Víkverji - 25.06.1874, Blaðsíða 3

Víkverji - 25.06.1874, Blaðsíða 3
123 um, þegar þeir eiga a8 fara a8 borga gufuskips- ver8i8. RitaS á Bótólfsmessu 1874 Hvítr Pjóðvinr. — SALTFISKSVERKUNIN. (Aðsent). í 33. tölubl. »Þjóðólfs« bls. 135, kemr greinar- korn fram á skoðunarsvæðið með undirritun »Nokkrir sjávarbændr», en eptir því sem kunnugt er um grein þessa, áðr hún kom á prent, hefði maðr heldr álitið betr við eiga, að greinin hefði verið staðfest með undir- ritun »sjávarbóndi nokkr«, enn sleppum nú því, þó höfundinum, sem ekki mun vera nema einn, einhverra áðstæðna vegna, hafi andast í brjóst að bæta »nokkrum« við, og gjöra undirritunina þar með fjölmennari. — Ekki hefði eg ætlað mér að fara útí blaðamál, en sökum þess að höfundinum heflr þóknast að koma mér þannig á framfæri við almenning, sem grein hans með sér ber, þá finn eg á- stæðu til að fara hér um nokkrum orðum. Fyrir nokkuð löngu síðan, áðr grein þessi kom út í Þjóðólfi, höfðu kunningjar mínir hér í bænum, gjört mig varan við, að fiskimaðr nokkur hér í bænum, að líkindum höfundr greinarinnar, hefði skýrt þeim frá, að frá honum ætti bráðum að koma grein í Þjóðólfi, út af meðferð minni á fyrirmyndar- fiski hans, næstliðið ár; en satt að segja hugði eg, að grein hans mundi koma fram í nokkuð öðruvísi búningi, eptir því sem fram hafði farið, enn nú má virðast, eptir þvi sem stendr í Þjóðólfi, og er það jafnan óþægi- legt, þegar menn á framfarastigi, og sem snjallir mega álítast, í tilraunum sínum i almennings þörfum og vinsældar (populair) augnamiði, bera á borð fyrir almenning lil- hæfulausan óhróðr um aðra, því það má fullkomlega svik kalla. Eins og mörgum mun kunnugt, bæði af skýrslum herra Jóns Sigurðssonar í Kaup- mannahöfn, sem og öðru fleiru, hefir sunn- lenskr saltfiskr, á mörkuðum á Spáni, verið álitinn lakari vara en vestrlenskr saltfiskr, og þvi selst þar við nokkuð lægra verði, og hafa menn þvíáýmsa vegu verið að grensl- ast eptir, hvar í þetta gæti legið, og þó meiningarnar hafi orðið nokkuð skiptar, hafa menn samt sem áðr komist að þeirri niðr- stöðu, að ein af inum verulegustu orsökum þessa, mundi liggja f því, að vestrlandsfiskr- inn væri langtum saltbornari. — Út af þessu munu ekki allfáir fiskimenn við Faxaflóa (og að öllum likindum þar á meðal höfundr greinarinnar í þjóðólfi, þó langt sje frá því, að hann hafi verið frnmkvöðull þess), þegar á vetrarvertíð 1873, hafa gjört þá tilraun, að salta fisk sinn talsvert meira en að und- anförnu; og hvort sem það nú beinlínis hefir verið að þakka söltuninni á fiskinum, þá má þó fullyrða, að sunnlenskr fiskr, næstliðið haust, mun hafa náð óvanalega góðu áliti á Spáni, og kaupendr hans þar, að jafnaði á- nægðari með farmana en að undanförnu, og væri því ekki óhugsandi, að hlutfallið milli verðhæðar á veslrlands- og sunnanlands-flski gæti farið smá minkandi. (Framhald síðar). — FERÐ KONUNGS HÉR Á LANDI. Skiln- ingr pjóðólfs hofir aldrei veri8 gó8r, en pegar hann ná vill skilja grein vora í sí8asta tolublaði þannig, a8 vér ætlubum konungi ab krefjast hesta afbænd- unum, „hverra líf æra og aðfærsla til lífe og sálar svo lengi hefir dafnað og dependerað af kongsins náð“. — pá virðist ástæða til að efast um, að inn heiðraði blaðabróðir vor sé með sjálfum sér, þvívér ætlum hann of góðan dreng til að vilja rangfæra orð náungans, einkum þegar um sóma þjóðarinnar er að ræða. Vér getum nú með pjóðólfi „fullvissað aUan almúga hér á landi“ um, að konungr vor muni ekki láta „skrifa út“ hesta til ferðar sinnar hér á landi, en hinsvegar getr enginn efi verið um, að hann hefði rétt til að gera það, enda þorir ekki pjóðólfr að vefengja þenna rétt, og það er einungis nýr vitnisburðr um traust konungsins til þegna sinna hér á landi, að hann hefir álitið það ónauðsynlegt, að nota vald sitt í þessu efni, Menn ættu því sem allra fyrst að taka mál þetta fyrir í inum einstöku sveitum, sem geta náð hingað, og teljum vér þar til alla hreppa í Gull- bringu, Kjósar, Ámes, Rangárvalla, Borgarfjarðar- og Mýra-sýslum, og væri það ef til vill vel fallið, að inar nýkosnu sýslunefndir í þessum sýslum tæku málið til íhugunar og framkvæmdar. Hér í bænum hafa 3 menn, bamask.yfirkennari Helgi Helgesen, kaupmaðr Hannes John- s en og sjávarbóndi Geir Zoega, þegar gengið ótilkvaddir i nefnd til að útvega hesta, og munu þeir sjálfsagt vera fúsir til, að ráðstafa öllum þeim hestum, sem fram yrðu boðnir, og útvega bændum þeim, er fyrir hönd sveitunga sinna byðu hestana

x

Víkverji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkverji
https://timarit.is/publication/99

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.