Tíminn - 06.03.1871, Page 4
4
því. Hitt lieíði P;ill getað sagt, og það
satt, aðjeg hefði komið á vissan stað, eð-
ur f einskonar samkundu, sein jeg veit ekki
eiginlega hvað ætti að kalla — nema
öldungis ekki „sáttafund®; og að hann
hefði sagt þar uin leið, og málið vaið
ónýtt fyrir honum, að hann vildi helzt
ekkert við mig eiga.
Svo álít jeg grein Páls fullsvarað.
«
Af því við herra Páll höfumáttdá-
litlar ritdeilur saman, sem byrjuðu með
því, að jeg setti aðsenda frjettagrein í
blaðið Nf., þá skal jeg nú bæta hjer við
þessari athugasemd: Páll bar það út af
fundinum, sem aðsenda írjettin getur um,
er tveimur góðkunningjum mínum, var
mikið til hneisu, þegar það kom út meðal
almennings, þótt það væri meinlaust spaug
í samsætinu. — Jeg hafði fyrir vissar
orsakir, engin ráð að taka fram fyrir
liendu. Páls, nema með frjettinni, og það
vona jeg hún hafi gjört að verkum. Pað
þarí því engin að taka sjer grein þá
nærri, nema Páll, því hún var og er, ein-
göngu ætluð honum. Hvað þessum tveim-
ur viðvíkur er getið er í frjettinni sjer-
staklega; er það einmitt þess vegna, að
annarhvor þeirra eða báðir, hefðu vit
fyrir Páli, ef hann yrði optar með þeim
í samsæti. — Svo þykist jeg hafa skýrt
inál þetta nægilega.
— Grein þessi er rituð nokkrum dög-
um eptir að herra barnakennarinn á Ak-
ureyri stóð því nær bólginn af harmi í
húsdyrum lögreglustjórans, hjer í bænum,
af því að geta ekki lengið svo mikla á-
stæðu sem að taka prentarann á Norður-
landi í misgripum og láta hann í myrkva-
stofuna.
— Pó grein þessi væri upphaflega ætl-
uð í Nf., þyki mjer betur hlýða að setja
hana í þetta blað.
J. S.
Kveðja
til
ÁSMUNDAR BENÍDIKTSSONAR.
Farðu vel Ásmundur búandinn bezti
blómgist þinn hagur, f suðrænni byggð;
virðing og auðna veri þjer nesti,
valmennið, prúðmeunið, reyndur að tryggð.
Saknar þín gjörvallt sveitaríjelagið,
sakna þín allir í nálægri byggð,
sakna þín allir, sem það er lagið
sanna að meta hjálpsemi og dyggð.
Vjer óskum að Ilagi þjer hagsældir veiti
hamingan trúfasta styðji þitt bú.
Vjer óskum þín virðing aldrei sjer breyti
ágæti vinur, vjer kvcðjum þig nú!
P.
Auglýsing.
Blað þetta kostar 6 skildinga; en
skyldi svo heppilega tiltakast, að kaup-
endur fengist, höfum vjer ásett oss, að láta
það verða 8 arkir að stærð, og kostar
þeð þá 48 skiluinga Ef nokkur kaup-
ir 50 expl. fær hann íjórðahvert í sölu-
laun, en af tuttugu 5. hvert; og af átta
eitt, og þar fyrir ncðan, eptir tiltölu
— Næsta blað kemur út, þegar menn
sjá hvernig þessu reiðir af.
Útg.
Utgeíendur: Nokkrir Nurdlendingar.
AbyrgSarma&ur: Jónas Sveinsson.
Akureyri, 1871. J. Svainsson.