Heilbrigðistíðindi - 01.01.1872, Page 5
o
að sjúklingar, sem borða slíkan kornmat, fá nokkurs konar
sinadrátt (krampa; móðurkornskrampinn), en stundum hefur
það enn þá hættulegri afleiðingar, því að sjúklingar þeir, sem
hafa orðið fyrir því, fá bólgu og jafnvel kolbrand í fæturna,
og er lífi manna þá hætta búin.
Hið svo kallaða móðurkorn er nokkurs konar eitraður
sveppur, sem hefur í sjer allmikið af sjerstakri olíuskerpu, er
menn almennt kalla «fusseU, en hjer á landi er það brenni-
vín, er bana hefnr í sjer, hvervetna kallað torfbrennt brennivín.
Olíuskerpa þessi er mjög óholl og jafnvel alleitruð. Jeg hef
optsinnis fundið hana meiri í kornbrennivíni en kartöflubrenni-
víni, og er auðvelt að þekkja hana; því að sje slíkt brenni-
vín látið í hreina flösku, svo að hálffull veröi, en fylli hana
síðan með hreinu vatni, láti í hana korktappa og hrissli hana
nokkuð, þá sjámenn, að vökviun eða samblöndun þessi í flösk-
unni fær eins og daufan mjólkurlit, og því meiri brögð sem eru
að þessu, því meiri skerpa (Fussel) er í brennivíninu; hreint
brennivín á að geta blandazt með tæru vatni, án þess þetta
sambland breyti nokkuð lit vatnsins, og verði það ekki, er það
merki þess, að þá er meiri eða minni sherpa í brennivíninu.
Þegar menn taka óvandað brennivín og eyma það í suðu-
flösku (Retorte) úr gleri, þá fer allur vínandinn úr því í gegn-
um pípu yfir í annað ílát, en eptir verður í suðuflöskunni
vatniblönduð olíuskerpa, dökkleit á lit og með mjög viðbjóðs-
legum daun. Sje þetta skerpuvatn gefið dýrum eða mönnum,
þá er hægt að sjá eituráhrif þess, því að ýmist er það, að
menn fá velgju og uppköst með verkjum í maganum eða menn fá
sinadrátt, sem jafnvel getur orðið drepandi, en er allajafna
mjög hættulegur fyrir heilsuna. Jeg þykist af reynslunni nokk-
urn veginn sannfærður um, að ýmsir, sem bráðdeyja í drykkju-
skap, fara af þessu skerpueitri, og það er alls ekkert efunar-
mál, að komist mikið af því inn í líkamann, getur það orðið
bráðdrepandi, og harðla lítið þarf afþví til þess, að menn verði
veikir, ef nokkuð talsvert er drukkið af slíku brennivíni. Það
mun mörgum kunnugt, að allmargir drykkjumenn fara á end-