Fréttablaðið - 14.06.2001, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 14.06.2001, Blaðsíða 15
FIMMTUPAGUR 14. júní 2001 FRÉTTABLAÐIÐ 15 í I ip 'M: Breytingar á Brittania: Stoke hyggst styrkja liðið fyrir komandi leiktímabil knattspyrna Gunnar Þór Gíslason, stjórnarformaður Stoke City, hefur beðið aðdáendur liðsins að sýna þolin- mæði - jafnvel þótt einhverjir leik- menn muni yfirgefa liðið að.nýloknu tímabili. Gunnar lýsti því yfir í samtali við The Sentinel að þeir peningar sem liðið fær fyrir sölu á leikmönnunum fari í að styrkja iiðið fyrir komandi baráttu, en ekki í að laga fjárhagsstöð- una. „í nútíma knattspyrnu er alltaf hætta á því að lið missi leikmenn þeg- ar það nær ekki tilætluðum árangri og sérstaklega þegar leikmennirnir hafa öll tromp á hendi,“ er haft eftir Gunn- ari. „Það getur verið erfitt að koma í veg fyrir að leikmenn yfirgefi félög og ef þeir eru ekki ánægðir er oft betra að reyna að fylla upp í skarð þeirra með nýjum leikmönnum." Stoke gerði nýlega samning við varnarmann frá Hvíta Rússlandi, Siar- hei Shtaniuk að nafni, með því skilyrði að hann fái atvinnuleyfi. Liðið hyggst styrkja klúbbinn en frekar fyrir næsta tímabil. „Guðjón Þórðarson og John Rudge hafa nefnt nokkra leikmenn sem þeir munu reyna að fá til okkar á næstu vikum. Næsta tíma- bil verður mjög skemmti- legt og áhugavert tímabil.1 GAUIGLAÐUR Guðjón Þórðarson er væntanlegur sáttur núna enda koma nýir læri sveinar fyrir næsta tímabil. Stjórnar- menn Stoke ætla ekki að gefast upp þótt móti blási. Enski boltinn: Dómarar með 10 m.kr. í árslaun knattspyrna Enskir knattspyrnu- dómarar eiga kost á því að gerast atvinnudómarar á næsta keppnis- tímabili, samkvæmt nýju skipulagi sem Enska knattspyrnusambandið kynnti nýverið. Bestu dómararnir munu hafa allt að 10 milljónir króna í árslaun. Samkvæmt nýja skipulaginu verða dómarar einnig í auknum mæli gerðir ábyrgir fyrir mistök- um sínum í leikjum, en ekki er til- greint nákvæmlega á hvaða hátt. Vonast er til að breytingarnar muni leiða til bættrar dómgæslu í ensku knattspyrnunni, sem og auka virð- ingu enskra dómara á alþjóðavett- vangi. ■ . Eiður Smári Guðjohnsen: Engan áhuga að fara frá Chelsea knattspyrna Eiður Smári Guðjohnsen, leikmaður Chelsea, staðfesti það í samtali við Fréttablaðið að hann yrði áfram í herbúðum Chelsea á næstu Ieiktíð. Hann sagði að það eina sem hann hefði heyrt um hugsanleg fé- lagaskipti hefði komið frá fjölmiðl- um. Forráðamenn Chelsea hefðu aldrei rætt við hann um annað en að hann yrði kyrr. „Ég hef engan áhuga á að fara til annars lið,“ sagði Eiður Smári. „Mér líður vel hjá Chelsea." Eiður Smári er þessa dagana í sumarfríi á íslandi, en undirbúnings- tímabilið hjá liðum í ensku deildinni hefst í byrjun júlí. Aðspurður sagði hann að honum litist vel á komandi leiktíð. „Við þurfum náttúrlega að gera betur heldur en á síðasta tímabili. Við verðum að vera í topp þremur sætun- um.“ Nokkrar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Chelsea á síðustu vik- um. Úrugvæinn Gustavo Poyet hefur verið seldur til erkifjendanna Totten- ham fyrir 2,5 milljónir punda, en áður hafði liðið keypt franska varn- armanninn William Gallas, frá Marseille fyrir 6,2 milljónir punda. Þá standa yfir viðræður við Frank Lampard, hinn unga leikmann West Ham, en West Ham hefur samþykkt tilboð Chelsea í leikmanninn, sem hljóðar upp á 11 milljónir punda. Eiður Smári sagðist ekki þekkja mikið til Gallas, en að Lampard væri efnilegur. Varðandi brotthvarf Poyet sagði Eiður Smári að hann hefði ver- ið ósáttur við að fá ekki að spila meira en raun bar vitni á síðustu leik- Anægður Eiður Smári Guðjohnsen, sem hér sést fagna marki Jimmy Floyd Hasselbaink, seg- ist vera ánægður hjá Chelsea. tíð. Einhver ágreiningur hefði komið upp milli hans og Claudio Ranieri, framkvæmdastjóra Chelsea, sem hefði endað með því að hann hefði farið. Aðspurður sagðist Eiður Smári vonast eftir að fá að spila meira en á síðustu leiktíð. „Ég verð náttúrlega bara að sýna að ég eigi það skilið. Ég vonast auð- vitað til að standa mig enn betur en á mínu fyrsta tímabili.“ ■ | MOLAR Carles Rexach getur andað léttar. Barcelona hefur boðið honum þjálfarasamning til tveggja ára. Rexach hljóp í skarðið þegar Llor- enc Serra Ferrer var rekinn í apríl. í síðustu viku til- kynnti Barcelona að Rexach yrði að- eins boðinn samn- ingur til eins árs. Hann var ekki ánægður með það og heimtaði lengri samning. Rexach lék með Barcelona á árunum 1967 til 1981. Hann hljóp í skarðið þegar Johan Cruyff, þáverandi þjálfari, fór í hjartaaðgerð árið 1991og tók tíma- bundið við liðinu þegar Cruyff var rekinn vorið 1996. Rexach fannst því tími til kominn að liðið launaði honum trygglyndið. Stjórn liðsins sá við sér og bauð honum tveggja ára samning. Allt er á fullu í herbúðum Bayern Miinchen. Liðið keypti nýlega Claudio Pizzarro frá Werder Bremen og á nú sex framherja. Því ætlar liðið að losa sig við Carsten Jancker og sænska varnarmanninn Patrik Anderson, ef það fær nógu góð tilboð. „Ef ein- hver býður 15 milljón mörk í Anderson látum við hann flakka. Eins er með Jancker," sagði framkvæmdastjórinn Uli Hoeness. „Við erum með of marga framherja," sagði forseti liðsins, Franz Beckenbauer. Þýsk dagblöð segja Barcelona vera á höttunum eftir Anderson. „Ég get ekki slakað á, sagst hafa unnið allt og geta lok- að sjoppunni. Okkar markmið er að vinna þýsku deildina næsta ár. Þá verðum við eina liðið sem hefur unnið fjögur ár í röð. Við ætlum okkur einnig að vinna Meistaradeild Evrópu aftur," sagði Beckenbauer kokhraustur. Lausn hefur náðst í deil- um bílaframleiðenda: Newey verður áfram hjá McLaren formúla Bílaframleiðendurnir Jagú- ar og McLaren hafa náð samkomu- lagi um framtíð bílahönnuðsins Adri- ans Newey. Fyrir tveimur vikum lenti framleiðendunum saman þegar Jagúar lýsti því yfir að Newey myndi ganga til liðs við liðið þegar samning- ur hans við McLaren rennur út á næsta ári. McLaren menn voru síður en svo sáttir við það og sögðu að hann yrði áfram aðalhönnuður liðsins. Málið fór síðan fyrir rétt í London en nú hefur samkomulag náðst. „Það er Jagúar og McLaren sönn ánægja að tilkynna að lausn hefur náðst í máli Adrians Newey. Hann verður um kyrrt hjá McLaren," sögðu talsmenn liðanna í sameiginlegri yfirlýsingu að loknum réttarhöldunum. Þar kom m.a. fram að búið væri að útskýra fyrir Jagúarliðinu í hverju misskiln- ingur Newey og McLaren væri fólg- inn. Bæði lið komu síðan með sína SÆTTIR Jagúar og McLaren hafa náð sáttum um einn helsta bílahönnuð heims, Adrian Newey eigin yfirlýsingu. „Ég vil biðjast af- sökunar á öllum þeim misskilningi sem hefur orðið í þessu máli,“ sagði Rond Dennis, einn af yfirmönnum McLaren. „Ég er sáttur við að það hefur náðst samkomulag í þessari deilu. Adrian Newey hefur beðist af- sökunar á öllu saman og við fyrirgef- um honum,“ sagði Niki Lauda stjórn- armaður hjá Ford, sem á Jagúar keppnisliðið. ■ Halldór á Heimsbikarmót í þolfimi: Vongóður um sigur polfimi Halldór B. Jó- hannsson, þolfimimað- ur úr Ármanni, tekur um helgina þátt í úr- slitum Heimsbikar- móts Alþjóðafimleika- sambandsins í þolfimi á Rimini, sem haldið verður samhliða al- þjóðaráðstefnu sam- bandsins um íþróttina. Haldin hafa verið BJARTSYNN Halldór B. Jóhannsson er bjart- sýnn fyrir mótið á Rimini þrátt fyrir að hafa átt í meiðslum. fjögur stigamót til þessa og unnu 8 efstu í hverjum flokki sér þátttöku- rétt á mótinu á Rimini, þar á meðal Halldór, sem varð í 2. sæti á móti í Rúmeníu í október á síðasta ári og 3. sæti í Búlgaríu í mars sl. Jóhanna Rósa Ágústsdóttir, sem tók þátt í stigamótunum náði ekki að tryggja sér þátttökurétt í úrslitnum. Halldór, sem hefur æft undir leiðsögn Jan Cerven, fimleikaþjálfara úr Ármanni, hefur gert nokkrar breytingar á æf- ingu sinni frá því í síð- ustu keppni, sem haldin var í Búlgaríu eins og áður sagði. Halldór hefur átt við meiðsli að stríða undanfarið en þrátt fyrir það telur hann sig eiga nokkuð góða möguleika á 1. sætinu. Helstu keppnautar Halldórs koma frá Rúss- landi, Rúmeníu og Frakklandi. ■ Símadeild kvenna-leiðrétting Nokkrar staðreyndavillur voru í grein um Símadeild kvenna í Fréttablaðinu í gær. í fyrirsögn stóð að lið Grindavíkur hefði unnið stórsigur. Rétt er að það var lið ÍBV sem vann Grindavík með sjö mörkum gegn einu. Þá var sagt að KR hefði unnið FH 3-0 en leikurinn fór 6-0 fyrir KR. Einnig var sagt að Valur hefði unnið Stjörnuna 3-1 en leikurinn endaði 4-1. Að lokum var rangt farið með nafn leikmanns Vals í myndatexta. Sú sem sótti að marki Stjörnunnar var Ásgerður Ingibergsdóttir en ekki Guðný Þórðardóttir. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.