Fréttablaðið - 24.04.2001, Qupperneq 22
22
FRÉTTABLAÐIÐ
24. apríl 2001 ÞRIÐJUPAGUR
Gunnar Birgisson
alþingismaður
Þetta er allt
að koma
„Það er mjög stutt í að við skilum
af okkur,“ sagði Gunnar I. Birgisson
alþingismaður um umkvartanir Guð-
jóns A. Kristjánssonar. Gunnar segir
að skýrslunni um brottkastið og nið-
urstöður skoðanakönnunarinnar vr-
eði birt í þessari viku eða næstu og
nefndaráliti í beinu framhaldi.
Skýrslu um nýtingu fisks í land-
vinnslu annars vegar og sjóvinnslu
hins vegar verður skilað skömmu síð-
ar. Gunnar er ófánlegur til að segja
hver niðurstaðan er varðandi brott-
kastið. ■
Vinstri-græn-
ar paprikur
Við upphaf fundc á Alþingi í gær
voru menn að gant, st en til stóð með-
al annars að ræða v ,;rð á grænmeti.
Össuri Skarphéðinssi ni þótti Halldór
Ásgrímsson óvenju glaðlegur og kall-
aði til hans hverju þetta sætti og
spurði hvort ráðherrann hefði kanns-
ki verið að borða græna papriku. Hún
hlýtur þá að hafa verið vinstri-græn,
svaraði Halldór. Þá gall í Guðna
Águstssyni; enda var hún vond.
Frjálslyndi flokkurinn
undirbýr framboð
Ákveðið að
bjóða fram í
Reykjavík
Guðjón A. Kristjánsson alþingismaður
Kvartar und an seinagangi
Það var í ágúst 1999 að sjávarútvegs-
ráðherra skipaði nefnd, undir forystu
Gunnars I. Birgissonar alþingis-
manns, sem var fengið það hlutverk
að kanna nýtingu sjávarafla sem ann-
ars vegar er unnin á sjó og í landi
hins vegar. Þó komið sé vel á annað ár
frá því nefndin hóf störf hefur ekkert
bólað á niðurstöðum. Mig langar að
vita hver niðurstaða nefndarinnar
er,“ sagði Guðjón A. Kristjánsson, al-
þingismaður Frjálslynda flokksins.
Það er fleira sem Guðjón vill fá að
vita.
Um mitt síðasta ár var ákveðið að
kanna brottkast á fiski. Gallup var
fengið það hlutverk að kanna meðal
sjómanna umfang brottkasts á fiski.
| FRÉTTIR AF FÓLKI |
„Fyrir nokkrum mánuðum heyrði ég í
mörgum sjómönnum sem sögðu mér
að haft hafi verið samband við þá
vegna þessa máls.
Nú heyri ég engann tala um að
verið sé að kanna brottkastið. Best
gæti ég trúað að þessari vinnu sé lok-
ið,“ sagði Guðjón A. Kristjánsson al-
þingismaður. Hann segir að ekki hafi
verið hægt að fá þessi mál rædd í
sjávarútvegsnefnd Alþingis - þar
sem skýrslunnar er beðið. „Ég er orð-
inn þreyttur á að bíða. Ég er orðinn
þreyttur á þessum seinagangi," sagði
Guðjón. ■
GUÐJÓN A. KRISTJÁNSSON
Hann undrast hvers vegna ekki er búið að
birta niðurstöður tveggja úttekta.
Formaður einkavæðingarnefndar,
Hreinn Loftsson, hafði sínar
ástæður fyrir því að velja Búnaðar-
j bankanna og Price
i Waterhouse
Coopers til þess að
annast útboð á hlut-
um ríkisins í Lands-
símanum. Allir aðr-
ir voru nefilega
taldir útilokaðir frá
útboðinu.
MP-verðbréf voru útilokuð vegna
eignarhlutar Margeirs Pétursson, að-
aleigenda þess, í Islandssima Lands-
bankinn var útilokaður vegna fjár-
festingar bankans í Landssímanum.
Íslandsbanki-FBA gat ekki verið
með vegna þess að hann sér um út-
boð á Íslandssíma og Kaupþing gat
ekki verið með vegna þess að Kaup-
þing á hlut í Norðurljósum, sem er á
hlut í Tal. Allir eru skyldir öllum á
íslandi og eiginlega voru að bara
Verðbréfastofan (Jafet Ólafsson) og
Búnaðarbankinn sem gátu hreppt út-
boðið og umsýslulaunin hér innan-
lands og PriceWaterhouse Coopers,
sem treystir á vörumerkið og þekk-
inguna erlendis. Skrifstofa þeirra í
Lundúnum er sögð munu véla um út-
boðið á erlendri grund.
Samfylkingin í Hafnarfirði með
Lúðvík Geirsson í broddi fylking-
ar hefur barist hægt gegn útboði
skólastarfs í Ás-
landsskóla. Svo
langt hefur hún
gengið að segja það
verða sitt fyrsta
verk að rifta samn-
ingum eftir bæjar-
stjórnarkosningar
að ári eigi flokkur-
inn hlut að bæjarstjórn að kosning-
um loknum. íslenska menntasmiðjan
er því að leggja í áhælttusaman
rekstur gangi hún til samninga við
Magnús Gunnarsson bæjarstjóra í
Hafnarfirði um skólastarfið. Eins og
jafnan er mikill hiti og sviptingar í
hafnfirskum stjórnmálum og eins
víst að skólabúningar verði aðeins
saumaðir til eins vetrar í Firðinum.
Greiningardeild Kaupþings er
undir stjórn Þórðar Pálssonar
sem nú fjarstýrir deildinni frá víðari
sjónarhól í fyrirtæki bankans í Dan-
mörku.Fróðlegt er
að sjá í hvaða félög-
um á aðallista Verð-
bréfaþings íslands
Þórður og félag
mæla með kaupum
hlutafjár í. Það eru
þau félög sem
deildin væntir að
best á næstu misser-
um.
Þessi félög eru Bakkavör Group,
Baugur.Delta, Grandi.Hampiðjan,
Hraðfrystihúsið Gunnvör, Húsa-
smiðjan, Jarðboranir, Kögun, Lands-
banki íslands, Nýherji, Opin kerfi,
Pharmaco, Samherji, Sjóvá-Almenn-
ar, Skýrr, Sæplast, Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna, Tryggingamiðstöðin,
Tæknival, útgferðarfélag Akureyr-
inga, Þorbjörn Fiskanes og Össur.
Þetta er blanda úr sjávarútvegsfyr-
irætækjum, hátækni- og hugbúnað-
arfyrirtækjum og iðnaðarfyrirtækj-
um. Það er semsagt hægt að reka vel
fyrirtæki í flesutm grienum.
Annar flokkur og ekki ómerkari er
sá sem Kaupþing leggur til að
eigendur hlutabréfa haldi hlut sínum
í. Það eru fyrirtæki eins og EFA,
Alfreð heyrir pólitískan
ávinning um frestun
Sölu Lands-
símans frestað
Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformað-
ur Orkuveitu Reykjavíkur og Línu-
Nets, upplýsti á blaðamannafundi í
gær að hann hefði heyrt pólitískan
ávæning af því að sölu Landssímans
yrði frestað. Hann sagði þetta í til-
efni af því að Orkuveitan ætlar að
selja meirihluta sinn í Línu-neti á
svipuðum tíma og Landssíminn og
ýmis önnur fyrirtæki hyggja á útboð.
Spurningin er hvað hlutabréfamark-
aðurinn þolir. Aðspurður um hvað
hann hefði fyrir sér í þessum efnum
sagði Alfreð að fréttamenn yrðu að
spyrja þá sem stæðu að undirbúningi
að sölu á bréfum í Landssímanum. ■
Eimskipafélagið, Flugleiðir, Harald-
ur Böðvarsson, Hraðfrystihús Eski-
fjarðar, fslandsbanki-FBA, íslenskir
aðalverktakar, Lyfjaverslun íslands,
Marel, Olíufélagið-Esso, Olíuverslun
íslands, SÍF, Síldarvinnslan, Skelj-
ungur, SR-mjöl,Vinnslustöðin, Þor-
móður rammi-Sæberg og Þróunarfé-
lag íslands. Aldrei er að vita nema
Eyjólfur hressist, og þessi fyrirtæki
eru öll öflug á íslenskan mælikvarða
þótt rekstur þeirra sé svona la,la um
þessar mundir. Athygli vekur að öll
olíufélögin eru á sléttlendinu hjá
Kaupþingi.
Undir forystu Þórðar hefur grein-
ingardeild Kaupþings ekki
skirrst við að mæla gegn kaupum í
ákveðnum hlutafélögum á aðallista
VÞÍ. Nú
bregður
svo við
enginn
fær þum-
alinn nið-
ur: Ef til
vill er það
í sam-
ræmi við
það mat deildarinnar að það styttist
æ frekar í aðp botninum sé náð í nið-
ursveiflunni og við förum að sjá við-
snúning á ný. hafa beri í huga að
horfur í rekstrarumvherfi fyrir-
tækja séu mun betri nú en í fyrra,
olíuverð hafi haldist nokkuð stöðugt,
vrextir hafi verið lækkaðir og ætla
megi að sú þróun haldi áfram ef út-
lið helst gott og þrátt fyrir nokkrar
veikingu krónununnar að undan-
förnu sé frekar gert ráð fyrir styrk-
ingu hennar þegar líða tekur á ári.
Kaupþingsmenn segja gamansög-
ur í aprílskýrslu sinni um þróun
og horfur: „Á tímum sem þessum
þegar fjárfestar horfa upp á eignir
sfnar rýrna dag frá degi er ekki úr
vegi að rifja upp sögu af skósölu í
Afríku. Tveir sölumenn voru sendir
af stað og annar þeirra hringdi heim
og sagði enga sölumöguleika vera til
staðar þar sem í Afríku gengju allir
berfættir. Aðstæður horfðu hins veg-
ar nokkuð öðruvísi við hinum sölu-
manninum sem tilkynnti um næga
sölumöguleika því allir gengju þar
berfættir! Þetta er ágæt dæmisaga
og lýsir á skemmtilegan hátt því
hvernig tveir menn geta séð hlutina í
sitt hvoru ljósi. Þar sme annar sér
ekkert nema svartnættið sé hinn
gnótt tækifæra. Þetta má heimfæra
upp á verðbréfamarkaðina, þar sem
ljóst er að nú eru ótal tækifæri til
staðar fyrir langtímafjárfesta, bæði
hér heima og erlendis, vilji menn sjá
þau.“
Sjómenn á Suðurnesjum halda því
staðfastlega fram að Árni Matthí-
esen hafi verið að borga kosninga-
víxlana þegar hann lagði til að þingið
frestaði verkfalli sjómanna til þess
að hægt yrði að klára loðnuvertíðina.
Það hafi hann gert
undir þrýstingi frá
útgerðarmönnum
loðnuskipa á Suður-
nesjum sem greitt
hafi drjúgt í kosn-
ingasjóð Sjálfstæð-
isflokksins. Að-
spurðir um sannan-
verður fátt um
svör og því ekki um annað að ræða
en ósannaða kenningu sem flutt er af
miklum sannfæringarkrafti í langri
kjaradeilu.
ÚTGÁFUSTJÓRN VIÐ PRENTVÉLINA
í Isafoldarprentsmiðju í gærnótt, útgáfustjórnin, frá v. Sveinn R Eyjólfsson., Einar Karl Haraldsson, Gunnar Smári Egilsson, Pétu
Gunnarsson og Eyjólfur Sveinsson, virða fyrir sér nýtt dagblað.
Frjálslyndi flokkurinn er að und-
irbúa framboð í sveitarstjórnarkosn-
ingunum á næsta vori. Lengst eru
umræður komnar um framboð í
Reykjavík. Hópur flokksmanna vinn-
ur að undirbúningi. Samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins er helst rætt
um að Margréti Sverr sJóttir, vara-
þingmanni og fram* 1 væmdastjóra
flokksins, verði falið að leiða listann.
Undirbúningur framboða í öðrum
sveitarfélögum eru styttra á veg
komin en ákvarðana er að vænta inn-
an ekki langs tíma.
Ég sit bara hér og les
á ísskápshurðina.
Hvað ert þú að gera?
FRETTABLAÐINU FAGNAÐ
Úgáfustjórn Fréttablaðsins í nýju-
húsnæði ísafoldarprentsmiðju þegar
fyrstu eintökin af Fréttablaðinu
runnu í gegnum prentvélina í
gærnótt. Það var gleðistund eftir
stranga lotu og var blaðinu flett af
áfergju.