Norðlingur - 23.09.1880, Blaðsíða 4
80
heimsins dagblaða nú í eítthvað 35 daga eða svo. J»essi
maður er «Dr. Tanner af New York», frammtakssamur maður
og að öllum líkura elskari að frægð af einhverju tagi en að
mat nú sem stendur. Hann setti sér, að fasta eins lengi
og Móses og Kristur, eður í 40 daga; he6r uú haldið áfram
með föstu sína í 36 daga og ætlar að halda út með hana
til enda, nema því að eins, að hann fái hungur-hita, þá
ætlar kallinn að hætta að berjast við skaparann og náttúruna
og hyrja að ðta, eða hann hnigí dauður niður ella.* Ef
hann kemst fyrir hornið þá verður hann sá eini maður í
heiminum sem, sagt getur undrandi skríl: sjáið, hfer em eg
einn af þremur í sögum-ii, og einn af öllum upp í 1880 ár!
það heflr verið töluvert hlegið að þessum svelti-postula,
en það er nauðsynlegur skilmáli fyrir allri húmbúgs-frægð,
að nokkuð sé hlegið að húmbúgginu.
(■iráiiiifélagið og hr. Cggert JLaxtlal.
J>ótt eg játi með kaupstjóra Gránufélagsins í grein
hans „Gránufélagið og herra E. Laxdal“ (sjá „Eylgiskjal
með Norðanfara nr. 55—56“ og Norðanfara 1880, nr.
56—58), að engin þörf sé „að eyða tíma til að svara grein“
E. Laxdal í Norðanfara 1880, nr. 53—54, fyrir þálesendr
blaðanna Norðlings og Norðanfara, er þekkja gjörla til
verzlunar Gránufélagsins og herra E. Laxdals, þá hefir þó
félagsstjórnin áhtið nauðsynlegt, fyrir sakir hinna er miðr
til þekkja, að koma fram með fylgjandi vottorð frá sér og
öðrum þeim mönnum er hljóta að takast fullgildir vottar
um það er þeir bera, svo menn geti gengið úr skugga
um, hvað satt sé eðr ósatt í aðalatriðum téðra greina.
Arnljótr Olafsson.
— Eg undirskrifaður votta hér með, að eg hali keypt
í vor 19. apríl fyrir peninga við verzlun þá er herra E.
Laxdal veitir forstöðu eptirfylgjandi hluti með hér settíí
verði.
1 pd. hellulit 80 a., 1 pd. blástein 66 a., ’A pd. vitr-
iol 13 a., 1 pt. brennivín 90 a. lpd. kaffilkr., 1 pd. brent-
sykur 55 a., 1 pd. hvítasykur 50 a.. 1 pd. hveitimjöl 33 a.,
1 pd. sagógrjón 50 a. 25 pd. rúg (á 11 a.) 2,75 a.
Kífsá í sept. 1880. Jónas E'iríksson.
— Að eg undirskrifaður hafi í dag keypt neðanritaðar
vörur með hér settu verði í sölubúð E. Laxdals, það votta
eg hér með. — 1 pd. grænsápa 40 a., 1 pd. högl 50 a,.,
1 pd. púður 2 kr. 40 a., 1 pd. blýhvita í krukku 75 a., 1 pd.
fernisoliu 75 a. Bandagerði, 15. september 1880'
Oddur Kristjánsson.
— Eg undirskrifaður votta hér með að eg í dag hefi
keypt fyrir peninga eptirfylgjandi vörur með hér settu
verði í sölubúð hr. E. Laxdal:
10 pd, hrísgrjón lakari 16 a., 1 pd. soda 16 a., munn-
tóbak 2 kr. 10 a.. 1 ljáblað 1 kr. 50 a.. 1 ljáblað 1 kr.
75 a., 1 linuáshespu 60 faðma 2 kr. 50 a., 100 af 4 þml.
sleignum 1 kr. 15 a., 1 pd. púöursykur 45 a., 1 pd. rúsínur
50 aura.
frá Garði 15. sept. 1880.
Jón Jónsson.
Herra verzlunarstjóri E. Laxdal hefir í Nf. nr. 55—55
borið það á borð fyrir almenning, að Gránufél. hafi með
lögsókn neytt fátækhnga til þess að láta kindur upp í
verzlunarskuldir.
Hvað Gránufélagsverzlun á Oddeyri snertir þá lýsi eg
yfir því, að þetta eru einber ósannindi. Síðan eg kom til
verzlunarinnar hér, hef eg aldrei beitt þeirri aðferð til
þess að ná inn skuldum, þótt eg hafi orðið þess var, að
hk aðferð hafi átt sér stað við eina verzlun hér nálægt,
sem hr. E. Laxdal mun þekkja.
Eigi er mér heldur annað kunnugt, en að hver einn
hafi verið alveg frjáls að verzla við aðrar verzlanir en
Gránufélagið, þótt hann hafi átt hlutabréf þess, og því
síður að hann hafi mist hlutabréf sitt fyrir þá sök.
Oddeyri 17. september 1880.
,7. V. Havsteen.
Herra stórkaupmaður F. Holme hefir árið 1879 feng-
ið í ársrentu hjá Gránufélagi 5 af hundraði, og umboðs-
laun samkvæmt samningi hans við félagið, nema hvað hann
gaf lítið eitt eptir. í rentur og umboðslaun af skuldinni
sem var við nýár 1879, og þeirri upphæð, er hann lagði
út fyrir félagið á árinu, fékk hann tæpa 5 af hundraði;
en ef umboðslaunum fyrir söluna á íslenzkum vörum er
bætt þar við, þá hefir hann fengið als tæpa 7 af hundr-
aði; og hin árin í sömu hlutföllum.
J>annig hefir herra E. Holme eigi fuhan helming af
því er herra E. Laxdal segir að hann fái „minnst 14%
kostnaðarlaust af allri verzlunarveltunni“ (Norðanfari 6.
ágúst 1880 nr. 49—50). Eins hefir kaupstjóri Gránufé-
lagsins eigi tekið, að ineðaltali hin síðustu 5 ár, laun til
helminga við landshöfðingja,* að skrifstofu kostnaði ótöldum
hjá báðum (sbr. Nf. 10. sept. 1880, nr. 55—56 og máls-
háttinn: „Fáir ljúga meira en helmingnum“).
í stjórnarnefnd Gránufélagsins 17. septemb. 1880.
Davíð Guðmundsson. Arnljótr Olafsson.
Jón A. HjaUalin.
Að framanskrifað sé samkvæmt reikningum Gránufé-
lagsins vottum við undirskrifaðir endurskoðunarmenn.
Arni Jóhannsson. Gunnar Einarsson.
Výir alþiii^isiiicun
I Iteykjavík: yfirkennari Haldór K. Friðriksson. , í
Eyjaijarðarsýslu: séra Arnljótur Ólafsson, dbrm. E. Ás-
mundsson. I Suðurþingeyjarsýslu: dbrm. Jon Sigurðsson. í
Norðurþingeyjarsýslu: próf. Benidikt Kristjánsson. I Skaga-
fjarðarsýslu: Friðrik Stefánss., Jón landritari. í Árnessýslu:
séra Valdimar Briem og cand. theol.' Magnús Andrésson.
„ftrctnrtis“ kom hingað þa.nn 12. þ. m., og fór eptir
fárra tíma dvöl til Reykjavíkur. Með Arcturus kom kenn-
ari við Möðruvallaskólann, porvaldur Thoroddsen, en fór
suður snöggva forð með skipinu til Rvíkur og kemur það-
un með því aptur. Margir voru aðrir farþegjar með skip-
inu. skólapiltar, kaupafólk o. fl.
„Camoens“ kom hingað þ. 21. þ. m. og með því um-
boðsmaður Eggert Gunnarsson með ýmsar vörur til verzl-
unar sinnar. Camoens fer héðan með sauði til Skotlands.
Stórkaupmaður Shmon ætlar að kaupa lika tvo skipsfarma
af sauðum 1 haust á Borðeyri.
Hölmar í Reyðarfirði veittir prófasti R. af Dbr Dan-
iél Haldórssyni á Hrafnagili og Oddi á Rangárvöllum séra
Mutthiasi Jochumssyni.
Verðlag á vörum á Oddeyri 20. sept. 1880:
100 pd. rúgur 10 kr. 50 a. — 100 pd. bankabygg
15 kr. — 100 pd. baunir 12 kr. 50 a. — 1 pd. hálfgrjón
betri sort 17 a. — 1 pd. hálfgrjóu smærri 15 a. — 1 pd.
hveitimjöl nr. 1. 25 a. —■ 1 pd. sagó nr. 1. 30 a. — 1 pd.
kaffi 95 a. — 1 pd. kandissykur 50 a. — 1 pd. hvítasyk-
ur 50 a. — 1 pd. púðursykur 40 a. — 1 pd. kanel 1 kr.
— 1 pd. línsterkja 60 a. —■ 1 pd. rúsíuur 45 a. — 1. pd.
fíkjur 30 a. — 1 pd. steinfíkjur 45 a. — 1 pd. sóda 10 a.
— 1 pd. vigtriól 10 a. — 1 pd. blásteinn 40'a. — 1 pd.
hellulitur 65 a. — 1 pd. munntóbak 2 kr. — 1 pd. ról-
tóbak 1 kr 50 a. — 1 pd. tjargaður kaðall nr. 1 65 a,
— 1 pd. stjórafæri nr. 1 (Jakob Holm & Sönner) 65 a.
— 100 sænskir naglar 4 þl. 80 a. — 100 sænskir naglar
3 þl. 60 a. — 1 strangi þakpappír (Asphalt nr. 1) 5 kr.
75 a. — 1 linuás 60 faðmar 2 kr 10 a. — 1 pd. grænsápa
30—35 a. — 1 pd. högl 40 a. — 1 pd. púður 2 kr. —
1 al. forhlauparaketting 46 a. — 100 öngultaumar 75 a.
— hestajárn 4 boruð 1 kr.
Nú hafa 26 piltar sókt um inntöku í Möðruvalla-
skólann á þessu hausti, en rúmföt og borðpláss er eigi til
nema fyrir 25; inntökupróf er aðeins bundið við lestur og
skript, svo líklegt er, að allir komizt að. Fyrir því aug-
lýsist hérmeð, að fleirum getur eigi orðíð veitt móttaka
næstkoinandi vetur.
Möðruvöllum 13. september 1880.
Jón A. Hjaltalín.
iig- Vér viljum biðja kaupendur „Norðlings“
gjöra svo vel og borga oss 5. árgang blaðsins eígí
seinna en í haustkauptíð. í>á sem ver eigum enn
hjá fyrir fyrri árganga, biðjuin vér að draga nú eigi lengur
borgunina. — Allar Gránufélags-, Akureyrar-, Húsavíkur-
og öauðárkróksverzlanir og verzlunarstjóri F. Möller á
tíkagaströnd veita innskriptum móttöku.
Skapti Jósepsson.
*) Landshöfðingi hefir 10,000 kr. i laun. Ritst.
Eigandi og ábyrgðarmaður: Skapti JÓSepSSOn, cand. phil.
) Dr. Tanner heíir nú endað föstuna og líður allvel. Ritst.
Fmntaii: BJðrn J á n s s o ».