Tíminn - 15.11.1872, Blaðsíða 4
um dagsetur, er við lentum. En þegar Jón var
að seglbúa, lagði Itunólfur á stað og Bjðrn þegar
á eptir, en í því Runólfur kom út í sjálft sundið,
nálægt því er kaupskip hafa legið, sló skipi hans
flótu, fyllti þegar og fór um, örstutt var í land,
en landtaka ill, klettar og sjógangur mikill; 9 menn
voru á skipinu og komust 5 þeirra á kjöl, og gátu
lialdið sjer þar unz skipið bar að klettunum, og
brotnaði það þar í spón, en þes&ir 5 gátu þó bjargað
sjer upp á klettana, einn kvennmaður náðistá floti,
en 3 drukknuðu, formaðurinn Runólfur Jónsson frá
Haugum, Jón bóndi Magnússon frá Arnarholtskotí
og ýngisstúlka Vilborg Melkjörsdóllir frá Ilreða-
vatni. Lík Runólfs sál. fannst um nóttina; var
Björn á Svarfhóli þar nóttina yflr til að bjarga
farangri þeim er náðist, og mun hafa náðst mest-
ur hluti þess er á skipinu var, en margt skemmt;
sira Stefán í Stafholti átti skipið. Lík stúlkunnar
fannst nokkru síðar, en lík Jóns er ófundið
enn. Þannig tókst þetta til bæði mæðulega og
slysalega; var mikil eptirsjá að Runólfi sál., því
hann var bæði góður bóndi, og einhver með
greindari leikmönnum í þessari sýslu».
SMÁVEGIS.
(Eptir Svensk «Ny illusterad Tidning* nr. 14. þ. á.)
í Rochester í Norður-Ameríku, gipti sig ný-
lega maður einn að nafni Charles Johnson, ungri
stúlku Clara Rosenberg, er eigi var stærri vexti
en 26 þuml. á hæð, má því um manninn segja:
að hann geti «borið konu sína á höndum sjer»,
þar sem hann er gildur maður vexti.
— í Liverpool á Englandi, hitti lögregluþjónn
einn mann er tilbúinn var að hengja sig, en
hindraði hann þegar frá því, færði manninn fyrir
lögreglustjórann, er spurði manninn eptir orsök-
inni til hengingarinnar. 'Það var aldrei ásetn-
ingur minn», svaraði maðurinn <>hetdur sá ein-
ungis, að hengja mig upp til þerris, því jeg varð
allur húðvotur af óveðrinu í morgun».
— Af hinum mörgu japönsku sendiboðum sem
nú heimsækja norðurlönd, hafa 3 komið til Kaup-
mannahafnar næstliðið sumar, til þess að kynna
sjer þar ýmsar stofnanir; þeir hafa skoðað flest-
ar opinberar byggingar og skóla t. d. hermanna-
skólann og hinn sameinaða kirkjuskóla, þar d\Öldu
þeir nokkurn tíma, til þess að sjá safn hans og
uppdrætti, þeir voru viðstaddir söngkennsluna, og
sungu lærisveinarnir fyrir þá, dönsk, norsk og
sænsk kvæði, enn fremur sáu þeirleikfimiskennsluna,
við hvað lærisveinarnir fengu einnig tækifæri til að
sýna þeim heræfingar sínar. Til þess að sýna
sendiboðunum allt þetta, fylgdist með þeim skóla-
forstjórinn próf. Holbech; þetta allt virtist hafamikil
áhrif á hina aðkomandi. («Dagbladet», 5. sept.).
(Aðsent). Þau einu úrslit höfðu orðið á Hafn-
arfjarðarfundinum 7. þ. mán., er haldinn var til
að útrýma fjárkláðanum, að eitt árið enn skyldi
einungis anda á fjárkláðann með lækningum, en
ekki lógun hins grunaða fjár, með fjárskiptum.
22. + 3.
— Sagt er að «Queen» hafi komið við á Shet-
landseyjunum í fyrri júlí-ferðinni í sumar, og fluttst
með henni þaðan til Edínarborgar 50 fjár, og er
líklegt, það sjeu kindur þær er «J»jóðólf» vantar
í fjárskýrsluna?
tffg* Auglýsingar verða teknar í blaðið 2 sk.
fyrir (Corpus) stærri leturslínuna, en 3 sk. fyrír
(Petit), smærri leturslínuna.
PRESTAKÖLL.
Veitt: 26. f. m. Tjörn á Yatnsnesi, kand. theol.
Jóni Þorlákssyni.
Óveitt: Hrepphólar í Árnessýslu, laust fyrir
uppgjöf prestsins sira Jóns Högnasonar, metið
274 rd- 72 sk., auglýst 2. þ. mán.
Prestsetrið framfleytir í meðalári 6 kúm, (6)
60 ám, 60 sauðum, 30 lömbum og 16 hrossum.
Étgefendur: Nokkrir Reykvíkingar.
Ábyrgðarmaður: Páll Eyjúlfsson.
Prentatnr í prentsmiíjo Islands. Kinar þóriarson.