Víkverji - 15.04.1874, Side 1
A fgreiðslustofa «Vík-
verja« er í húsi Teits .
dýralœkn. Finnboga- '
sonar. Verð blaðs-
ins er 8 mrk um árið, 1
2 mrk um Arsfjórð.
M
Vfkverji* kemr út á
hverjum virkum
laugardegi Borgun
fyrir auglýsingar
4 fl fyrir smáletrs-
línu eðr viðlíkt rúm.
5ta dag innar 25tu vikn vetrar,! Vilja guðs, oss og vorri þjóð 1. ár, 4. ársfjórðungr,
miðvikud. 15. daga prilmán. !vinnum, á meðan hrœrist blóð. 60. tölublað.
AUGLÝSING FEÁ pJÓí)VINAFÉLAGINU.
Eptir uppástungu ýmissa Islendinga, áskorun
forseta pjóðvinafélagsins og ályktun forstöðunefndar
féiagsins í Keykjavík er svo til ætlast, að f u n d r
verði haldinn á þingvöllum við Öxará
í s u m a r í minningu pess, að landið hefir hygt
verið í 10 aldir, og jafnframt til að ræða ýms al-
menn umvarðandi landsmál, og er svo tilætlast, að
fundr pessi verði haldinn dagana 5.-7. ágústmán-
aðar, ]>annig að fundrinn byrji inn 5. dag um dag-
málabíl. I nafhi og fyrir hönd forstöðunefndar fijóð-
vinafélagsins skora eg pví hér með á alla fulltrúa
pjóðvinafélagsins, að gangast fyrir ]>ví, hver í sínu
kjördæmi, að i hveiju kjördæmi landsins verðikosn-
ir 2 menn, til að sækjafund þenna fyrir höndkjör-
dæmisins, og ættu allir þessir kosnu menn að vera
komnir á pingvöll að kvöldi ins 4. dags ágústmán-
nðar. Að öðru leyti verðr nú sem stendr eigi gjörð-
ar nákvæmari ákvarðanir um fundarhald þetta. Svo
er tilætlað, að hvert kjördæmi kjósi að eins innan-
héraðsmenn og annist um allan kostnað þann, sem
af þessari ferð þoirra leiðir.
Reykjavík 13. dag aprílm. 1874.
II. Kr. Friðriksson.
— Um húsbrunann á Mööruvöllum í
Hörgárdal 21. f. m. eru nú konmar nákvæmari fréttir,
Skrifari amtmannsins, Jón Kristjánsson, varð
fyrstr var við eldinn. Laugardagsmorgun 21. f. m.
vaknaði hann milli óttu og miðsmorguns. Honum
varð litið til gluggans á svefnherbergi hans, sem
var á lopti uppyfir skrifstofum amtmanns, og sá
hann þá mikinn glampafyrir utan. Hann hljóp þá
fram á lopt og vakti vinnumennina, fór svo aptr inn
í herbergi sitt og fleygði sér í fötin; en er hann
ætlaði aptr fram og ofan stigann frá loptinu niðr í
forstofuna, var alt orðið fult með reyk, svo að hann
sá eigi annað fært, en að stökkva út um gluggann.
Vinnumennirnir urðu þegar varir við reykinn, 2
urðu liálfnaktir að fleygja sér út um glugga ofan
á snjóinn, en einn komstofan stigann ogvakti fólk
það sem niðri svaf. þegar hann fór ofan sá hann
liurðina að skrifstofunni hrenna, og þegar dyr og
gluggar voru opnaðir læsti eldrinn sig í einu vet-
fangi um alt húsið. þegar amtmannsskrifarinn Jón
Kristjánsson var kominn ofan og hafði séð, að alt
logaði í skrifstofunum, svo að eigi var hugsandi til
að bjarga neinu úr þeim, hljóp hann suör og austr
fyrir húsið, þangað sem hann vissi að amtmanns-
fólkið hafði svefnherbergi sin. Frú og fóstrbörn
amtmannsins voru þá að fara út um gluggana eins
og þau voru komin úr rúmunum, en amtmaðrinn
hafði úr svefnherberginu farið inn í hversdagsstofu
húsins til þess að komast inn í skrifstofuna og
bjarga þar því sem bjargað yrði. Jón fór þá þeg-
ar inn í húsið, og bjargaði með naumindum
út um glugga amtmanninum, sem nærri því var
kafnaðr af reyk. þegar vinnumennirnir fóru ofan,
var kallað til vitfirrings Sigurðar að nafni Bjarna-
sonar, sem einnig lá á loptinu, en þegar nú var
búið að bjarga amtmannsfólkinu söknuðu menn
Sigurðar og var þá gerð tilraun til að komast inn
til hans, en eldrinn og reykjarmökkrinn stóð nú út
um alla glugga hússins og var eigi tilhugsandi að
fara þar inn.
Nú leið eigi á löngu áðr en þakið logaði alt, og
menn fóru að verða hræddir um kirkjuna og bæinn,
en þegar menn voru komnir alstaðar að frá næstu
bæum, tókst þeim að sporna við þvf, að eldrinn næði
til annara húsa, en enginn vegr var að ná nokkrum
munum úr húsinu, ogfyrst þegarþakið var brunnið
og eigi stóð annað eptir af Friðriksgáfu en veggirnir
berir, gátu menn farið að slökkva eldinn með því
að bera vatn og snjó inn í rústirnar. Nú var farið
að vitja um járnskáp, er amtmaðr geymdi f peninga og
peningaskjöl embættisins og fanst hann í rústunum
óskemdr. Lykillinn að honum, er amtmaðrinn var
vanr að geyma undir sængrkodda sfnum, fanst þar
sem rúm amtmannsins hafði staðið, og er sagt, að
skjöl og peningar hafi fundist alvegóskemdí skápn-
um, nema að svo miklu leyti sem lakkið á skjölun-
um hafði hráðnað.
Menn telja það víst, að eldrinn hafi kviknað í
ytri skrifstofu amtmannsins og sást í rustunum að
ofninn þar hafði fallið til hliðar, en allir aðrir ofnar
í húsinu höfðu sígið beint niðr. Ekkert ljós hafði
verið kveykt um kveldið á skrifstofunum. Skrifar-
inn hafði áðr en hann háttaði um 10. st. (e. md.)
komið inn í ytri stofuna og engrar nýlundu orðið
þar var, og sömuleiðis hafði vinnumaðr, er kom beim
seint um nóttina frá Akreyri, og 2var hafði farið
fram hjá skrifstofu gluggunum eigi tekið eptir neinu.
Á fleirum bæum í grend við Möðruvelli, og á Akr-
eyri, höfðu menn fundið jarðskjálfta um nóttina. Ilans
urðu menn eigi varir á Möðruvöllum, þar sem allir
67