Heilbrigðistíðindi - 01.01.1872, Side 12
12
og gekk j’flr margar eða vel flestar sveitir í Árnessýslu og
Rangárvallasýslu, og á fjöldi barna að bafa dáið úr honum þar.
Hjer í Reykjavík varð bann, það jeg til veit, að eins tveim
börnum að bana. í Ölfusi er mælt liann hafi drepið fjölda
barna, en eigi veit jeg með vissu, hvort þeim börnum var leit-
að ráða hjeðan eða eigi. Flóamenn og prestur þeirra, sjera
Sœmundur í Ilraungerði, sendu hingað eptir lyfjum við þessari
veiki, og hef jeg eigi heyrl, að þar hafi mörgbörn dáið, enda
var það vel vinnandi, að lina hóstann, ef rjettilega var að farið.
Jeg við hafði í fyrstunni hinn svo kallaða «Coccinellu«- brjóst-
lög, en er mjer þótti hann eigi lina hóstann, sem mjer líkaði,
við hafði jeg brjóstsafa með dálitlu af Chloroformi í, og hann
bafði á mörgum börnnm góð áhrif. Auk þessa Ijet jeg jafnan
hafa heita vatnsgufu í herbergjunum, þar sem börnin voru, en
það er hægt að gjöra með þeim hætti, að menn setja bala eða
fötu með sjóðandi vatni í, inn í svefnherbergið, þar seni börnin
eiga að sofa, svo að vatnsgufun^leggi um herbergið, og er
það og einkar-gott ráð, þegar kvefsóttir ganga, einkum þegar
kalt er, og andrúmsloptið hefur eins og nokkurs konar skerpu
í sjer. J>á sá jeg og á einstöku börnum mikið gagn af blóð-
bergsvatni við hósta þessum, en um það skal talað siðar, þar
sem rætt verður um áhrif ýmissa jurta, er vaxa hjer á landi.
Þegar börn eða fullorðnir fá megnan hósta, þá liggur á,
að lina slíkan hósta svo mjög, sem auðið er, því að við sí-
felldan, ákafann og mikinn hósta vill blóðrásin í lungunum
koma í óreglu, og er þá mjög hætt við, að þetta ástand kunni
að valda lungnabólgu eða bólgu í lungnahimnunni, Plevra, og
er þá háski búinn af slíku. Þetta kalla menn bjer á landi, að
sá eða sá hafr hóstað í sig tak, og eru menn hvervetna hræddir
við það, þegar innkulsa-veikindi og kvefsóttir ganga. Þetta er
sannarlega eigi án orsaka, og því ættu menn jafnan að vitja
læknisráða við megnum hósta, svo fljótt sem verður, til að geta
fengið hæfileg ráð og lyf við honum í tækan tíma. Geti menn
nú Ijóslega lýst fyrir lækninum, hvernig hóstinn hefur byrjað
og haldið áfram, þá er það opt alls eigi nauðsynlegt, að læknir
sjái sjúklinginn, einungis verða menn nákvæmlega að skýra