Víkverji

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkverji - 25.10.1873, Qupperneq 3

Víkverji - 25.10.1873, Qupperneq 3
123 að læknir Jónas Jónassen móti launum þeim, sem honum eru veitt samkvæmt allra- hæstum úrskurði 3. ágúst 1868 sem settum héraðslækni í nokkrum hluta þess læknisum- dæmis, er lagt er undir landlæknirinn, auk þess, sem áðr, að starfa sem settr héraðs- læknir í Kjósarsýslu, enn fremr sem settr gegni héraðslæknisstörfum í Reykjavíkrkaup- stað og Selljarnarnes og Álptaneshreppum í Gullbringusýslu, á meðan landlæknirinn er laus við héraðslæknastörf, en losist þarímót við héraðslæknisstörf í inum öðrum hluta nefndrar sýslu — á Suðrnesjum — og að lækniskandidat þórðr Guðmundsen, er seslr er að sem praktiserandi læknir í Njarð- vík í Gullbringusýslu, verði frá 1. júlí þ. á. veittr styrkr sá, sem ákveðinn er með allra- hæstum úrskurði 10. maí 1867, en þá gegni héraðslæknisstörfum á Suðrnesjum. Eins og kunnugt er, er slyrkr þessi 400 rd. á ári hverju, og verðr hann hækkaðr um lOOrd. fyrir hver þrjú ár, sem læknirinn fæst við lækningar, þangað til hann er orðinn 800rd. — EPPFÓSTR RARNA. Eptirfylgjandi slultar reglur fyrir uppfóstri ungbarna finnast prenlaðar í Edinborgar «Medical Journal« fyrir febrúarmánuð. 1. Hreinlœti, hlýindi, hreint andrúmslopt; haldið börnunum heitum; látið föt þeirra vera heit, en þó eigi þröng. Koið þeim daglega vandlega úr hreinu volgu vatni, og þerrið þau vel og vandlega eptir þvotlinn. Látið börnin hafa nægt hreint (en þó eigi kalt) and- rúmslopt. Látið þau koma út, þó eigi sé nema um stutta stund, þegar veðr leyfir, og ljúkið vel upp öllum gluggum til að hreinsa herbergið, meðan börnin eru úti. 2. Fœða barnanna, rneðan þau eru eigi fullra 7 rnánaða. Móðurmjólkin er in nátt- úrlegasta og þess vegna einnig in hollasta fæða fyrir ungbörnin. Hafi móðirin nægilega og góða mjólk, þá gefið barninu enga aðra fæðu, uns það er 7 mánaða gamalt. Ilafi móðirin of litla mjólk, þá látið barnið þó fá það, sem til er; en bætið þá við það kúa- mjólk samkvæmt þeim reglum, sem frá er skýrt við 3. tl. Mjólk og mjólkin ein á að vera fæði barnsins, uns það er 7 mánaða gamalt. 3. Vrn það, hvernig börn shuli fceða við pelann. Geti móðirin einhverra orsaka vegna eigi haft barnið á brjósti, verðr að fóstra það upp við pelann; en í pelanum skal vera vatni blandin mjólk. 1 fyrstunni skal hafa jafnt af mjólk og vatni, en þá er barnið er mánaðar- gamalt, á að blanda 2 pörtum mjólkr við I part af vatni; að þeim tíma liðntim skal smátt og smátt minka valnið, svo að barnið, þá er það er 4 eða 5 mánaða, fái að eins tóma óblandaða mjólk. Reri það að höndum, að barnið sýnist eigi að þola mjólkina, heldr verði því ilt af henni, þá skal láta litla mat- skeið af hreinu kalkvatni í hvern mjólkrpela. Varist um þenna tíma, að gefa barninu nokkra aðra fæðu en mjólkina. Fjöldi þeirra barna, sem uppfóstruð eru við pelann,deya á ungu aldri; en þetta kemr að mestu leyti af því, að menn byrja of snemma að næra börnin á mjöl- eða hveitis-graulum. Slíka fæðu má als eigi gefa börnum, meðan þau ertt ekki 7 mánaða að aldri. Á meðan barnið eigi er eins mánaðar, þá gef því aldrei meira í senn, en sem svari hálfum kaffibolla af mjólk og vatni. Pelinn, sem barnið sýpr úr, verðr að selja mjólkina eða mjólkrblandið liðugt, og hann ber vandlega að þvo eða skola innan í hvert sinn, áðr á hann er látið að nýu; sé þetta vanrækt, verðr mjólkin súr og óholl fyrir barnið. Tappan í mjólkrpelanum og pípuna, sem barnið sýgr úr, verðr og af sömu or- sökum að hreinsa vel og vandlega í hvert sinn og lálið er á pelann. (Framhald síðar). PÓSTFERÐIR. Póstskipið var ferðbúið héðan sunnudagskvöld 19. þ. m. Það hafði 17. þ. m. farið sttðr ( Hafnarfjörð til þess að afferma og taka inn vörttr. Fjöldi fólks héðan úr bænum og frá Hafnarfirði fékk far með því kauplaust, en var þá eigi heldr séð um, að fólkið yrði fiutt ( land, og urðu sumir að bíða fleiri tíma tim borð, fyr en þeir gálu komist í land og afgreitt erindi sin. Mánu- dagsmorgun 20. þ. m. lagði skipið á stað í góðu veðri, það hvesti eptir hádegi en lygndi aptr um miðnætli og þriðjudagsmorgun var

x

Víkverji

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkverji
https://timarit.is/publication/99

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.