Tíminn - 08.05.1873, Side 4
52
þegar nágrannans veggur brennur, þá er þínum
hætt, því jafnskjótt og J. Ó. hafði sagt frá «Lands-
höfðingja-hneykslinu», og var kominn í mál við
hann sjálfann, fengu kennarar þessir brjef frá
stiptsyfirvöidunum, sem skora á þá að bregða heit
sín við ritstjóra Jón Ólafsson þ. e. að gjörast svik-
arar, þar eð ábyrgð slíks blaðs gæti eigi samrýmst
stöðu þeirra — þaðerað mínu áliti—, því annars
gætu þeir búist við að tapa embætti. — Þessi
meining sýnist liggja beinlínis fyrir, og sje hún
rjett, þá mætti segja um þetta, ljót er en sönn
þó saga; að háheilagir og hálögiærðir yör-ern-
bættismenn skuli skora fastlega á sína undirgefnu
að gjörast svikarar, — eða hvað eru samningsrof
annað en svik?1
Nú vfkur sögunni til ritstj. J. Ól. að þegar
hann áreitti þannig Landshöfðingja með stefnu
sinni, spurðist hjer, og teljum vjer það sannspurt,
að nú mundi eiga að taka ritstjóra fastann fyrir
þá sök, að hann eigi hafði borgað sekt þá, er
hann var dæmdur í, fyrir prentun á Elliðavatni,
án konunglegs leyfis, þetta var nú mjög vel hugs-
að, en margt fer öðruvísi en ætlað er. Engum
datt í hug að J. Ól. mundi geta borgað á annað
hundrað ríkisdala sekt enn eigi að síður, daginn
eptir að díblissu fregnin spurðist, greiddi ritstj.
Jón Ól. alla sekt sína, og mátti með sanni segja
um það fje, að enginn vissi hvaðan það kom, en
allir vissu hvert það fór. Hyggst nú ritstjóri Jón
að halda málum sínum til streitu, og lýsir það
eigi alllitlu þreki og krapti, að umkomulítið ung-
menni skuli dyrfast svo sköruglega, að verja rjett
sinn, gegn hinum æðsta manni á landinu, og
verður það líklega bending einhverjum öðrum um,
að þrældómsóttinn er hvorki hollur nje tryggur.
— Að loktim vil jeg minna ykkur á það lægri em-
bættismenn landsins, lofið þið engu neinu hvað
sem á liggur, því þjer megið búast við að á yður
verði sleorað að bregða loforð yðar, en það er
ljótt. Ábyrgðarmaðurinn.
1) Sagt er, aí> „G-Hr. muni allt at einu halda áfram a%
Itoma út sem átur.
— RITFREGN. Frá prentsmiðju íslands er
nýkominn út ritlingur uUm stjórnarmál og stjórn-
arástand íslands« etc., eptir Benedikt Sveinsson
assessor, 48 bls., 8to, 24 sk.
AUGLÝSINGAR.
— Nú á ferð minni á Englandi rjeði jeg það
af, að flutt verði fólk það hjeðan, sem fara vill til
Vesturheims í sumar, til Englands með skipum, er
um leið flytja hjeðan hesta; þar með þessu móti
farið verður hjer um bil l2rd. billegra en ráð var
gjört fyrir um daginn, skal þá hver fæða sig sjálfur
á leiðinni til Englands, sem varir um 4 daga ; heitt
vatn fæst frítt, og skipsrúmið verður forsvaran-
legt og gott; áformað er að skipið komi um
miðjan næsta mánuð. Rvík, 7. maí 1873.
G. Lambertsen, agent.
(ý/jf’ Til vísbendingar fyrir póststjórnina í
Reykjavík auglýsist, að Hösleuldsstaðir á Sleaga-
strönd eru í Húnavatnssýsln, og heyra undir Sveins-
staða póstumdæmi. Höskuldsstöðum, 21/473
E. Ó. B.
— Á klöppinni hjá Bergstöðum í Reykjavík
hafa fundizt horndósir látúnsbúnar með fanga-
marki og ártali, og getur rjettur eigandi vitjað
þeirra til ábyrgðarmanns «Tímans», um leið og hann
borgar auglýsingu þessa og sanngjörn fundarlaun.
— Fundizt hefir Ijereptsrekkjuvoð á götunum
í Reykjavík, og getur rjettur eigandi vitjað henn-
ar til ábyrgðarm. «Tímans», ef hann borgar aug-
lýsingu þessa og fundarlaun.
PRESTAKÖLL.
— M 5 S r u val la-klanstor, lanst fyrir nppgjóf preatsina sjera
Jorgens Jóhaonssonar Kroyers, oál. 72 ára, en hooum er áskilino
þrifcjongr allra fastra tekja, eftir síí)asta mati er braotbiib metib
583 rd. 56 sk ; auglýst 3. þ. mán.
Útgefendur: Nokkrir Reykvíkingar.
Ábyrgðarmaður: Páll Eyjúlfsson.
Prentalor í prentsmifcju íslands. Einar J>ó rí> arson.