Alþýðublaðið - 30.04.1960, Blaðsíða 8
fyrir fírætt.
OPINBERAR heimildir í
Moskvu upplýsa, að í Sov-
étríkjunum séu 100 manns
á aldrinum milli 120 og 150
ára. 9500 manns eru komnir
yíir tírætt. Það er að segja:
81 af milljón eru 100 ára
eða meir. í Bandaríkjunum
eru 30 af milljón 100 ára.
Rússneskir vísindamenn
telja, að það sé of snemmt
fyrir mann að deyja, áður
en hann nær tíræðisaldri og
finna verði ráð til þess áð
að fjarlægja orsakir þess, —
að menn deyji fyrir þann
aldur.
Vantar
bófa
TILFINNANLEGUR skort-
ur á „skúrkum" gerir nú
var.t við sig við amerískar
sjónvarpsstöðvar.
Orsök þessa er, að hafi
einhver bófi verið skotinn
í sjónvarpinu þykir óvið-
kunnanlegt að láta hann
koma ljóslifandi fram viku
seinna. „Almenningur neit-
ar“, segja leikstjórarnir. —
„Við megum ekki láta „hina
dauðu“ sjást aftur í lengri
tíma“. — Af þessu leiðir að
nú gerist fátt um bófalega
menn, sem leikið geta dauða
hlutverkin í sjónvarpinu og
er jafnvel um það rætt
vestra, að nauðsyn muni
bera til að flytja inn skugga
lega náunga erlendis frá.
FRAMMJÓIR eins og fuglsnef eiga skór enskra unglings-
stúlkna að vera í ár, ef þær vilja fylgjast með tízkunni.
Þægilegir eru þeir ekki, — en það skiptir auðvitað litlu
máli . . .
aimimiimiiiitiiiiimuiiiiHiiiiiiiiMHuuiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiinuiuiiiuniiummiiimmiiiiuiiiiiimmii
Shiriey Temple
er orðin 32 ára
GEFIÐ hinum hrein
skilna, sannorða manni
fljótan hest. Hann mun
þurfa hans með.
Armenskt máltæki.
SHIRLEY TEMPLE, sem
allir þekkja frá því í gamla
daga, er nýorðin 32 ára, og
er lifandi dæmi þess, að
barnastjörnur þurfa ekki
endilega að spillast þótt mik
ið sé látið með þær.
Þegar Shirley var 9 ára,
var hún sjöundi tekjuhæsti
einstaklingur Bandaríkj-
anna. Nú er hún hamingju-
samlega gift (í annað sinn)
á þrjú börn og býr í Ath-
erton í Norður-Kaliforníu.
Sjálf segist hún lifa ósköp
venjulegu lífi. „Mestur tími
minn fer í að hugsa um börn
in og 20 stundir -á mánuði
vinn ég sem sjálfboðaliði við
barnagæzlu. Einnig vinn ég
á sjúkrahúsum við og við“.
Börn hennar eru Linda
Susan, 11 ára, sem hún átti
með fyrra manni sínum, (en
það hjónaband endaði með
skilnaði), Charles, 8 ára og
Lori 6 ára, sem hún á með
seinni manni sínum, Charles
Black, forstjóra fyrirtækis
í Kaliforníu.
Starf kvikmyndastjörn-
unnar í þágu annarra er á-
vöxtur af heppilegu uppeldi
hennar og aðgæzlu hennar
nánustu, er hún var vin-
sælasta leikkona Bandaríkj-
anna. Shirley segir, að for-
stjórar 20th Century-Fox,
hafi harðbannað, að hún
fengi að taka á móti aðdá-
endum sínum svo hún hefði
ekki hugmynd um hversu
vinsæl og dáð hún var. 11
ára var hún send í telpna-
skóla en fram að því hafði
hún haft einkakennara. —
í skólanum lærði’hún að um
gangast sína líka. En vill
hún að börn hennar fari á
leiklistarbrautina? „Ef þau
vilja -það, er mér sama, en
þau virðast -ekki óska eftir
því. Þau léku einu sinni með
mér í sjónvarpinu, en þau
hafa alveg eins gaman af
að fara með mér í búðir eins
og að leika“.
Hin
unga
brúður
EITTHVAÐ í þessum
stíl á hin unga vor-
brúður að klæðast seg
ir Jesques Hemi í Par-
ís. — Þeir eru allir
háir í hálsinn, með
hálflöngum ermum
og stúlkurnar bera
brúsandi slör, sem ná
niður í mitti.
ERTU vinsæll? Áttu auðvelt með að -
vina? Eitt Lundúnarblaðanna birti á d(
eftirfarandi próf, sem lagt er fram til ]
fólk geti sjálft gert sér grein fyrir því, hi
er vinsælt.
„Efalaust finnst ykkur, sem þið gæt
að spurningunum á fleiri en einn veg, —
ið á þann veg, sem samvizkan innst inn
ykkur. Á þann einn máta komizt þið að s
anum um sjálf ykkur“.
Sem sagt einfalt og auðvelt — hlýðit
rödd samvizkunnar, — og þá munt
brezku sálfræðingar leiða ykkur í alla
leik.
1. Þú sérð langt til á göt-
unni kunningja, sem þú hef-
ur ekki hitt í eitt eða tvö
ár —
A — Veifarðu þá með
hendinni til þess að draga
að þér athygli viðkomandi
manns?
B — Gengurðu áfram á
móti honum og hugsar: —
„Skyldi hanh þekkja mig
aftur?“
C — Ferðu yfir götuna til
þes sað losa ykkur báða við
óþægindin af því að hittast?
2. Mundirðu láta svo um-
mælt um vinnufélaga þína,
að þeir væru —
A — Ágætis fólk til að
vinna með?
B — Bezta fólk með einni
eða tveim undantekningum?
C — Fremur erfitt í um-
gengni?
3. Þegar þú varst harn —
A — Kom þér þá mjög
vel saman við systkini þín?
B — Kaustu helzt félags-
skap eins eða tveggja skóla-
félaga þinna?
C — Fannst þér þú vera á
einhvern hátt ólíkur syst-
kinunx þínum?
4. Hvað þykir þér
skemmtilegast að gera á
kvöldin —
A — Fara á kaf
dansstað og skemnc
B — Vera heir
nokkrum góðum v:
C — Sitja í róL
um og hlusta á útv
lesa igóða bók?
5. Sölumaður hri
bjöllunni og býður
hvað, sem þú hefð
á móti því að kaup
irðu þá —■
A — Bjóða honr
B — Hlusta á þa
unum, sem hann
segja?
C — Segja honr
kaupir venjulega í
um?
6. Finnst þér —
A — Að þú e:
vini?
B — Að þú vilc
an eignast fleiri 1
C — Að þú vitir
ekki, hvernig þú
afla þér fleiri vin
7. Læturðu þig
um, að þú sért kv
hetja, sjónvarpsh
einhvers konar „st
A — Sjaldan ?
B — Kannski e
í hálfum mánuði?
C — Oft?
8. Á síðustu stun
boðið í samkvæmi
sem þú þekkir el
8 30. apríl 1960 — Alþýðublaðið