Norðanfari - 15.11.1884, Side 4
96 —
eun þá, en nú hafa nokkrir raenn jáfað það, |
að þeir gætu ekki ímyndað sjer, að allir
andar þeirra, ljetu svo^fáa og fátæka menn,
berjast raeð bugrekki fyrir jafn-þýðingarmiklu
máli, án allrar hjálpar frá öðruin“.
ÚR BRJEPI ÚR YOPNAPIRÐI 5/10—84
„Hjeðan cru nú ekki aðrar frjettir, en-
þær, sem þegar skulu tilgreindar í sem fæst-
um orðum:
„Sumaríð hefir mátt heita að hafi farið
vel með menn að mörgu leyti, grasvöxtur
varð meiri enn í meðallagi og nýting ágæt,
sem ekki varðar litlu fyrir almenning. Síðan
urn Höfuðdag hefir tíðarfarið allajafna verið
miklum breytingum háð,ýmist ákafir stormar,
stórkostlegar rigningar og snjókrapaveður til
fjalla. INú sem stendur er komin svo mikil
fönn á fjaligarðinn, að fjalla rnenn hafa ekki
getað komið sláturfje sínu lringað, en vonandi
að úr þessu bætist bráðum aptur. Pjenaður
reynist litið betri en t meðallagi, þótt sumarið
sjálft geti ekki talist eðruvísi en fremur gott.
Fjárprísar eru hjer 22 aura pd. í 40 pd.
kropp, 19 aura í 37 pd. kropp og 17 i 32
pd. kropp og þar fyrir neðan til 15 a. Mor-
pundið 30 aura, gærur frá 3 kr. ofaní 1 kr.
25 aura. Fiskafli heíir verið hjer að mun
minni hiá mörgum eu næstl. ár og eru sjer-
staklega til þess 2 orsakir, fyrst það, að
gæftir hafa verið miklu sjaldgæfari en umliðið
ár og aflinn í sjálfu sjer að mun minni, enda
þótt hans hafi verið leitað af rniklu kappi,
enda hefir úthald verið hjer miklu meiraetrn
áður, og lrætt við að fjöldinn sje nokkur or-
sök i því að árangurinn er minni en áður.
Frá Seyðisfrrði eru nýkomnar frjettir urrrað afla-
brögðin sjeu þar fremur treg mcðfram afþvi
að engin sild hefir aflast parísurnar. Norð-
rnenn þá farnir þaðan“.
ÚR ÖÐRU BliJEFI ÚR YOPNAF. 20/10-84.
„Fjártakan hefir verið hjer með langminnsta
móti, sem hún nokkru sinni hefir verið áður,
margir hafa borið það fyrir að þeir hafi heyað
svo vel, að þeir mættu ekki lóga fjenaði sín-
um, annars komi þeir aldrei neinum stolni
fyrir sig“.
ÚR BRJEFI ÚB REYKJAVÍK 2I/10-84'
“Illviðra tíðin er cnn hin sama og áður,
svona ætlar sumarið að enda. Almenn heil-
brigði. Fiskvart hefir orðið.
„Breiðabólstaður á Skógaströnd, veiltur
sjera Eiríki Gíslasyni á Lundi í Lundareykja-
dal og Borg á Mýrum prestaskóla candidat
Árna Jónssyni“.
ÚR BRJEFI AF MELRAKKASLJETTU
25/io—'84.
„Hjeðan er ekkert markvert að frjetta.
Tíðin var seinni hluta sept. ákallega storma-
og illviðrasöm. Haust skip kom til Raufar-
hafnar liinn 30. sept. þ. á. og silgdi aptur
17. þ. rn. með rúmar 270 tunnur af kjöti,
byrjaði þó fjártaka með seinna móti vegna
illviðranna, sein gengu urn þær mundir. Síð-
an 4, okt. hefir líðin nrátt heita upp á það
bezta, og nú sem stendur er alveg snjólaust
og blíðviðri á degi hverjum. Afli er nokkur
enn þá, þó fiskurinn sje smár“.
UR BRJEFI ÚR SKAGAFIRÐI 28/10—84.
„Frjetlir fáar. Tíðin yfir höfuð í sum-
ar góð allt fram undir gongur, töðu fall af
túnum með bezta rnóti i sumar, og nýting
góð á henni, grasvoxtur á engjum með betra
móti, að undanskildum einstaka flæðiengjum,
þar sem vatn lá oflengi á; heyskapur yfir
höfuð í betra lagi, þó varð hnekkir talsverð-
ur, að suðveslan ofsa veðri 11. sept., því al-
menningur átti þá mikið úti uppsætt, sem
allt fór um koll og tapaðist talsvert; í því
veðri drukknuðu 2 drengir frá Hofða á Höfða-
strond, en -sá þriðji bjargaðist á kjöl, hann
var elztur. J>eir, sem voru búnir að hirða
hey sín fyrir göngur, er nokkrir voru, höfðu
þau með góðri nýtingu, hinir er úti áttu
meira og minna, komust í mestu vandræði
að svæla þcim inn illa verkuðum, því aðsíð-
an í göngum hafa verið dæmafáar úrkomur
hjer í Skagafirði af snjó og vatni af suð-
veslri, svo allt hefir ætlað á flot að fara og
getur varla hjá því farið að í hlöðum og
heyjum með hita hafi ekki nokkuð skemmst;
eldiviður hjá mönnum mjög illa útleikinn og
verða af því vandræði. 2 menn af suðurlandi
komu fyrir stuttu norðan af Seyðisfirði, er
ætluðu suður, 18. þ. m. komu þeir að Gongu-
skarðsá og lentu á versta vaðinu á henni,
lögðu út í hana, og sá sem var á undan fór
flatur þá hann var nærri kominn að landi og
drukknaði, en hinn snjeri aptur til baka, sá
sem fórst var af Seltjarnarnesi og fannst dag-
inn eptir. Mjög er aflalítið af fiski á Skaga-
firði, og það sem er heldur smátt. Ekki er
enn komið skipið til Popps verzlunarinnar,
og eru menn því farnir að verða hræddir um
það, færi betur að úr því rætlist því margir
eru kornmatarlitlir“.
ÚR BRJEFI ÚR HÚNAYATNSSÝSLU
30/io—84.
„Litlar eru frjettir að segja. utan bæri-
lega vellíðan flestra bjer 1 sýslu, utan, við
sjóinn er mjög fiskilítið, nema á Skagaströud
hefir aflasl í allt sumar að nokkrum mun, og
enn afla þar sumir og úlí Nesjum er nú sagt
bezti fiskafli. í sumar var heyskapur í bezta
lagi, bæði hvað gras og nýtingu snerti þang-
að til um göngurnar að brá til illviðra og
íjarska úrkomu, svo jeg lield að hjer hafi
drepið hey sumstaðar og hjá stöku mönnum
er talsvert af þeim undir snjó enn, bæði upp
á Laxárdal og í kringnm Yatnsnes og í Vest-
urhópi. Nú um tíma hefir verið frostasamt og
nú seinustu dagana 10—12 slig á Reaumur
og valnsföll flest nú þakin með hestís. Vest-
urhópsvatn var allt rennt i gærdag, og er
það nýlunda, að þvílíkt vatn skuli leggja svo
snemma, því að í því, er aðfall og útfall.
Mjög hefir verið kvillasamt víða hjer í snm-
ar. A Torfalæk hafa veikindi gengið hjer í
allt sumar meiri og minni, en nú er þeim
loksins farið að linna, svo allir eru þar komnir
vel á fót og enginn þar dáið. A bænum
Öxl hefir bóndinn þar Sigurður að nafní legið
þar í allt sumar, til þess hann 25. f. m. and-
aðist éptir langsamar þjáningar af sullaveiki.
og alla æfi mjög lasinn til heilsu og lá opt
stórlegur, en hann var mjog ráðdeildarsamur
og umhyggjumikill maður þá hann gat nolið
sín fyrir lasleika, enda var liann haldinn með
beztu búholdum í Sveinstaðahrepp, ef ekkisá
bezti. Einnig sálaðist, í morgun kona J>or-
steins bónda Jónssonar á Hæli að nafni Helga
Guðlaugsdóttir, sem hefir fleiri ár þjáðsl af
ókennilegu heilsuleysi, og leitað fleslra lækna
og þeir ei getað hjálpað henni. Mikið er
hjer nú tíðrætt um íjárkláðann, og var því
fje skoðað í öllum fjárrjettum í baust, enn ei
fannst skaðl,egur kláði neinstaðar, þessar skoð-
anir eiga að fara frain í hverjum mánuði
fyrst frameptir vetrinum. J>ess er óskandi,
að sá vogestur komi ekki til okkar aptur“.
Ýi'mismeyjar á Laugalandi
1884.
Aslaug Indriðadóttir frá Espihóli, Eyjafirði.
Asta fórarinnsdóttir frá Víkingavatni, Keldu-
hverfi, |>ingeyjarsýslu.
Aðalbjörg Sigurðardóttir frá Brúnagerði,
Fnjóskadal, fingeyjarsýslu.
Anna Jónsdóttir frá Mýri, Bárðardal |>ingeyjar-
sýslu.
Anna Kristjánsdóttir frá Úlfskæ, Bárðardal,
Þ’ngeyjarsýslu.
Gróa Eyjúlfsdóttir frá Hrafnsgerði, Fellum,
Múlasýslu.
Guðný Bjarnadóttir, frá Birningsstöðum, Ljósa-
vatnsskarði, |>ingeyjarsýslu.
Guðný Jónsdóttir, frá Grænavatni, Mývatnsveit,
þingeyjarsýslu.
Guðrún Jónsdóttii frá Hafralæk, Aðal-Reykjadal,
þingeyjarsýslu.
Guðrún Sigurðardóttir, frá Hólum Laxárdal,
fingeyjarsýslu.
Helga Stefánsdóttir. frá Garði, Mývatnssveit,
þingeyjarsýslu.
Hólmfríður Bjarnadóttir frá Birningsstöðum
Ljósavatnsskarði, pingeyjarsýslu.
Hólmfríður Jónsdóttir, frá Seyðisfirði, Múla-
sýslu.
Hólmfríður Magnúsdóttir, frá Lundabrekku,
Bárðardal, pingeyiarsýslu.
Jóhanna Hallgrímsdóttir, frá Vakurstöðum,
Vopnalirði, Múlasýslu.
Jónina Stefánsdóttir, frá Skjöldólfsstöðum,
Jökuldal, Múlasýslu.
Kristbjörg Sigurðardóttir, frá Brúnagefði,
Fnjóskadal, þingeyjarsýslu.
Nýbjörg Kristjánsdóttir frá Vatnsenda, Ljósa-
vatnsskarði, pingeyjarsýslu.
Pálína Guðjórisdóttir frá Ljótsstöðum, Laxár-
dal, þingeyjarsýslu.
Sigríður Sigvaldadóttir frá Kaupangi, Eyja-
firði.
Sigurlaug Jónsdóttir frá Fornastöðum, Fnjóska •
dal, þingeyjarsýslu.
Stefanía Jónsdóttjr frá Dvergasteini, Seyðis-
firði, Múlasýslu.
Stefania Stefánsdóttir frá þórarinnstaðaeyri
við Seyðisfjörð.
Valgerður Jóhannesardóttir frá Álundi, þistil-
firði,1 þingeyjarsýslu.
Auglýslug.
Peir. sem eru mjer enn skyldug-
ír fyrir Noröanfara og íleira frá undan-
förnum árum, óska jeg að vildu borga injer
það semallra fyrst, í þessum eba næsta
mánubi að hverjum fyrir sig er unnt, helzt
með peniogum, ebur -innskript í reikning
minn hjer á Akureyri eða Oddeyri og hvar
annarstabar á verzluoarstöbum, sem jeg hefi
reikning, en þeir sem skulda mjer í Subur-
eba Vesturamtinu, hib jeg ab greiba þab
til hr. landshöfbingjaskrifara Sighvatar
Ejarnasonar í Reykjavik, eba hr. sýsluskrif-
ara Þ. Lárussonar á Arnarholti.
Enn fremur mælist jeg hjer meb al-
úblegast til, ab þeir, sem eru kaupendur
ab þessa árs árgangi Norðanfara og ekki
eru þegar búnir ab greiba tojer borgun
fyrir hann, vildu gjöra svo vel og borga
mjer hánn í þessum eba næsta mánubi,
á sama hátt og mælst er til hjer ab ofan
af þcim cr enn skulda mjer fyrir eldri
árganga.
Akureyri 15. nóv. 1884,
Björn Jónsson.
Eigandi og ábyrgðarm.: Iíjörn Jónsson.
Frentsmiðja Norðanfara.