Tíminn - 15.10.1873, Blaðsíða 1
TÍMIWWa
2. <H\ Reykjavík, 15. oH. 1873. 23. — 24. blð.ð«
— Árdegis hinn 13. þ. m., hat'naði sig hjer
póstskipið «Diana», hafði það andviðri og ilitveður
á leiðinni; með því hafa ei heyrzt enn nein mark-
verð tíðindi. f>rír farþegjar komu með því: Frið-
rik Petersen skólapiltur frá Færeyjum, fröken
Olavsen úr Keflavík, heyrnar- og mállaus stúlka
frá Garðhúsum hjer í umdæminu, er verið hefir í
Khöfn nokkur ár, á heyrnar- og málleysingja-
stiptuninni þar.
— En var rektorsembættið óveitt þá póstskipið
fór.
— Síðan »Tíminn» kom út seinast 24. mán.,
hefir optast verið norðanátt með kulda og storm-
um til þessa tíma; 26. og 28. kyngdi miklum snjó
niður á Qöllum, og þann síðarnefnda festi svo á
þau, að hvítt varð af snjó, niður til sjáfar. 5°frost
var bæði þann 26. og aptur 1. þ. m.
— En er fjárkláðinn uppi í Grindavík, fannst
hann í 3 kindum í úrganginum þá rjettað var,
og var í þeirra úr Njarðvíkum. Stuttu fyrir rjett-
irnar, fannst kláði í 3ur kvíám Jóns bónda í Gröf
í Mosfellssveit, einnig kom fram kláði í 1 kind í
skilarjettinni að Reykjakoti i Ölfusi, svo eigilítur út
fyrir að kláðinn sje enn útdauður á suðurlandi og
hætta búin af honum, sje honum eigi styttur ald-
ur, annaðhvort með hnífnum, eða lækningum.
(AÐSENT). Gjörðu svo vel «Tími» sæll, áður
en þú lýkur göngu þinni í ár, og heilsaðu frá
mjer öllum foreldrum, húsbændum og öllum fróð-
leiksvinum á íslandi, að jeg vonist eptir, að þeir
veiti góðar viðtökur bók þeirri, er nefnist «Barna-
vinuro, þá hún kemur innan skamms þýdd á
vora tungu; hún hefir ætíð verið í afhaldi sem
ágæt barna bók, bæði til fróðleiks og skemmtun-
ar, sem þau hafa hlotið að fara á mis við
hingað til. Fróðleilísvimir.
SVAR til «Þjnðólfso frá Ameríkuförum.
(Niðurlag). Með þessu móti hefur þú þó nóg
í munninum og nóg á kroppinn, og það er að
hafa nokkurn veginn af fyrir sjer. Setjum nú apt-
ur, að þjer þyki þetta óþolandi, og viljir því kom-
ast heim til íslands aptur. þangað getur þú kom-
izt fyrir 70 dollars hjeðan frá Meilwanke t. d., og
sje það einlægur vilji þinn, að komast upp til Fóst-
urmoldar, má búast við því, að þú vinnir alla rúm-
helgu dagaua, og þá hefir þú eptir 3Va mánuð
næga peninga til að komastfyrir heim. — f>ú skil-
ur það, að vjer skoðum þig hjer ógiptan og heil-
an heilsu. — Á þenna hátt kemur þú snauðari
heim, en þú fórst, og látum vjerþig ráða því, hvort
þú kennir það þinni oflofuðu Ameríku eða sjálf-
um þjer. — jþar sem þú segir, að Norðmenn sjeu
að mikiu leyti hættir ferðum hingað, þá leyfum
vjer oss að spyrja þig að, hvort þú ekki hefir
heyrt eða lesið, að árið sem leið fluttust fleiri
Norðmenn hingað, en nokkru sinni hefur átt sjer
stað áður; hve margir kunni að koma þetta árið,
er enn óvitað, en þess má geta þjer til smekk-
bætis, að eingöngu hingað til Wisconsin komu
vikuna sem leið 244 Norðmenn. Hefurðu heldur
ekki heyrt það, að Norðmenn hafa nýlega reist
sjer sjálfir 5 skip, hið stærsta 1750 lesta, hið
minnsta 800 lesta, er ganga skulu beina leið við-
stöðulaust frá Noregi og tilNýju-Jórvíkurmeðnorska
Vesturheimsfara(Emigranta);áðurhafa Englendingar
flutt þá á sínumskipum? Gái ísiendingar, sem eru
Norðmönnum svo skyldir og likir, að þessu, því
að þetta, sem vjer hjer höfum sagt^ er það, sem
reynslan hefir sýnt um þá, en þín reynsla kemur
úr sauðarleggnum. 6. segirðu, að «íslendingum
hafi enn ekki látið að flytja sig þangað búferlum»,
og þessa þína setningu leitast þú fyrst við að
89