Norðanfari - 13.04.1883, Síða 2
liann; pekkingin fer vaxandi og verður ekki
í molum.
Ycgir á íslamli.
Til eru æfagamlar lagaákvarðanir urn
vegabætur á íslandi. Vjer finnum pær í
Jónsbók, og rjettarbót Biriks konungs og víðar;
fýsir petta umhyggjusemi manna á þeirri tíð,
en arangurinn var allt minni, fjeð og krapt-
ana vantaði til vegagjörðar.
Hafa íslendingar snemma sjeð nauðsyn
þessa máls, og furðar oss því stórum, hve
hægt því liefir «mjakað» áleiðis, allan þann
tíma, sem það heíir haft fyrir sjer.
Enn hafa verið gjörðar lagaákvarðanir
fyrir vegamálið, en þó nefnum vjer að eins
þá síðustu og beztu 15. októb. 1875.
|>ykir oss veitingarvaldið örlátt eptir
efnum við fjárveitingu til veganna. Vísum
vjer, þeim er ekki vita, til þess í fjárlögunum
1876 og 1877, 1880 og 1881; enn fremur
má sjá þessa fjárupphæð, sem veitt heíir verið
í Tímariti hins íslenzka Bókmenntafjelags
1880. Má mikið með það fje gjöra, ef því
er haganlega varið.
Landsjóður borgar allan kostnað við fjall-
vegi, og ætlurn vjer að vera stuttorðir um
þá að sinni; þeir eru fáir loknir eða merki-
legir, nema í Vestur- og Suðuramtinu. |>eim
er að nokkru lýst í Timaritinu 1880, en þar
er að eins tilgreind lengd og lega þeirra, en
hvorki hæð eða breidd, efni í þeim eða aðferð
við verkið; köllum vjer það ónákvæmni; vjer
sjaum lengdiua og verðupphæðina og er
hvorttveggja mikið. Vjer efumst ekki um,
að vegir þessir sje gjörðir með þeirri vand-
virkni, sem mönnum er lagin hjer, en það
vitum vjer, að margt er oss betur geíið, en
starfá að fjallvegagjörðum. J>að þurfum vjer
að læra hjá þeim, sem bæði hafa meira vit
og reynslu við að styðjast, en vjer.
Vegir á íslandi ganga undir tveim aðal-
nöfnum: Fjallvegir og Byggðavegir. Byggða-
vegir deilast í tvennt, hreppsvegi og sýslu-
vegi. |>að gjald gengur nú til sýsluveganna,
sem 18bl var ætlað að ganga skyldi tii
þjóðveganna. Hreppavegir hafa sitt fje á
sama hátt og áður; mega menn bæði borga
það gjald í peninguin, og líka vinna af sjer;
mun og sjaldnast að menn geti komizt hjá
öðru hvoru, en því ver má fullyrða, að opt
er unnið að hreppavegum, einungis til mála-
mynda. jpeir vegir, sem svo eru gjörðir, bera
þess Ijósastan vott; þeim er «hrækt» upp í
mesta flýti, af þeim, sem lítið eða ekkert
skynbragð bera á slíka hluti. Menn gjöra
«brúarspotta»* á ári yfir keldu eða mýrar-
sund, má ske 20—30 faðma á lengd og 50
til 60 þuml. á breidd; þetta og annað eins
hervirki sjer maður á víð og dreif um dali
og sveitir á landi hjer; er ekki dæmalaust að
hryggir þessir haíi -oltið út af eptir 2 ár,
eða að það sje troðið ofan úr þeim eptir 4
ár. J>etta er fyrir óvandvirkni og flýtir, þá
er verkið er unnið; menn gjora það, af því
ekki verður hjá því komizt, en ekki af því
þeir sjái gagnið af vegum, væri þeir vel
gjörðir.
Hið sama er að segja um sýsluvegina,
þeir eru ekki vandaðir sem skyldi; það er
íenginn einhver og einhver, og fer verkið
fram undir forustu hans, hvort sem hann
heíir nokkurt vit á því eða ekki. |>etta er
skuld þeirra, sem eiga að stjórna vegagjörðun-
um, eða sjá um að þær komizt á.
J>að heíir opt mátt sjá, að vegir voru
*) |>að eru viða nefndar vegabrýr eða brýr.
ekki orðnir svo gamlir, þá þeir voru lagðir
niður, en aðrir nýir gjörðir skammt frá
hinum. Yjer fórum eitt sinn yfir Skjálfanda-
fljótsheiði, frá Hömrum í Reykjadal og að
Fljótsbakka; þótti oss kynlegt að sjá, þegar
vestur á heiðina kom. Liggur upphleyptur
og allgóður vegur yfir heiðina, sem auðsjáan-
lega hefir verið byrjaður að vestan og lagður
austur yfir. Má og sjá, að ei hefir sami
maður stjórnað verkinu til enda; austan á
heiðinni koma vegamót, sem sjálfsagt hafa
orsakast af meiningamun þeirra, sem stjórn-
uðu verkinu. Sá, er fyrr hafði stjórnað, tók
stefnu norðar, en sá síðari sunnar. Liggja
því vegirnir samhliða, þó ekki «parallelt», á
æði löngum spöl, unz annar þrýtur.
Ætlum vjer að þar hafi farið að for-
görðum, eins vors vinna, er ekki sje of metin
á 200 krónur.
Svipuð dæmi má fá víða, þótt þau sje í
minni stíl; kemur þetta af fljótfærni þeirra,
sem leggja dóminn á, og getur verið, að síð-
ari ályktunin sje betri, og sje samfara vax-
andi þekkingu, en þó getur það ekki verið
því að þakka, þegar stutt líður á milli hverrar
hugsunar og ályktunar. J>að þarf að grand-
skoða allar kringumstæður, áður nýjum veg
er markaður bás; hann þarf að leggjast þar,
sem líklegast þykir að eptirkomendurnir vilji
lialda honurn við; slíkt verður samt ekki
sagt með vissu, en rannsókn og athugun
leiðir til nokkurrar vissu, og pví skyldi það
ætíð fast í huga manna, eða fastara en skjót-
ráðnar og heimskulegar ákvarðanir; þar þurfa
vegirnir líka að leggjast, sem þeir eru óhult-
astir fyrir árásum náttúrunnar; það kemur
mikið undir þvi; viðlialdið er jafnan dýrt, og
það þolum vjer ekki fátæktar vegna. Yjer
þurfum að byggja trútt í fyrstu, hyggja
mest að varanleiknuaj, en vera þolinmóðir,
þó ekki fáist allt upp strax og vjer hugsum
það.
Yjer höfum lieyrt, að J>ingmannavegur
yfir Vaðlaheiði sje af lagður, en byrjað sje á
öðrum nýjum; þekkjum vjer pláss það, sem
honum er ætlað að liggja um, og er það
fyrir margs sakir hyggilegt og hentugt, að
leggja veginn svo; þá verður sleðum ekið
eptir hönum á vetrardag, þá er hann er ekki
auður; liann verður og ailajafna óerfiðari en
sá gamli, en dýr verður liann, og traust þarf
að treysta að honum, ef endast skal. — _það
sanna þeir, sem lifa -svo lengi, að nýji veg-
urinn tekur upp margar krónur árlega, til
viðhalds sjer. þykir oss ærið ísjárvert, að
afleggja þann gamla, þó hann þyrfti mikilla
umbóta við. J>etta er vor meining, og
bönnum vjer enguin að hafa aðra, eða
hrekja þessa. Vjer verðum að minuast fá-
tæktar vorrar, og «bruðla» ekki peningum
fyrir skör fram*. Vegina verður að vanda í
fyrstu sem unnt er; það er betra að hafa þá
færri og betri. Efnið hlýtur víða að ráða,
og er ekki allstaðar gott; en á mörgum
stöðum baggar ekki illt efni, að vegir eru
ófærir eí úrkomu sumur ganga. ]pað er því
að kenna, að þeir eru kýfðir með leir og
mold, er ýmist leysist upp í vatni, eða vind-
urinn feykir á burt þegar þurkar ganga. |>að
þarí að bera möl eða smásand á vegina, og
*) jpað köllum vjer opt óþarfa, þá er ein-
stöku mönnurn er veittur styrkur til
ýmislegs, sem þeir gætu sjálfir risið
undir, eða eru ekki verðir fyrir að þyggja;
mönnum eru veitt verðlaun fyrir lítin
garðstúf, ef þeir bera sig eptir þeim.
Vjer viljum aftaka öll eptirlaun; pau
eru óeðlileg með öllu, sem og hver annar
styrkur, Lifum af voru eigin, rneira
eigum vjer ekki.
mundi það fljótt borga sig, þó mikið væri
fyrir liaft. Á sumurn stöðum verður því
ekki komið við, en mjög víða er það einskis-
vert, og er þó ekki gjört. Vjer liöfum
margsinnis sjeð, að vegirnir eru gjörðir á
þann hátt: að tveimur þverhnausalögum er
hlaðið upp á löngu svæði, síðan er fyllt á
milli laganna með leir eða mold, og kýft
með því sama. Já, það er ekki lengri lýs-
ing; vegurinn er búinn. Svo þegar rigningar
ganga, vaða hestar í «brýnnar» það sem þeir
komast, og ber til að þær verða ekki farnar.
Sýnist vera nauðsynlegt, að gjöra þetta traustar,
bæði með því að hlaða veginn allan að innan
úr góðu efni (eins góðu og fæst), og bera
möl á þá það er líka tíðast að vegir eru
veggbrattir að utan, og velta svo í sundur,
eða barmarnir út, þegar gata er gengin í þá,
þetta er helzt þá þeir eru mjóir; vegirnir þurfa
að flá líkt eins og garður sem hlaðinn er fyrir
vatn. «Lærið, og munuð þjer gott af hljóta*.
(Aðsent).
Nokkur atriði
úr sögu íslands, er sýna stjórnaraðferð og af-
skipti útlendra stjórnarherra Danakonungs
yfir íslandi.
(Niðurlag, sjá Nf. nr. 53—54. f. á.).
Ifristján III. konungur sendi hingað upp
trúnaðarmann sinn Iíristófer Hvítfeld
frá frándheimi með tveimur herskipum 1541,
til að krefja skatt af klerkum, hann ljet hand-
taka Ögmund Skálholtsbyskup, er hann var í
kynnisferð hjá Ásdýsi systur sinni á Hjalla í
ölfusi, ginnti um leið út af byskupi jarðir
lians og dýrgripi með því að heita honum
frelsi, en sveik byskup um það, og flutti
liann fanginn og fáklæddann til Danmerkur
saina ár, áttræðan að aldri, hvar byskup dó
skömmu síðar.
Eins og kunnugt er, ljet Kristján
skrifari (umboðsmaður Laurentius Mule, hirð-
stjóra) 1549, hálshöggva Jón Arason byskup og
þá syni hans Björn og Ara í Skálholti 1550,
án dóms og laga, því byskup og bræður, þoldu
eigi valdboð danastjórnar með hinn nýja sið,
en einkanlega aðra stjórnar aðferð hennar og
afskipti landsins.
Árið eptir komu inn umboðsmenn kon-
ungs, Christófer Trondsen af Ebeltoftog
Axel Juul, þess erindis, að íiytja þá feðga
utan til Danmerkur, er eigi varð af, en í
staðinn ræntu þeir undir konunginn fjármun-
um þeirra feðga, er var ærna fje í föstu og
lausu; uin leið rupluðu þeir dómkirkjurnar á
Hólum og i Skálholti, dýrustu munum og
gripum þeirra, gullkaleiknum frá Skálholti,
og þeiin frá Hólum er stóð 9 merkur, 1368
merkur silfurs, 84 lýbskar merkur, hálft 4.
þúsund lóð silfurs og 27 merkur gulls m. fl.,
í fjebætur eptir Christjan skrifara, urðu marg-
ir að leysa sig út með skreið og silfri.
Herluff Daae höfuðsmaður (1606),
sýndi ýmislegt ofríki á landi hjer, meiri hátt-
ar sem minni, hann var og grunaður um, að
hafa byrlað Oddi Einarssyni, byskupi, ólyfjan,
í samdrykkju á Bessastöðum 1616.
Galdrabrennurnar voru innleiddar hjer,
um 1625, er stóðu yfir nálægt 60 árum, var
margur saklaus galdri borinn og á bálið bor-
inn, ásamt mörgum fornum Og góðumritum,
er nú mundu þykja merkileg og til upplýs-
ingar sögunni.
Pros Mundt liöfuðsmaður (1633), tók
undir sig allar eignir Ólafs Pjeturssouar, um-
boðsmanns, svo fyrir ofríki þetta, hlaut Ólaf-
ur að víkja af landi brott, til Svíþjóðar.
Árið 1679, var boðið af konungi aðkalla