Tíminn - 27.08.1874, Síða 1
Verð blaðsins (22 arkir) árg. ' 4 \l. Fyrri hlutinn greiðist | fyrir lok marzm., en síðari I hlutinn fyrir útgöngu júlí- i [ TOHIWW. ( I Auglýsingar verða téknar í bl., 1 fyrir 3 /3 smáleturslínan, en J 2/3 stœrraletursl. Parfleg- \ ar ritgj. til almenningsheilla
mánaðar 1874 til ábyrgðar- 1 mannsins. „Tímans í straumi stöndum, sterklega sem oss ber“. 1 verða borgaðar eptir sam- komulagi við ábyrgðarm.
3. ár. Beykjavík, 27. ágúst 1874. 15,—16. blað.
— SKIPAFREGN. 26. f. m. kom «Norrköping»
eitt af herskipum Svía, og á því admíráll Lager-
krantz, sendiherra Svíakonungs, til að veita mót-
töku konungi vorum. — S. d. norskt herskip
«Nordstjernen». — 29. s. m. «Albion» gufuskip
frá Skotlandi, með 5 höfðingjum frá Bandaríkjun-
um ásamt herra kand. theol. E. Magnússyni bóka-
verði í Cambridge. — 30. s. m. kom konungur
vor CHRISTIAN IIINN IX. ásamt Valdimar syni
sínum og miklu föruneyti á gufufregátunni «Jyl-
land», fylgdi þvi herskipið «IIeimdal». — S. d.
«Osprey» lystiskip frá Skotlandi,. — 3. þ. mán.
gufuskipið «Wiclow» frá Skotlandi, með því komu
milli 20 og 30 manns, karlar og konur frá Eng-
landi, ásamt frú Sigríði konu E. Magnússonar.
Fór sumt af fólki þessi til Þingvalla. — 11. þ.
mán. «Bien» skipst. Pedersen, lausakaupmaður
með timburfarm frá Mandal.
— EMBÆTTAVEITINGAR. Hinn 16. f. mán.
hefur hans hálign konungurinn skipað dómsmála-
stjóra Ch. S. Klein til að vera ráðgjafa fyrir ís-
land. Hinn 8. ágúst er fyrrum assessor Benedikt
Sveinsson settur 1 ár frá l.sept. næst kom. sýslu-
maður í Þingeyjarsýslu. Eystra læknisumdæmið í
Suðuramtinu er veitt 9. f. m. kand. med. & chir.
Tómasi Hallgrímssyni frá Hólmum.
KONUNGSKOMAN, ÞjOÐHÁTÍÐIN í REYKJAVÍK
OG Á ÞlNGVÖLLCM.
Síðan að «Timinn» kom út seinast hefur margt
og mikið gjörzt, er uppi mun verða í sögu vorri
um margar aldir, og sem aldrei mun fyrnast, jafn-
vel þótt land vort með þjóð þess og máli líði
undir lok. Eins og áður er drepið á hjer að ofan, kom
konungur vor hingað hinn 30. f. m. með Valdimar
syni sínum 16 ára að aldri, og föruneyti miklu á
skipunum «Jylland» og «Heimdal», er höfnuðu
sig hjer kl. 11, 55 mín. f. m., var þá skotið á
herskipum þeim er láu hjer á höfninni mörgum
skotum, konungi til virðingar. Auk frakknesku
herskipanna, láu einnig á hðfninni, Þjóðverjar á
herskipinu «Niobe», þá Svíar á herskipinu «Norr-
köping» ogNorðmenn á herskipinu «Nordstjernen»,
er öll voru alsett veifum. Í bænum voru reistar
stenguráflestum húsum með veifum, ogallvíðasettar
út um gluggana. Bryggjan við verzlunarhús Iínudt-
zons stórkaupmanns, var prýdd með veifum og
fánum, og lyng- og blómsturkrönsum, er helztu
frúr og meyjar bæjarins undir forustu barnaskóla-
kennara H. E. Helgesen, höfðu safnað og fljett-
að úr íslenzku lyngi og grösum. Efst á bryggju-
sporðinum var reistur sigurbogi, klæddur að ofan
rauðum dúki, með kórónu á erFrakkar höfðu gefið
og búið til, fjórar veifur voru á boganum ásamt
blómsturfljettingum. Kl. 2 e. m. stje konungur á
land ásamt föruneyti sínu, gekk þá landshöfðingi
vor H. Finsen ásamt stiptsyfirvöldunum, og öðr-
um embættismönnum og fulltrúum bæjarins
niður á bryggju þá er gjörð var í tilefni af komu
konungs, austan við Knudtzons-bryggju, var
sú bryggja svo haglega gjörð, að hún var á hjól-
um, svo hún yrði undin upp eða ítt fram, eptir
því sem stæði á flæði þá konungur kæmi, — til
að veita honum viðtöku ásamt fylgdarliði hans.
Fagnaði landshöfðingi honum í nafni lands og
þjóðar með ávarpi einu er hann flutti konungi þar,
þvf ávarpi tók konungur blíðlega, og kvað sæla
þá stund er nú væri komin, er hann stigi fæti
sínum á þetta land, og liti þá þjóð er hann með
mikilli eptirvæntingu hefði girnzt að sjá. Yar þá
lostið upp fugnaðarópi af öllum nærstöddnm bæj-
arbúum, er flestir voru þar samankomnir; síðan
57