Heilbrigðistíðindi - 01.01.1872, Side 13
lionum frá, hvernig hóstinn hafi bj'rjað og haldið áfram, hvort
honum sje samfara brjósluppgangur eða eigi, hvort þessi brjóst-
uppgangur sje mikill eða lítill, og hvort honum sje samfara
líður andardráttur, brjóstþyngsli, eða eigi; því þegar læknirinn
fær ljósa skýrslu um þetta, getur hann sjálfur dæmt um, hvort
koma hans til sjúklings sje nauðsynleg eða eigi. Jeg get þessa
hjer sökum þess, að læknir nokkur ungnr, sem þekktur er að
nákvæmni og ötulleika í að vitja veikra, gat um það í hrjefi
til mín í vetur, að rnenn hefðu, þar sem hann er, hvervetna
viljað, að hann skoðaði öll börn þau, er kíghóstann fengu, og
að þetta gaf með fram tilefni til, að hann í heilar 6—7 vikur
gat eigi verið við heimili sitt nema einar 2 nætur; hann gat
þess og jafnframt, að honum þótti þessar sífelldu skoðanir ó-
þarfar á alþekktum sjúkdómi, og gat jeg eigi annað en verið
honurn samdóma í því, að minnsta kosti, þegar engin sjer-
stakleg atvik ber að höndum. Síðast á liðna árinu og í
byrjun þessa árs bar allmikið á lungnabólgu, og dóu 2 ung-
menni úr henni hjer í bænum; var annar þeirra brjóstveikur
undir, en hinn hafði eigi fullkomlega náð sjer eptir tauga-
veiki. í skólanum lágu um 20, og allmargir þeirra með lungna-
bólgu; þeim batnaði öllum.
VEIKINDI OG SÓTTIIl ERLENDIS.
Af blöðum þeim, sem komu síðast í haust, var það auð-
sjeð, að tvær alvarlegar sóttir, bólusótt og kólera, gengu yfir
allmörg lönd norðurálfunnar árið sem leið, og var bólusóttin
alit af að færa sig norður á við, og samkvæmt fregnum, sem
komu hingað í blöðum með skipi, er hafnaði sig hjer 11. dag
febrúarm., og farið hafði frá Iíaupmannahöfn um árslokin, virtist
bólusóttin heldur að vera að aukast í Kaupmannahöfn, þó fáir
væru þar enn þá dánir úr henni. í októbermánuði var tala
hinna bóluveiku í höfuðborginni mjög lítil, en þá virðist hún
að hafa aukizt nokkuð í nóvemberm., og þó hvað mestídesem-
bermánuði, því að samkvæmt Kaupmannahafnarblöðunum voru
í jólavikunni, eða frá 20. til þess 26. dags desemberm., 50
orðnir veikir af bólu, og 33 af hlaupabólu, en eigi gat verið