já, að læra að sýngja lofsöngva um sína verstu fjendur, peir verða annað- hvort að ganga í herþjónustu pýzkra og og sverja þeim eið, að þeir, pó svo bæri undir vilji fúslega bera pýzk morðvopn á móti sínum eigin bræðrum, en vilji peir pað ekki, pá eru peir útlægir, og mega ekki án leyfis pýzkra setja fótsinn á sljesvíkska jörð, fyrr en þeir eru komnir á pau ár, að þeir eru úr herþjónustu, sem er, minnir, mig 36. til 40. árið, en pá mega þeir samt koma aptur til jarðar sinnar en hafa pö alls eng- ann atkvæðisrjett í opinberum málum fram- ar. Ekki mega þeir halda neina fundi nema pýzkir sjeu viðstaddir, og verði þeim á að koma með orð eða kvæði par sem eitthvert önotayrði til þýzkra er í, þá er þeim skip- að að hætta og fara út; láti þeir hið danska flagg sjást nokkurstaðar utan húss, pá eru þeir kærðir fyrir pað, pó eiga peir rjett á að prenta og lesa dönsk blöð enda pó pau sjeu móti pýzkum, líka eiga þeir rjett á að leysa sóknarband(?) og stofna danskar frels- iskirkjur, en verða pó að gjalda tíand til hinnar pýzku ríkiskirkju. Eins láta pýzkir presta pá er peir útvega þeim, (ríkiskirkju- prestana) kunna dönsku og messa á dönsku, enda eru þeir neyddir til pess, þareð al- þýðan skilur ekki pýzku, og sem betur fer reyna margir að týna henni níður pegar peir fara úr skólanum. Prestar pessir pýzku vanrækja ekki heldur að áminna pá til hlýðni við þýzkaog kalla frelsisbaráttu Sljes- víkurbúa óguðleg landráð, og sumir pví verr! eru svo vitlausir að trúa þeim í pessu. Enda er pað aumt að sjá hvað skeytingar- lausir sumir Sljesvíkurbúar hafa verið með að íreta pað litla frelsi sem pýzkir hafa pó gefið þeim, sem er að stofna fleíri frjálsar kirkjur og skóla par sem dönsk menntun gæti próast, pó pað kosti pá mikið fje, þar eð þeir verða eins að styðja þýzku skólana eins fyrir pvi, en jeg held að pað sje nú nokkuð farið að lagast, peir senda mörg af börnum si,num á danska skóla og mega pað. (Framhald). f Gruðmundur Franklín Gíuðmundsson á Mýrum í Dýrafirði. (Dáinn 1. maí 1881). Vorbjörtum morgni æsku á, ilblíðar pegar rósir falla, og dauðinn bregður banaljá,

x

Norðanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðanfari
https://timarit.is/publication/88

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.