Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.01.1865, Blaðsíða 8
9
eina ráðið til að verða sáluhólpinn, og svo framarlega
sem þú vilt verða sannkristinn og sáluhólpinn, þá fylg
þessum vegi og aðhylztu þetta ráð, og hann, sem er
vegurinn, sannleikurinn og lífið, mun styrkja þig með
sínum anda og leiða þig á lífsins veg.
OFDRYKKJAN.
I.
Ein af þeim syndum, sem án efa valda mestri ó-
lmmingju í sérliverju landi, þar sem hún á annað borð
er ríkjandi, er ofdrykkjan; um þetla getum vér því
miður borið af hryggilegri reynslu sjálfra vor, því að
margir á meðal vor farast á ári hverju, annaðhvort á
landi, eða í vötnum og í sjú, af einhverjum þeim slys-
um, sem standa í sambandi við ofdrykkju. J>að er eðli-
legt, að hvern samvizkusaman og góðgjarnan mann
hljóti að taka þvílík óhamingja sárt, því að í fámennu
landi eins og voru, er það hörmulegt, að svo margir
ungir og efnilegir menn skuli farast af sjálfskaparvílum
og opt og einatt eptirskilja börn og konur og æfmlega
sœra hjörtu vina og vandamanna með viðskilnaði sín-
um; en ef rétt er skoðað, er þó þetta ekki hin versta
afleiðing ofdrykkjnnnar, því sannkallaður ofdrykkjumaður
er í raun og veru lifandi dauður, og verri en dauður,
því auk þess sem hann vinnur lítið gagn, vinnur hann
stöðuglega ógagn; allar gáfur hans og all hans atgjörli
verður eins og að voða í höndum hins óða; hann gjörir
eins og uppreisn móti öllum, móti skapara sínum, móti
því félagi, sem hann lifir í, og móti sjálfum sér.