Fréttablaðið - 24.04.2001, Qupperneq 1
MANNLÍF
Eg hef sótt um
500 störf segir
Erzjana
bls 11
FÓLK
Fjölskylda NBA-
stjörnu laus
úr gíslingu
bls 12 b-
MENNING
Gerla situr
og saumar í
Ný listas afninu
bls 18 ►
Cheenos
- einfaldlega hollt!
FRETTABLAÐIÐ
1:
2. tölublað - 1. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Þriðjudagurinn 24. apríl 2001
ÞRIÐIUDAGUR
Enskupróf
hjá 10. bekk
Samræmdu prófin halda áfram í
dag. Nú er komið að ensku en 92-
98% 10. bekkinga eru skráðir til
prófs. bls. 4
Aðalfundur
Línu.Nets
Hið umdeilda
fyrirtæki
Lína.Net heldur
aðalfund sinn í
dag. Á blaða-
mannafundi
var tilkynnt um
að á næstu vik-
um bjóði fyrirtækið internet-
aðgang um rafmagnssnúrur. bls. 6
[ VEÐRIÐ I DAC |
REYKJAVÍK Hæg suðlæg eða
breytileg átt, skýjað með
köflum og stöku skúrir. Hiti
___________ á bilinu 3-8 stig.
ísafjörður VINDUR (5 3-8 ÚRKOMA skúrir HITI 02
Akureyri O 2-5 skúrir 03
Egilsstaðir © 2-5 skúrir 04
Vestmannaeyjar ©25 skúrir ©6
ísland U21 og
Malta leika í Gozo
Ungmennalið íslands og Möltu
mætast í undankeppni Evrópu-
keppninnar á Möltu kl. 14 að ís-
lenskum tíma. bls. 14
!KVÖLDIÐ í KVÖLDT
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 íþróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 19 Útvarp 21
Þríburar fæddust í Reykjavík í gær
Þrír hraustir drengir teknir með keisaraskurði 2 mánuðum fyrir tímann. Fyrstu börn foreldra sinna.
Þrír drengir komu í heiminn á
fæðingardeild Landspítalans rétt fyr-
ir klukkan sjö í gærmorgun.
Drengirnir sem eru fyrstu börn for-
eldranna, Halldórs Gerhards Meyer
og Sifjar Svavarsdóttur, voru teknir
með keisaraskurði en þeir fæddust
nær tveimur mánuðum fyrir tímann.
„Það kom í ljós þegar við fórum
fyrst í sónar, eftir 19 vikur, að börnin
voru þrjú en ekki eitt eins og við höfð-
um búist við,“ segir alsæl móðirin.
„Það sást lítið sem ekkert á mér og
því áttum við alls ekki von á þessu.
Við erum búin að fara í gegnum allan
tilfinningaskalann eftir að við frétt-
um af þessu. Við höfum bæði fundið
til ofsagleði og velt því fyrir okkur
hvernig þetta geti gengið upp.“
Það er ljóst að það gjörbreytir lífi
þeirra Sifjar og Halldórs að eignast
þrjá syni á einu bretti. „Við vorum ný-
búin að standsetja íbúð á fjórðu hæð í
ENGIN TÆKNIFRJÓVGUN
Kári, Logi og Máni eiga þeir að heita litlu
bræðurnir sem flytja um mánaðamótin úr
Álftamýri í rúmbetra húsnæði.
blokk í Álftamýrinni þegar kom í ljós
að Sif væri ófrísk,” segir Halldór. „Ég
var búinn að segja að þarna kynni ég
vel við mig og að það kæmi ekki til
greina að ég flytti á næstu árum. Dag-
Aukin afnotagjöld
Langmikilvægasti grundvöllur fjármögnunar RÚV,
segir í greinargerd útvarpsstjóra
rúv Markús Örn Antonsson útvarps-
stjóri hefur ritað 10 síðna tillögur um
framtíð Ríkisútvarpsins þar sem sú
framtíðarsýn kemur fram að afnota-
gjöld og opinberir styrkir verði ásamt
auglýsingatekjum áfram helsti fjár-
hagslegi grundvöllur Ríkisútvarpsins.
Skoðun Markúsar er sú að efla verði
þessa tekjuleið útvarpsins. „Fjár-
mögnun með afnotagjöldum verður
áfram langmikilvægasti grunsdvöllur
fjármögnunar RÚV,“ segir í tillögun-
um. „Það verður í ríkari mæli nauð-
synlegt aö gefa fyrirtækjum í al-
mannaþjónustu aukið svigrúm og
hvatningu, þar með talin fjármögnun,
þannig að veita megi viðnám gegn
sókn stórra alþjóðlegra fyrirtækja inn
á íslenskan markað.“
I skýrslu Markúsar er birt sóknar-
áætlun Rikisútvarpsins i samfélagi
örrar tækniþróuna og ljóst er að út-
MARKÚS ÖRN
ANTONSSON.
I tillögum sem Mark-
ús Örn Antonsson
hefur ritað kemur
fram að stofnunin
ætlar að taka fullan
þátt í örri tækniþróun.
varpsstjórinn ætlar stofnun sinni að
nýta til fulls þau tækifæri sem tæknin
býður upp á til að auka fjölbreytni
bæði í efni og möguleikum á miðlun
þess.
Búist er við að nettófjölgun greið-
enda afnotagjalda verði árlega um
1000 næstu fimm árin. „Það er því
ljóst að hækkun gjaldskrár í krónutölu
hefur afgerandi áhrif á heildartekjur á
tímabilinu 2001-2005, segir þar. ■
3L
inn eftir að ljóst varð að börnin væru
þrjú fórum við og settum íbúðina á
sölu. Skömmu síðar vorum við búin að
1 ÍPRÓTTIR
Svifflugurfá
uppreisn æru
SÍÐA 14 ►
| FÓLK 1
Hleypur til aö efna
kosningaloforð
SÍÐA 16 ►
selja og festa kaup á nýrri íbúð sem
hentar betur við þessar aðstæður. Við
fáum nýju íbúðina afhenta um mán-
aðamót og ætluðum að vera flutt áður
en börnin kæmu í heiminn enda var
von á þeim um miðjan maí. En það
gekk ekki alveg eftir.”
Halldór og Sif voru ekki búin að
reyna lengi að eignast börn. „Sif var
nýhætt á pillunni þegar börnin komu
undir,” segir Halldór. „Þegar fólk
frétti af því að Sif gengi með þríbura
gerðu flestir ráð fyrir því í fyrstu að
við hefðum farið í glasafrjóvgun. Svo
var ekki en við þurftum samt að leið-
rétta þann misskilning.”
Sif og Halldór segja langt síðan
þau hafi ákveðið nöfnin. Ár er nú liðið
frá því þau ákváðu að það væru þrjú
nöfn sem kæmu til greina: Kári, Logi
og Máni. Þau áttu hins vegar alls ekki
von á því að þeim gæfist tækifæri til
að nota þau öll eftir fyrstu fæðingu. ■
1 PETTA HELST |
Maðurinn sem lést í vélsleðaslysi
síðastliðinn laugardag hét Þor-
lákur Sigtryggsson til heimilis að
Svalbarði í Þistilfirði. Hann lætur
eftir sig eiginkonu og sex börn.
Slysið varð skamnlt frá Öxafjarðar-
heiði, en Þorlákur var á leið á björg-
unarsveitaræfingu þegar vélsleði
hans hafnaði ofan í gilskorningi.
Hann lést samstundis.
—♦—
A' fundi framkvæmdastjórnar
Framsóknarflokksins sem hald-
inn var í hádeginu í gær var ákveðið
að ráða Árna Magnússon, aðstoðar-
mann utanríkisráðherra, sem fram-
kvæmdastjóra Framsóknarflokks-
ins. Hann mun jafnframt verða
framkvæmdastjóri þingflokks fram-
sóknarmanna samkvæmt því er
kveðið er á um í nýjum lögum
flokksins sem samþykkt voru á síð-
asta flokksþingi. Egill Heiðar Gísla-
son sem verið hefur framkvæmda-
stjóri flokksins síðustu ellefu ár
mun hverfa til annarra starfa.