Heilbrigðistíðindi - 01.01.1872, Qupperneq 8

Heilbrigðistíðindi - 01.01.1872, Qupperneq 8
sterkt bilurt eitur, sem «Picrotoxin» er nefnt, og eirimitt þess vegna verður sá bjór, er þannig er gjörður, mjög skaðlegur fyrir heilsuna. Menn hafa eigi alls fyrir löngu orðið varir við þessi svik á Englandi, en þau munu víðar eiga sjer stað, þó enn nú fari lágt. Á Englandi hafa menn með nýju lagaboði nú þegar látið slík svik varða þungri hegningu, og skal hver sá ölgjörðarmaður, er við hefur þetla efni, vera sektaður um 1800 rd., og hver bjórseljari, er selur það öðrum, um 3600rd. Það mun samt sem áður eigi einungis vera á Englandi, að menn hafa slík svik I frammi; því að ábatinn meðal verzlunar- manna er vanalega þeirra mark og mið, og með því þeir ern enn þá víða ókunnir þeim skaða, er af þessu kann að leiða, þá má búast við, að hægðarverkið og ábatavonin ráði, því.að það ber öllum saman um, að ölgjörð með þessum hætti sje bæði hægri og kostnaðarminni, þegar þetta efni sje við haft i stað humalsins. Bjórdrykkjur eru nú farnar að tíðkast harðla mjög hjer á Iandi, eins og sjá má af landhagsskýrlum vorum. t’að er og almenn trú, að bjórinn sje styrkjandi, jafnvel þótt barún Liebig hafi sýnt og sannað, að það sje eigi meira styrkjandi efni í heilli flösku af bjór, en í vænum munnbita af brauði, enda er það einungis vaninn og ekkert annað, sern heldur honum á lopt. Bjór, drukkinn um of, er einhver hinn óhollasti drykknr, og eptir því hafa læknar tekið, bæði í Danmörku, Englandi og annarstaðar, að bjórsvelgir verða sjaldan til langframa heilsu- góðir. teir fá opt í sig nokkurs konar vatnslopa og gigt, og almennt er það, að margir þeirra fara um fimmtugsaldur, en sumir miklu fyr, úr einni eða annari vatnsýkistegund. Það er auðvitað, að það á eigi saman nema nafnið, hver bjórinn er. Ljettur bjór heima gjörður er optast nær skaðlaus, og skaðminni en slæmt og óhollt neyzluvatn. fungurbjór þar á móti, svo sem Porter, bajerskt öl og Ale, eru hvervetna mjög óhollir drykkir, ef þeirra er neytt að jafnaði, og er lítið gleði- efni til þess að vita, ef stórfje skal árlega fara að flytjasí út úr landinu fyrir slíkan skaðlegan óþarfa. Um vínin get jeg verið stuttorður, en það er um þau að segja, að

x

Heilbrigðistíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðistíðindi
https://timarit.is/publication/94

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.