Fréttablaðið - 24.04.2001, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 24.04.2001, Blaðsíða 2
Á að setja lög á sjómannaverkfallið?? Niðurstöður gærdagsins á www.vfeir.is Nei Spurning dagsins í dag: Ertu fylgjandi því að settir séu tollar á erlent grænmeti? Farðu inn á vísi.is og segðu I þína skoðun , , „„, | 2____________________________FRÉTTABLAÐIÐ_____________________________________24. apríl þriðjudacur Tsétsjenskir uppreisnarmenn láta undan: FÓRNARLÖIMB SPRENGJUTILRÆÐIS Gert að sárum slasaðra í Islambad Sprengja springur í græn- metismarkadi í Pakistan: Tuttugu særðir islambad (aei Itittugu manns særðust, þar af tveir aivarlega, þegar hetma- gerð sprengja sprakk á grænmetis- markaði í Istambad i Pakistan í gær- morgun. Enginn -hefur lýst ábyrgð á tilræðinu á hendur sér. Sprengjan sprakk á háannátíma á grænmetismarkaðnum. Hdn var fal* in í grænmetishrúgu. fbúar í grennd- inni og verslunareigendur fluttu hina siösuðu til sjúkrahúss í grenndinni. „Þetta var mjög ö'flug sprenging, skyndilega sprakk vörubíll og við tókum tii fótanna," sagði Raja Saeed, sem staddur var á markaðnum. Lögregian umkringdi skömmu síðar svæðið. Hún Ieitar manns af afgönsku bergi brotnu sem talið er að hafi verið í grenndinni rétt áður en sprengjan sprakk. Þetta er í annað skipti á'sjö mánuðum sem sprengja springur á sama syæði í september létust nítján og 80 særðust. Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við það tilræði en lögreglan hefur af- ganska flóttamenri sem búa í grennd- inni grunaða. ■ Hnífjafnt á Netinu netmiðlakönnun Fjórðu könnunina í röð er munurinn á aðsókninni að tveimur stærstu netmiðlunum vart marktækur. Hjá Gallup í síðasta mánuði sögðust 79,8% þeirra sem hafa aðgang að Netinu hafa heimsótt á mbl.is en 79,5% höfðu heimsótt Vísi.is. Munurinn er einungis 0,3% og svipaðar tölur gefur að líta þegar skoðaðir eru svokallaðir hánotendur á Netinu, þ.e. þeir sem fara inn á vef- ina einu sinni í viku eða oftar. Þeir eru 61,9% hjá mbl.is en 60,0% hjá Vísi.is. Meðalheimsóknafjöldi er einnig kannaður í könnun Gallup og hefur hann vaxið um 17,7% hjá Vísi.is frá því Gallup gerði samskonar könnun í október, en fjölgunin nemur 15,0% hjá mbl.is. Leit.is sýnir talsverðan vöxt frá síðustu könnun Gallups og nemur vöxturinn á leit.is 23,0%. Meðalheim- sóknafjöldi á leit.is er u.þ.b. tveir þriðju af stærstu miðlunum tveimur. Næstu miðlar þar á eftir í aðsókn eru Strik.is og Torg.is sem mælast með innan við helming heimsóknarfjöld- ans á leit.is. ■ Okrid hefur kostað milljarða Segir Ossur Skarphéðinsson um grænmetismál grænmeti. Össur Skarphéðinsson al- þingismaður fékk Þjóðhagsstofnun til að kanna verðbreytingar á mat- vælum hér á landi á árunum 1995 til 2000. í ljós kom að verð á matvælum hækkaði á þessum árum um rétt um 17 prósent en verð á grænmeti hækk- aði um 35 prósent á sama tíma. Össur segir að ef grænmeti heföi hækkað jafn mikið og aðrar matvörur hefðu neytendur þurft að borga tveimur milljörðum króna minna fyrir græn- meti á þessu tímabili en raun varð á. „Á sama tíma og verð á grænmeti hækkaði um 35 prósent hér á landi lækkaði verð á grænmeti í Svíþjóð um 11 prósent. Ef íslendingar hefðu notið sömu verðbreytinga og Svíar hefðum við greitt fimm milljörðum króna minna fyrir grænmeti á síð- ustu fimm árum,“ sagði Össur. Þessa staðreyndir sýna að sú ein- okun, sem þrífst í skjóli landbúnað- arráðuneytisins, hefur slæm áhrif á afkomu neytenda og að það verður að lækka tolla strax og síðan afnema þá. Grænmetisokrið hefur kostað neytendur miUjarða króna,“ sagði Össur Skarphéðinsson alþingismað- ur. ■ ÖSSUR SKARPÉÐINSSON Hann segir að verðhækkanir á grænmeti hafi kostað neytendur milljarða. ERLENT A' fundi framkvæmdastjórnar Framsóknarflokksins sem hald- inn var í hádeginu í dag var ákveðið að ráða Árna Magnússon, aðstoðar- mann utanríkisráðherra, sem fram- kvæmdastjóra Framsóknarflokks- ins. Hann mun jafnframt verða framkvæmdastjóri þingflokks framsóknarmanna samkvæmt því er kveðið er á um í nýjum lögum flokksins sem samþykkt voru á síð- asta flokksþingi. Egill Heiðar Gísla- son sem verið hefur framkvæmda- stjóri flokksins síðustu ellefu ár mun hverfa tii annarra starfa. KJÖRKASSIN N Gíslum sleppt í Istanbul istanbul. ap Uppreisnarmenn sem berjast fyrir málstað Tsétsjena gáfust upp í gærmorgun og slepptu 120 gíslum sem þeir höfðu haft í haldi á glæsihóteli í Istanbul frá því á sunnudag. Engan sakaói sakaði í um- sátrinu. Uppreisnarmennirnir gáfust upp eftir að hafa rætt við innanríkis- ráðherra Tyrklands, en ekki kom fram hvað þeim fór á milli. Skömmu eftir að byssumennirnii' réðust inn á glæsihótelið, sem stað- sett er við Bosporussund, lýstu þeir því yfir að tilgangurinn væri að vekja athygli á „blóðugum árásum“ rússneska hersins í Tsétsjeníu. Mennirnir eiga flestir ættir að rekja til Kákasuslýðveldisins, en alls búa um 25.000 Tsétsjenar í Istabul og vesturhluta Tyrklands. Mikill sam- skipti eru á milli ríkjanna sem bæði eru múslimsk. Auk þess eru um 80 fé- lög starfandi í Tyrklandi sem taka virkan þátt í að kynna málstað Tsétsjena. Samkvæmt gíslunum var með- ferðin á þeim ekki slæm. „Þeir ógn- uðu okkur ekki og gáfu okkur nóg að borða og drekka,“ sagði Lefterios Polemis, grískur ferðamaður. „Fyrst héldum við að þetta væri rán,“ sagði ítalskur ferðamaður, „en eftir hálfa klukkustund varð okkur ljóst að til- gangur þeirra var pólitískur ... þeir voru mjög kurteisir við okkur.“ Ferðamálaráðherra Tyrklands kom þeirri beiðni á framfæri við þar- lenda fjölmiðla að þeir forðuðust „æsifréttaumfjöllum11 á þessum við- kvæma tíma í byrjum ferðamanna- tímabilsins. Reynslan hefur sýnt Tyrkjum að atvik á borð við þetta hafa áhrif á ferðaþjónustu. Sprengju- árásirnar og hótanirnar sem fylgdu handtöku kúrdíska uppreisnarleið- togans Abdullah Öcalan ollu því áð ferðamönnum fækkaði um 24% árið 1999. ■ LOGREGLA MEÐ TOCKAN Uppreisnarmennlmir gáfust upp eftir umsátur Segir að íslensku græn- meti verði ekki fórnað Arni MATTHIESEN Fjórir af fimm netverj- um vilja ekki lög á verkfall sjómanna Landbúnaðarráðherra fyrir svörum í hörðum umræðum á Alþingi um verð á grænmeti. Ossur telur ráðherra vera að svíkja loforð grænmeti „íslensku grænmeti verður ekki fórnað," sagði Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra á Alþingi í gær þegar hann átt í orðastað við Össur Skarphéðinsson aiþingismann um verð á grænmeti. Össur vildi ganga á eftir efndum Guðna á orðum um að lækka tolla á „Það er flókið innfluttu grænmeti. að fella niður Guöni kvaóst ekki tolla," sagði hafa lofað að lækka ráðherra. tolla °8 bættl við að ekki væri samstaða um ti! hvaða að- gerða verður gripið vegna verðs á grænmeti. „Því miður er þetta flókið samspil. Það er flókið að fella niður tolla,“ sagði ráðherra. Hann sagði komavtil greina að lækka tolla, greiða framteiðslustyrki og að leita þurfi eftir samstöðu áður en hægt verður að segja hvað verður gert. Ráðherra sagði að gefa verði svigrúm tii ráða fram úr hvað ber að gera. Össur og ráðherrann voru sam- mála um alvöru hás verðs á græn- meti. „Ég tel að Guðni Ágústsson sé að draga í land og að hann ætli ekki að standa við loforðin um lækka tolla á innflutningi. Það liggur fyrir að 90 prósent af dreifingunni er í höndum þriggja fyrirtækja sem þýðir að þau • hafa einokun á markaðnum og því verður- erfitt að útrýma ólöglegu samráði, sem Samkepnisráð hefur upplýst, nema með að koma á sam- keppni og gera það með innflutningi. Til að það verði hægt verður að stan- da við loforðin sem voru gefin þégar GATT-samningurinn var gerður, það er að lækka tolla og síðan afleggja þá. Það verður að aðstoða grænmetis- framleiðendur til að standast sam- keppnina og það verður best gert með því að segja þá vera græna stór- iðju og að þeir fái rafmagn á sama verði og önnur stóriðja,“ sagði Össur Skarphéðinsson. Ljóst er að verð á grænmeti er að verða þrætuepli á Alþingi og átök um málið rétt að hefjast. Innan allra fiok- ka eru þingmenn sem vilja að tollum verði breytt hið snarasta. sme@frettabladid.is GRÆNMETISMAL A ALÞINGI Össur Skarphéðinsson sagðist telja að Guðni Ágústsson ætli ekki að standa við gefin loforð um lægri tolla á grænmeti. AP/ERHAN BAGCI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.