Tíminn - 16.10.1872, Blaðsíða 3

Tíminn - 16.10.1872, Blaðsíða 3
91 þess að borga kostnaðinn, og að þeira hluta hans er við þarf til þessa, ekki geti verið betur varið. Þegar því menn víðsvegar um landið eru að ráðgast um, að rita bænarskrár eða ávörp til sljórn- arinnar, ætti þessi að vera hin fyrsta af öllum, og og er svo hægt að orða hana, að hver maður sem er skynsöm vera og skrifandi, ætti að gela það. tetta velferðarmál er líka svo auðskiljanlegt og óbrotið, að það er alls ekki nauðsynlegt að út- vega sjer fyrirmynd til þessarar bænarskrár eða ávarps, svo það verði sem bezt samhljóða úr öil- um hjeruðum landsins. Ávarpið til stjórnarinnar ætti að semjast sem fyrst, svo að stjórnin sjái strax, og áður en farið er að verja brennivínstollinuin öðruvísi, eindregna áskorun frá vorri hálfu um þetta efni. Efhúnsjerað það er þjóðvilji íslend- inga að gufuskipsferðir komist á, og efni eru fyrir höndum til að borga þær, þágeturhún engaboð- lega afsöknn haft fyrir að draga svo lengi þetta sanna og fyrsta velferðarmál landsins. Stjórnin sjálf getur með engu öðru en gufuskipsferðunum betur sýnt, hvort henni sje full alvara að styðja að framförum vorum eða ekki. (Aðsent). Um þessar mundir er ekki jafn fjölrætt um nokkurt málefui sem það, að Norð- lendingar, Borgfirðingar, Rangvellingar og ýmsar sveitir í Árnessýslu, hafa samtök til þess að flytja ekki skurðarfje hingað. Vjer getum ekki verið án kjöts og vitum þó ekki hvers vjer eigum að gjalda. Sumir af okkur höfum sent kaupafólk til sveita, sumir af okkur eigurn þar jarðir, og aðrir eitthvað boðlegt til að kaupa fyrir, enda hafa sum- ir af okkur orðið til þess í sumar að selja sveita- mönnum Bsk fyrir peninga sem vjer nú þurfum að kaupa fje fyrir. Það er sagt að þessi samtök eigi að hafa vegna fjárkláðans hjer í nærsveitunum, og með þeim muni ávinnast að hinar kláðagruu- uðu sveitir, neyðist lil þess að skera niður, ef að fje er ekki rekið hingað suður. f>etta er mjög valt, því að hinar kláðagrunuðu sveitir hafa ekki fengið alveg skýlaust loforð um lífsfje. Fjáreig- endurnir hjer muni aldrei lóga fje sínu til skurðar svo að ekki verði talsvert eptir, og til hvers eru þá þessi samtök, annars en að stuðla að því að reglulegt árangurslaust niðurskurðarkák, einu sinni enn verði öllum til óhamingju ef að svo langt fer að nokkur rnaður hjer erlendis fari að farga kindum sínum fyrir þessi samtök. Oss er spurn á því, hvort að menn þeir sem hafa þessi samtök sjeu svo fullir af vantrausti til sjálfra sín, að þeir ei treystist til þess, að taka einungis skurð- arfje frá til að reka hingað suður. Oss er spurn að því, hvert að þeir ekki hafi rnenn og ráð lil að reka fjeð suður, svo að ekkert af því sleppi. Vjer getum gefið þeim sannanir með svörtu á hvítu, með vottum, eiði og öllu áreiðanlegu um að kind- urnar sjeu skornar. Vjer getum sjeð svo til, að þeir, ef þeir vilja, fái aptur hamina af hverri kind til sýningar hvar sem vill, til sönnunar fyrir þvi, að það fje sem er rekið til okkar sje drepið, og til hvers er þá að stuðla að þessari takmörkun á almennri verzlan? Til hvers er að bindast sam- tökum sem eru óeðlileg og sem ekki verða haldin, og eru frjálsum inönnum óboðleg og falla um sig sjálf. Enginn getur óskað þess fremur en vjer, að kláðanum verði útrýmt og að hinar heilbrigðu sveitir fái alla vörn gegn kláðanum svo sem fram- ast er unnt. Til þessa hefir verið reynt áður með mörgu móti, en með þessu nýja meðali get- ur ekkert áunnist, annað en ef að því á að halda fram, þá verður það ný sönnun fyrir því, að allar þær árangurslausu tilraunir sem áður hafa verið gjörðar ekki hafa gjört menn vísari eða úrræða- betri, og er það að ófyrirsynju þegar betnr má aðfara. Menn í heilbrigðu sveitunum hefðu að vorri hyggju átt að hafa samtök um: 1. Að reka ekki annað fje hingað suður en valið skurðar fje. 2. Að reka það í nokkuð stórum rekstrum undir umsjón áreiðanlegra manna. 3. Að láta menn þessa taka nægilega sönnun á skurðarstaðnum um að fjeð hafi verið skorið.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/96

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.