Gangleri - 12.04.1871, Side 1

Gangleri - 12.04.1871, Side 1
8 ÁI« OASOLEBL M 7, AKUREYRI 12. APRÍL 1871. WISCONSIN. Ein af þeim fræöigreinum sem mikil stund hefir verið lögð á í seinni tíð meðal alira menntaöra þjóða er iandafræðin. Bæðistjórn- endur ríkjanna, einstakir menn og fjelög hafa gjört út fjölda vfsindamanna eigi að eins til að skoða og ákveða afstöðu eða skipun Iand- anna á jarðarhnettinum, heldur einkum til að rannsaka alia eðlis háttu þeirra, svo scm lopts- lag, veðuráttufar, jarðlög, grös, dýr, málma og steina, eða öil þau gæði og hlunnindi sem löndin, vötniu og hafiö umhverfis þau gcyma í skauti sínu, og scm mannleg kunnátta, í- þrótt og starfsemi getur fært sjer í nyt til að auka og efla heill og hagsæld mcðal mann- anna. Einnig er og sjeð um að sem ná- kvæmastar og áreiðilegastar skýrslur fáizt um það hvernig þjóðirnar, sem byggja löndin, færi sjer í nyt gæði þeirra, og svo er og grennsl- ast eptir því, hvernig það geti sem bczt og haganlegast orðið. Með þessu móti hafa allar menntaðar þjóðir öðiast mjög skýra og nákvæma þekk- ingu á flestum löndum jaröarhnattarins, og iiggur sú þekking sem opin fyrir hverjum þeim, cr hefir vilja og efni á að nota sjcr hana, í bókum, uppdráttum og náttúrugripa- söfnum. Vjer fslendingar erum f þessu sem öðru cptirbátar annara þjóða, því oss skortir bæk- urnar, uppdrættina og náttúrugripa-söfnin til að geta lagt stund á þessa þarflegu og skemmti- legu fræðigrein. Ef einhverjum kynni að þybja fróölegt, cður skemmtilegt, þá setjum vjer hjer stutta lýsing af einu ríkinu (fylkinu) í Vesturheimi, cn til þess hölum vjer valiö Wisconsin, eink- um vegna þess, að 4 Islendingar fóru þang- að af Suðurlandi í fyrra vor, í þeim vænd- um að taka sjer þar bólfestu, og hafa þeir látið vel yfir sjer í brjefum er þeir hafa skrif- að hingað. Það má því ætla að fleiri kunni að fýsa að fara á eptir, einkum et vjer ís- lendingar förum halloka f „sniðglímunni“ viö Dani eptir 20 ára viðureign, og það ein- mitt fyrir brögöuin hinna óþjóðræknu lslend- inga, er leitazt hafa viö, bæði að lama krapta vora með þvf að dreifa þeim, og tálma frarn- kvæmdum forvígisinanna vorra, svo hjer kem- ur fram að „án er illt gengi nema heiman hafi“. Þessi stutta lýsing vor á Wisconsin er að mestu tekin eptir ritgjörð cr heitir »Wis- consin: its natural resources and industriel progress being a portion of the Transactions of the Wisconsin state agricultural society for the year 1860. Madison 1862“. Wisconsin liggur frá 42.° og lítið eitt norður fyrir 47.° norðuráttar, og á inilii 87.° og 93.® vesturlengdar frá Greenwich. Að norðanverðu liggur að því Efravatn, að norð- austan Michiganfylki, aö austan Michiganvatn, að sunnan Ulinois og að vestan fljótið Misisippi. Flatarmál Jandsins er talið hjer um bil 56,000 ferskeyttar mílur enskar (eður lijer um bil 2,610 hnattmílur) og er það því næstum þriðjungi stærra en ísland. Nokkrar skipgengar stórár renna um landið, og er Wis- consin merkust þeirra; hún hefir upptök sfn norðaustast í landinu, og fellur suðvcstur eptir þvf, unz hún fellur f Misisippi; hún er mikið til skipgeng, og er því sem helzti þjóðvegur landsins. Nokkru vestar er Blackriver, og svo aptur þar fyrir vestan Chippewa, sem er — 25 —

x

Gangleri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gangleri
https://timarit.is/publication/92

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.