Víkverji

Tölublað

Víkverji - 06.12.1873, Blaðsíða 1

Víkverji - 06.12.1873, Blaðsíða 1
Afgreiðslustofa «Vtk-1 verja» er í húsi Teits . dýralœkn. Finnboga-' sonar. Verð blaðs- ins er 8 mrk um árið, 2 mrk um ársfjórð. r '« Vikverji» kemr út á hverjum uirkum laugardegi. Borgun fyrir auglýsingar 4 /3 fyrir smáletrs- Unu eðr viðlíkt rúm. >waiiwæM^i , a m # 1 ta dag innar 7duviku vetrar, laugard. 6. dag desembermán. Vilja guðs, oss og vorri pjóð nnnum, á meðan hrœrist blóð. 1. ár, 2. ársfjórðungr, 38.—39. tölublað. AÐ VESTAN. ísafirði 11. nóvbr. 1873. fielstu frétlir eru: Verslun fremr erfið og lík því, sem er á Suðrlandi. Grasbrestr einstakr næstliðið sumar. Norðanköföld með ákafri snjókomu og jarðbanni fyrir allar skepnur því nær síðan a IMikaelsmessu, hey urðu víða undir snjó, eldiviðr einnig; fyrst 8. þ. m. komu umskipti með hláku og hag- beit. Fiskiafli fremr lítill, Ilákallsafli í sum- ar misjafn, hjá sumum góðr, nál. 300 tunna lifrar hjá sumum fyrir innan 100 t. Fremr kvillasamt í sumar af taugaveiki og lungna- bólgu. Skógarströnd I. nóv. mán. í full 30 ár eða jafnvel lengr hefir ekki verið jafnstöðug vveðrátta, hretviðri og fannalög hér um sveitir ( oklóberm., eins og í þessum næst- liðna. Veðráttan í októbermán. 1868 var nokkru skárri. Frostin hafa þó ekki verið að því skapi sem illviðrin hafa verið. Mest frost varð hér þann 25. -j- 6° R., en að jafnaði 2° og 3°. Loptþyngdarmælirinn var á sffeldri rás upp og niðr, hæstr inn 13. 28"8, og lægstr inn 9., 27”3. Mestu of- viðrin af norðri urðu hér inn 9. 10., 22.— 24.; í því veðri löskuðust sumstaðar skip, 28. og 31. Til íhugunar eptirleiðis vil eg geta þess, að allr fjarski af snjótitlingum sókti heim til bæja í byrjun októbermán. og héldu sig þar i stórhópum. tá er og annað sem eg tók fram í næstliðnum septmán., er greindr og gamall maðr hafði frætti mig um og sem eg nú í 3. sinn hef orðið var við, það er inn svonefndi vetrarltvíði. Þegar menn þá logn er og lopt heiðskýrt, eru á gangi að morgni dags eða kvöldi þar sem þýft er og nokkuð loðið, sjást þegar horft er móti sólu, örmjóir gljáandi þræðir er liggja strá af strái milli þúfnanna og eru á digurð við þræði í göngurófarvef. Þessir þræðir eru 145 nefndir vetrarkvíði og eiga að vita á harð" indi. Mér þvkir líkindi til að þræðir þessir séu frosin dögg og myndist af þungu og köldti loptslagi og er þá eðlílegt þótt þeir viti ekki á gott. — Heilsufar fólks hefir mátt heita sæmilegt, þó hefir bólguveikin gjört vart við sig á stöku bæjum og eins in svo nefnda landfarsótt eða taugaveiki, sem er ið sameiginlega sveita nafn yfir sóttveikis- tegundir þær, sem læknar nefna ýmsum nöfnum: týphus, taugafeber, slímfeber, ga- strisk feber, m. fl. — Haustslcurðr heíir orðið með betra eða jafnvel með besta móti. Iljá búanda nokkrum, sem lét skera 30 sauði gamla og 20 ær flestar mylkar eða lambs- gotur, varð meðaltal af sauðunum 55 pd kjöt, 14 pd mör, en af ánum 37 pd kjöt, 7*/, pd mör. Þegar greina skal frá meðaltali um mörg ár á haustskurði sauðfénaðar í Breiða- fjarðardölum og nærsveitunum hér í kring, þá má gjöra ráð fyrir að gamall sauðr gjöri 50 pdkjöts, 12pd mörs, 4 \l3 pd ullar. Tvæ- vetr sauðr40 pd kjöts, 9 pd mörs, 4pd ullar. Geld ær ámóta og tvævetri sauðrinn, mörinn verðr nokkru meiri, ullin aptr minni. Vetr- gamalt fé, 35 pd kjöt, 5 pd mör, 3'/2 pd ullar. Mylkar ær á borð við vetrgamalt fé, mör meiri ef til vill, ull rýrari. Dilkar gjöra 30 pd kjöt, 4 pd mör, 3 pd ullar. Hag- færingslöníb 18 pd kjöts, 11/3 pd mörs,2 pd ullar'. Haustselaafli varð að sögn með besta móti. Eptir þeim lausafregnum. sem hingað 1) Besta saatiir gaojllr gjöra: 60—80 pd kjöts, 18—25 pd mörs 6pdullar; tvætetrir: 50 — 55 pd kjöts, 12 —15 pd mörs 5 pd ullar; vetrgama|t: 40-50 pd kjöts, 10 —15 pd mörs 4 pd ullar; ærgeldar: 50—55 pd kjöts > 15— 20 pd mörs 4 pd ullar; mylkar ær: 40 pd kjöts 10 — 12 pdmörs 4 pd ullar; dilkar: 40 pd kjöts, 8 — 10 pd mórs 4 pd ullar; hagfæringar: 20—25 pd kjöts, —5 pd múrs 3 pd nllar.

x

Víkverji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkverji
https://timarit.is/publication/99

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.