Víkverji

Eksemplar

Víkverji - 24.07.1873, Side 2

Víkverji - 24.07.1873, Side 2
50 þvesti — er rætt var lil lykta 16. þ. m., hefir sprottið af þv(, að amtmaðrinn yfir norðr- og austrumdæminu hafði leitt atliygli dómsmálastjórnarinnar að því, að æskiiegl væri, að slakað yrði svo til um lestagjald, að hvalaveiðamenn gætu séð sér fært að flytja hvalskrokka í land, þegar búið er að skera spikið af þeim. Nefndin (Páll þm. NMúlasýslu, Torfi þm. Strandasýslu og Davíð þm. Skagfirðinga) réð þinginu að ráða konungi frá að gjöra þetta frumvarp að lögum, og færði einkum það til í ástæðum sínum, að það virtist eigi vert fyrir þingið að gjöra neitt við frumvarpið í samvinnu við þá stjórn, er landsmönnum er þvert um geð; þar að auki bendir nefnd- in á, að hvalaveiðar í kringum land vort nú muni vera á förum, og að frumvarpið opn- aði veg til þess að fara í kringum verslun- arlögin. fegar málið kom til ályklarumræðu á þinginu, létu fleiri þingmenn alveg gagn- stæða skoðun í ljósi, þar sem þeir sögðust ætla, að lögin um lestagjald gætu eigi náð til þvestis eðr rengis af hvölum, er veiddir væru í kringum landið, því að hingað til hefði alment verið álitið, að það væri öllum fiskiskipum leyfilegt að selja lands- mönnum af afla sínum; frumvarpið væri því sprottið af misskilningi tómum. J>essa skoð- un sýndust flestir þingmenn að aðhyllast, og var uppástunga nefndarinnar þar eptir við- tekin. Konungsfrumvarpið um Ijósmœðraskipun er bygt á uppáslungu frá stiptamtmanninum, er var. í frumvarpinu er talað um, að brýna nauðsyu beri til að gjöra verulega breyting á Ijósmæðraskipnn hér á landi. Nú eru að eins skipaðar 65 ljósmæðr, og af þeim 37 i suðrumdæminu, eðr hér um bil 1 fyrir hverja 650 manns og hverjar 12 fæð- ingar; 8 í vestrumdæminu eðr að tiltölu 1 fyrir hverja 2,125 manns og hverjar 69 fæð- ingar, og 23 í norðr- og austrumdæminu eðr að tiltölu 1 fyrir hverja 1,200 manns, og fyrir hverjar 39 fæðingar. Til launa handa þessum 65 Ijósmæðrum eru að eins veittir 100 rd. als. ' Til þess að bæta úr þessum skorti á Ijósmæðrum, stingr frum- varpið upp á því, að stofnuð verði nokkur Ijósmæðraembætti í hverri sýslu með 20—30 rd. árlegum launum. Hver sýsla eigi sjálf að launa Ijósmæðrum sínum, og eigi sýslunefnd- in og amtsráðið að ákveða, hve margar Ijós- mæðr eigi að vera ( sýslunni. Nefndin stakk upp á því, að alþingi beiðist þess, að konungrinn fresti því að sinni, að gjöra frumvarpið að lögum, og færði einkum þá ástæðu til, að ókleyft mundi verða fyrir sýslusjóði eðr landssjóð að bera þann kostnað, er leiddi af fyrirkomulagi því, er stungið var upp á, enda væri það tekið skýrt fram af flestum, ef eigi öllum, af bænar- skrám þeim, er komið hafa til þessa þings frá þjóðinni, að þingið ráði frá öllum nýum álögum á landið, svo lengi alþingi eigi hefir fengið löggjafarvald og fjárforræði. t’ingið aðhýltist tillögu nefndarinnar. Frumvarpið um stofnun sjómannashóla er svo undirkornið, að alþingi 1869 ritaði konungi bænaskrá og beiddi þess, að sjó- mannaskóli yrði sem fyrst settr hér á landi, þar sem mönnum gæfist tækifæri á að læra sjómannafræði, og að við skóla þenna yrði seltr 1 launaðr kennari. Konungr svaraði, að hann væri málinu hlyntr, en að fé vantaði til að stofna skóla þann, er alþingi hafði beð- ið um, og ritaði þá alþingi 1871 konungi bænarskrá, þar sem beðið var um, að þeim, er notið hefðu kenslu hjá innlendum sjó- mannafræðingum, gæfist kostr á ókeypis að ganga undir próf hjá skipstjórnarmanninum á póstgufuskipinu eðr foringjanum á inu danska herskipi hér við landið ásamt kenn- aranurn í reikningslist við inn lærða skóla hér í Reykjavík, og að þeir, er staðist hefðu þetta próf, fengju in sömu réltindi, sem danskir stýrimenn. í frumvarpi þvi, er nú kom fram, er gjörl ráð fyrir að stofnaðr verði skóli í Reykjavík, og við hann settr einn kennari, að próf í sjómannafræði verði haldið við þenna skóla tvisvar á ári, og að hverjum manni, er hefir verið í fðrum (siglt á þilskip- um) í 4 mánuði, verði Ieyft að ganga ókeypis undir prófið. Eins og vér höfum áðr skýrt frá, fá þeir, er lokið hafa þessu prófi, ein- ungis heimild til að vera skipstjórnarmenn og

x

Víkverji

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkverji
https://timarit.is/publication/99

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.