Víkverji - 06.12.1873, Qupperneq 2
146
hafa borist, hefir átt að fást á Reykhólum
170, í Akreyum 90, í Fagradal innri 30, á
Ballará 30, á Skarði 20, í llvalseyum 90, í
Tjaldseyum, sem liggja undir Miklaholt, 60
haustselir, víðar hefi eg ekki heyrt töluna
nefnda, en miklu víðar er þó haustselaafli
nokkur. |>essi haustsela-útselakópa-afli eru
ein in fljótteknustu og fyrirhafnarminstu
hlynnindi. Fyrirhöfnin er sú, að þá menn
ætla að kópar þessir séu mátulega vaxnir,
sem nú er í miðjum október, fara menn á
skipi í sker þau eða eyjar, sem kóparnir eru
fæddir og uppaldir á, og sem þá eru 3 vikna
eða mánaðargamlir, og rota þá til dauðs i
bólum sínum, og flytja síðan heim, selja svo
annaðhvort kápuna o: skinnið og spikið sam-
fast til þeirra, er stunda hákarlaveiðar f beitu
fyrir hákarl, eða þeir verka skinnið sér, en
bræða spikið til lýsis. Þessi. selafli er hér
vestanlands ekki minni árlega en 500 selir
stærri og smærri, þar á meðal nokkrir roskn-
ir, sem nást um leið og inir ungu eru drepnir.
Það mun nær sanni að gjöra hvern að 4 dale
virði, og verðr þá npphæðin árlega 2000 rd.
Það mætti rita allsnotra sögu um in helztu
selakyn, sem vér Islendingar höfum not af,
en í þessum fréttapistli á það ekki við að
fara lengra út í það mál. — Ftskiafla-fregmr
eru mjög litlar, enda hafa verið nú í langan
tfma einstakar ógæftir. — Verslun í Stykk-
ishólmi hefir veriö með daufara móti f baust.
Það heitir varla að aðrar verslanir en Clau-
sens verslun þar hafi haft nokkru að miðla.
Möller apótekari, sem er cborgario jafnframt
því, sem hann er lyfsali, fékk að vísu
nokkra vöru, en hún þraut brátt. S.Richter
kaupmaðr á von á vöru frá Höfn, í þessum
mánuði. In norska verslun er hætt með öllu,
en í ráði er, að f hennar stað byrji Dala-
verslunarfélagið vérslun að vori komanda.
Verðlag á danskri vöru var ið sama sem í
sumar, nema á kaffi, pundið á 48 sk., og á
bankabyggi tunuan á 16rd. íslenska varan
mun hafa verið tekin þannig: kjöt á 8—9
mrk lýsip,; ull hvít 28 sk. pundið; tólg 18
eða 20 sk. pundið; mör 16 sk. pundið. Ann-
ars er fé flest á fæti tekið og sækja kaup-
menn það heim í sveitir, og láta sendimenn
sína semja þar um verðið við þá, er úti lála.
í 'haust vildu kaupmenn ekki fé nema upp f
skuldir, og gáfu nálægt þessu fyrir það:
Fyrir gamla sauði 10 rd., tvævetra og geldar
ær 8 rd., vetrgamalt fé og mylkar ær 5—6
rd. Þetta má að vísu heita hagfelt verð fyrir
seljanda, einkum þegar hann þarf ekkert að
hafa fyrir rekstri fénaðarins í kaupstaðinn,
en því að eins er það hagfelt, að seljandi
taki nauðsynjavöru út á andvirðið fyrir fe
sitt, og líði ekki þröng f búi á eptir. Ann-
ars er haustverslunin að mínu áliti nijög var-
úðarverð og gott að geta komist sem mest
hjá henni, en reyna til að hafa sumarversl-
unina þeim mun drjúgari.
Steingrímsfirði 27. október 1873.
Vetrarveðráttan hófst á þessum kjálka landsins
um og framúr Mikaelsmessu og hefir haldist síðan,
snjókoman hefir verið svo mikil, að yfir ýmsa
fjallgarða er alveg ófært nema á sldðum, og illfært
moð hesta í bygð, svo að segja haglaust á sumum
stöðum, en kýr teknar inn 5 vikum fyrir vetr.
Fistíafli hefir verið í minna lagi i haust vestra við
ísafjarðardjúp, en hér við Steingrímsfjörð með minsta
móti. Sauðfé hefir skorist i hesta lagi, heilsufar
manna er og heiir verið gott. ]>að er sagt, að alt
sé fult af hafís fyrir Hornströndum,
enda sýnist veðráttan eigi leyna |>ví.
HÁSKÓLINN f IÍAUPMANNAHÖFN. Þess-
ir fslenskir stúdentar lesa í Kpmhöfn í vetr:
forspjallsvísindi Björn Jensson heitíns skóla-
stjóra, Hallgrímr Melsteð Pálsson heitins
amtmanns og Eikarðr Olavsen Sveinbjörns-
son, heitins kaupmanns í Keflavík.
Lög: Björn Jónsson heilins bónda í Djúpa-
dal í Barðarstrandarsýslu, Kristján Jónsson
alþingismanns á Gaullöndum, Páll Sigfússon
trésmiðs í ísafirði og Sigurðr systurson
Jóns alþingismanns ísfirðinga;
stjórnfræði: /VuZnðiEinarsson heitins bónda
á Krossanesi í Skagafirði og Þorleifr Jóns-
son heitins bónda á Arnarbæli í Dalasýslu.
Læknisfræði: Guðni Guðmundsson bónda á
Mýrum við Dýrafjörð.
Málfræði: Björn Olsen Magnússon umboðs-
manns á Þingeyrum.
Tafla, yfir samjöfnuð milli hinnar nýu
krónumyntar og ríkismyntar, mnn, eptir