Víkverji

Tölublað

Víkverji - 09.10.1873, Blaðsíða 2

Víkverji - 09.10.1873, Blaðsíða 2
110 LATÍNUSKÓLINN. Fyrsta dag október- mánaðar kl. 11 f. m. var skóli settr. Voro þar við staddir skólakennararnir og allir skóla- piltar, þeir er þá voru komnir til bæjarins, og nokkrir menn aðrir. Skólasetningin byrj- aði með því að sungið var eilt vers. Að því búnu lýsti skólastjórinn yfir því, að skólinn væri settr, sagði skólapiltana vel komna og kvaðst óska og vona, að samvinnan milli kennaranna og lærisveinanna mundi á þessu skólaári fara vel og farsællega, eins og að undanförnu og fór því næst nokkrum orð- um nm, hvað nauðsynlegt væri afhálfu hvorra- tveggju, kennaranna og lærisveinanna, til þess að slík samvinna gæti gengið vel. I*ví næst las hann upp skólaröðina, til þess að vita, hverjir væri enn ókomnir af skólapiltum og voru þeir 7; þá las hann upp skólareglnrnar ogútlistaði þær fyrir nýsveinunum. Því næst las hann upp bréf frá yfirstjórnöndum skól- ans um ölmusuveitingarnar. Þá talaði hann um nýsveinapróf og próf nokkurra inna eldri pilta, er eigi höfðu getað lokið prófi sínu í júnímánuði, og um ið venjulega bókauppboð skólapilta. Um skólabækr tók hann það fram, að hver piltr þyrfti að eiga orðabók og mál- fræði í hverju því máli, er hann lærði í skól- anum. Athöfnin endaði með því, að eitt vers var sungið. 1. og 2. dag októbermánaðar var próf- aðr og því næst tekinn f neðsta bekk ný- sveinninn Niels Michael Lambertsen, fæddr 2’/t 1859, Lambertsensson verzlunarmanns f Reykjavík. 4. þ. m. kl. 4 e. m. d. byrjaði undir- búningslestrinn á skólanum og fer hann, svo sem áðr hefir vcrið, framvegis fram á hverj- um degi frá 4.—7. st. og 8.—10. st. síðara hlut dags. Kenslan byrjaði 6. þ. m. kl. 8 um morg- uninn og fer framvegis fram frá 8.-2. st.fyrra hlut dags, 6 stundir á hverjum virkum degi, og er þar að auki piltum kend leikfimi í hverjum bekk 2 stundir í viku. Kennararnir eru inir sömu og í fyrra, nema að trúarfræði nú er kend af kandídötunum Steingrími Hannessyni, erþarað auki kennir dönsku 4 tlma í viku, og Lárusi Haldórs- syni, og hafa stiptsyfirvöldin sett báða þessa kandídata til að hafa þessa kenslu á hendi. Síðan er sira Jónas flutti sig héðan úr bæn- um og Jens rektor andaðist, liefir skólinn engan fastan kennara haft f trúarfræði. MANNSKAÐI Á FLÓAA.’ANNA-AFRÉTTI. Skilvís maðr i Gnúpverjahreppi hefir ritað oss um mannskaða þan, er þar varð í in- um síðustu fjallgðngum, þannig: Næstliðinn mánudag (22. sept.) var hér dæmalaus rign- ing mestallan daginn og hleypti því ógnafiugi í allar ár, og einna helst í smá-ár. Seint þann dag komu 4 menn sunnan úr Flóa, sem ætluðu til fjárleita, að Þverá — hún rennr hér ofarlega um hreppinn í Þjórsá milli Foss- nes og Haga. Áin var orðin mikil. Tveir af mönnum þessum riðu út í; komst annar upp yfir, en hinn fór af hestinum í kafinu og tók straumrinn, sem er mikill í ánni, við honum, og flutti hann fram í Þjórsá. Hestrinn komst á land, en maðrinn hefir eigi sést síðan. Sagt er, að hann hafi heitið Helgi Helgason frá Hellukoti í Stokkseyrarhrepp, ungr maðr. Daginn eptir urðu 5 norðrleitarmenn úr Fló- anum á undan hinum leitarmönnum fram f Grímsstaði, áfangastað fjárleitamanna, er svo heitir. Það er gegnt Hrunakróki í Ylrahrepp. Þeim kom til hugar að fara, meðan þeir biðu, út yfir ána að Hrunakróki til þess að fá sér hressingu þar, en áin var mikil, því að lítið var hún farin að minka. Tveir komust út yfir, en er þeim varð litið aptr, voru sam- ferðamenn þeirra losnaðir við hestana í straumhörðum áli; hann er vestan til í ánni. Einum þeirra skolaði upp, en hinir tveir voru horfnir, og sást hestr annars þeirra veltast í ánni, og hefirhann líklega dottið; allir hestarnir komust upp úr ánni, en ekkert sást framar til þeirra 2 manna, er voru horfnir; þeir voru báðir úr Hraungerðishreppi, annar Jón Magn- ússon frá Sölvhoiti, hinn Guðmundr Þórar- insson frá Þorleifskoti. Þá er þetta fréttist, var farið til leitar, og leituðu allir þeir, er land eiga að Laxá; fanst þá lík Guðmundar; það var rekið upp á eyri eina, er á vaði er í milli Lagsárdals og Hörgsholts. Þella var fimludaginn 25. þ. m. Lík Jóns fanst inn sama dag að kveldi á Hlíðareyrum framur f Laxá.

x

Víkverji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkverji
https://timarit.is/publication/99

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.