Fréttablaðið - 14.06.2001, Side 18
18
FRÉTTABLAÐiÐ
14. júní 2001 FIIV’, IVITUDAGUR
Safn Ásgríms Jónssonar:
Mjaðveig
myndlist Sagan af Mjaðveigu Mána-
dóttur var Asgrími Jónssyni listmál-
ara einkar hugstæð. Ásgrímur gerði á
annað hundrað mynda um Mjaðveigu
og grófa og gráðuga risann sem girnist
hana, tákn hreinleikans og sakleysis-
ins. Þessi mynd er frá 1957 - 58. ís-
lenskar þjóðsögur og ævintýri er
þema sumarsýningarinnar sem opnuð
hefur verið í Safni Ásgríms Jónssonar
við Bergsstaðastræti 74 í Reykjavík. ■
| METSÖLUBÆKURNAR |
LISTINN ER BYCCÐUR Á SÖLUTÖLUM PENN- ANS EYMUNSSON OC CILDIR 11.-18. JÚNÍ
Patricia Cornwell The Last Precinct ►
Sidney Sheldon The Sky Is Falling ▲
Ed McBain og Evan Hunter Candyland
Q Minette Walters The Shape of Snakes
0 Iris Johansen The Search
Q Rosamunde Pilcher Winter Solstice
Sandra Brown The Standoff
Ken Follett Code to Zero ▼
Donald Westlake The Hook ►
0 Jeffrey Deaver The Empty Chair ▼
Erlendar metsölubækur:
Spennusögur
á sumri
bækur Spennusagnahöfundarnir Pat-
ricia Cornwell og Sidney Sheldon eru
í efstu sætum vinsældarlista er-
lendra bóka í bókabúðum Pennans og
Eymundssonar. Bók Cornwells er
framhald á síðustu bók hennar,
Black Notice, en bók Sheldons fjallar
um fréttakonu sem grefst fyrir um
dularfull dauðsföll í vinsælustu fjöl-
skyldu Bandaríkjanna.
Aðrar bækur á listanum eru und-
antekningarlítið spennusögur og
greinilegt að það sem íslendingar
ætla að lesa af erlendu lesefni í sum-
ar eru sögur af morðum og óhugnaði
Undantekningin er bók Rósa-
mundu Pilcher sem er í sjötta sæti
og segir sögu af fjölskyldu, fimm
ólíkum manneskjum sem hittast á
skosku sveitabýli. Öll koma þau frá
ólíkum stöðum í þjóðfélaginu og öll
hafa þau mismunandi væntingar til
iífsins. Þægileg saga á björtum sum-
arnóttum. ■
Sýningaropnun:
Skúlptúr
við Silfurtún
myndlist Sýningin Skúlptúr við Silf-
urtún verður opnuð í dag kl. 17.15.
Sýningin er liður í hátíðarhöldum
vegna 25 ára afmælis Garðabæjar og
er haldin á túninu við Silfurtún í
Garðabæ, elsta skipulagða íbúða-
hverfi bæjarins. Á sýningunni sýna
listamennirnir Garbríela K. Friðriks-
dóttir, Helgi Gíslason, Magnús Tóm-
asson, Pétur Bjarnason, Rebekka
Rán Samper og Valgerður Guðlaugs-
dóttir útilistaverk sem þeir hafa ým-
ist gert fyrir sýninguna eða lána til
sýnis á henni. Sýningin verður opin
til 14. október. ■
Starfsþjálfun fatlaðra í Hringsjá:
Stökkpallur út í lífið
stARFSÞiÁLfun „Þetta er hugsað sem
starfsþjálfun eða starfsendurhæfing
fyrir fólk sem hefur orðið fyrir sjúk-
dómum eða slysi eða einhverjum öðr-
um áföllum sem valda því að menn
geta ekki haldið áfram því sem áður
var,“ segir Guðrún Hannesdóttir, for-
stöðumaður Hringsjár sem er sjálf-
stæð stofnun sem rekin hefur verið frá
því 1987. „Það getur í rauninni verið
hvað sem er. Sjálft námið er miðað við
framhaldsskólastig en bakgrunnur
fólksins er ólíkur og ástæðan mismun-
andi, sumir eru kannski varla búnir
með grunnskóla en aðrir eru með há-
skólapróf. Það sem er sammerkt með
öllum sem hér hafa verið er að þau
þurfa á einhverjum stökkpalli að halda
til þess að geta komist áfram í störf eða
frekara nám. Aðalatriðið í því sem við
erum að gera er að vinna með sjálfs-
traustið og sjálfsþekkinguna."
Hringsjá býður upp á þriggja anna
nám auk styttri námskeiða. Mikil áher-
sla er lögð á tölvutengda vinnu af ýmsu
tagi. Alls geta um 40 nemendur stund-
að þar nám í einu og nú hafa samtals
196 nemendur útskrifast.
Opið hús var í Hringsjá á mánudag-
inn í tengslum viö menningardagana í
túnfætinum í Hátúni 10.12 og 14. Þar
sýndu nemendur í Hringsjá bæði
myndverk eftir sig og tvö örleikrit
voru flutt. Menningardögum fatlaðra
lýkur í kvöld með því að slegið verður
upp balli. ■
NEMENDUR í HRINCSJÁ
Guðrún Hannesdóttir forstöðumaður er lengst til hægri á myndinni.
FIMMTUDACUR
14. JÚNÍ
NÁMSKEIÐ_________________________
19.00 Reykjavíkurdeild RKÍ gengst
fyrir námskeiði í almennri
skyndihjálp í kvöld. Kennt verð-
ur frá kl. 19-23. Einnig verður
kennt 18. og 19. júní. Að lokn-
um þessum námskeiðum fá
nemendur skírteini sem hægt
verður að fá metin í ýmsum
skólum og við sum störf.
FUNDIR___________________________
20.30 Vinstrihreyfingin - grænt fram-
boð heldur fund á veitingahús-
inu Catalínu, Hamraborg 11 í
Kópavogi, í kvöld. Á fundinum
verður fjallað um viðhorfin varð-
andi komandi sveitarstjórnar-
kosningar. Fulltrúar flokksfélaga
munu ávarpa fundinn.
ÚTIVIST__________________________
20.00 Fræðsluganga um Njáluslóðir
á Þingvöllum í leiðsögn Jóns
Böðvarssonar. Jón gerir m.a.
grein fyrir stjórnskipan á
Þingvöllum.
LEIKHÚS__________________________
20.00 Einn vinsælasti söngleikur lið-
innar aldar, Syngjandi í rigning-
unni, er sýndur á Stóra sviði
Þjóðleikhússins, söngur, dans
og rómantík.
20.00 Píkusögur eru sýndar á þriðju
hæð Borgarleikhússins. Höf-
undur leikritsins er Eve Ensler
og Sigrún Edda Björnsdóttir leik-
stýrir. Með hlutverkin fara
leikkonurnar Halldóra Geirharðs-
dóttir, Jóhanna Vigdís Arnardóttir
og Sóley Elíasdóttir.
SKEMMTANIR_______________________
21.00 í dag er síðasti vinnudagur al-
mennings fyrir útgjöldum hins
opinbera. Þetta er 166. dagur
ársins og skattbyrði fólks því
rúm 45%. Heimdeliingar halda
upp á daginn með ýmsum
hætti og selja skattlausan bjór í
Húsi málarans kl. 21 í kvöld.
TÓNLEIKAR
Gallerí Ófeigur:
Kyrrð hversdagsleikans
MARCRÉT MACNÚSDÓTTIR
„Við erum alltaf að endurtaka hlutina."
myndlist „Ég var laumumálari í
mörg ár,“ segir Margrét Magnús-
dóttir myndlistarmaður sem nú
sýnir í Gallerí Ófeigs við Skóla-
vörðustíginn. Á sýningunni eru 11
málverk auk tveggja annars konar
verka. „Ég hef aldrei sýnt málverk
áður en ég hef gaman af að mála og
hef alltaf verið hrifin af málverk-
inu. Ég hef svona verið að pukrast
með þetta heima hjá mér.“
Málverkin bera nöfn á borð við
Nótt, Ástand, Heimsókn og sýna
einföld form, kyrrð og fáeina hluti.
„Þetta er kyrrð hversdagsleikans,"
segir Margrét. „Málverkin eru
þannig að það er eins og verið sé að
horfa inn í rými. Allir eiga sitt
heimili, sitt rými og þessa undir-
stöðuhluti í kringum sig, borð og
stól og svo framvegis. Þessu fylgir
alltaf ákveðin kyrrð og endurtekn-
ing. Þegar maður hefur mikið af
fólki í kringum sig og mikið um-
leikis þá fer maður að þrá kyrrð-
ina, einfaldleika í formum og
hversdagsleikann. Hversdagurinn
er í raun og veru bara endurtekn-
ing. Við erum alltaf að gera það
sama aftur og aftur og dagurinn í
dag er endurtekning á deginum í
gær.“
Þrjú málverkanna kallar Mar-
grét rímmyndir. Þau heita nöfnum
eins og þvottur/pottur og
kjóll/stóll. „Þetta er svona dæmi-
gerður veruleiki fjögurra barna
móður," segir Margrét. En hvað þá
með þriðju rímmyndina, sem ber
heitið borð/morð? Þar má sjá borð
og blóðpoll á gólfi. „í dag eru morð
svo sannarlega hluti af daglegum
veruleika fjölskyldunnar," segir
Margrét. „Afþreyingin í sjónvarp-
inu gengur út á endalaus morð. Það
er voða skrýtið að mannskepnan
skuli alltaf þurfa þennan hrylling
til afþreyingar.“
Margrét segir málverkin öll
máluð á síðustu tveimur mánuðum.
Auk málverkanna eru tvö önnur
verk á sýningunni. Þarna er skond-
inn hattur sem gerður er úr smá-
steinum og sama hattinum bregður
einnig fyrir á einu málverkanna.
Við gluggann svífur svo dúkað
borð og yfir því hanga þrjú vín-
glös, en neðan í dúknum hanga
hnífapör hringinn í kring. ■
Basic á Kringlukránni Hljómsveitin
Basic heldur tónleika á Kringlukránni.
Aðal stefna hljómsveitarinnar er frum-
samin tónlist en hún spilar einnig
mellódískt rokk,allt frá U2 til Creed.
Tónleikarnir hefjast kl. 22 og aðgangur
er ókeypis.
Tena Palmer og Cru halda tónleika í
Kaffileikhúsinu í kvöld og hefjast þeir
kl. 21. Tena Palmer er löngu orðin
landsþekkt fyrir söng sinn og sérstak-
an og fjölbreyttan spuna. Að þessu
sinni ætlar hún ásamt Matthíasi
Hemstock trommu- og slagverksleik-
ara og Kjartani Valdimarssyni sem
leikur á píanó, hljómborð og ýmsa
hljóðgerfla að leika tónlist sem er
byggð á Ijóðum eftir hana sjálfa. Miða-
verð er 1200 kr.
SÝNINGAR________________________
íslenskar þjóðsögur og ævintýri er
þema sumarsýningarinnar sem opnuð
Takmarkalaus list:
Bíll með offituvanda
myndlist Á miðvikudaginn hófst í
borginni Basel í Sviss heilmikil
myndlistarhátíð sem ber yfirskrift-
ina Art Unlimited eða „takmarkalaus
list“. Þar sýna ein 262 listhús um það
bil fimm þúsund listaverk í risastór-
um sal.
Þar getur meðal annars að líta
þennan feita bíl sem þýski listamað-
urinn Erwin Wurm lét búa til. Bílar
eru venjulega hafðir straumlínulag-
aðir og bæta yfirleitt ekki á sig
aukakílóum eins og mannfólkið.
Þessi bíll er þó greinilega undantekn-
ing þar á, því í meðförðum lista-
mannsins hefur hann heldur betur
bætt við sig í þyngd. Engu að síður er
þetta fulikomlega ökufær bifreið. ■
hefur verið í Safni Ásgríms Jónssonar
við Bergsstaðastræti 74 í Reykjavík. Á
sýningunni sem stendur til 1. septem-
ber eru margar af frægustu þjóðsagna-
myndum listamannsins. Þar má einnig
sjá vinnustofu, heimili og innbú hans.
Önnur af sumarsýningum Listasafns
Reykjavíkur - Kjarvalsstaða ber nafnið
Flogið yfir Heklu. Sýningarstjóri er Ein-
ar Garibaldi Eiríksson myndlistarmað-
ur og prófessor við Listaháskóla íslands.
Á sýningunni getur að líta mismunandi
myndir Heklu sem sýndar verða hlið
við hlið. Sýningin stendur til 2. septem-
ber.
í miðrými Kjarvalsstaða sýnir Gretar
Reynisson verkefni sem hann hefur
unnið að frá 1. janúar 1997 og sér ekki
fyrir endann á enn. Þetta er vaxtarverk-
efni af þeirri tegund sem á ensku væri
kallað „work in progress. Sýningin
stendur til 19. ágúst.
„Tena Palmer og Cru“:
Spinnur út frá
eigin ljóðum
j tónust Kanadíska söngkonan Tena
j Palmer er með tónleika í Kaffileik-
; húsinu í kvöld ásamt þeim Mattíasi
i Hemstock trommu- og slagverks-
leikara og Kjartani Valdimarssyni
i sem leikur á píanó, hljómborð og
ýmsa hlóðgervla. Þau ætla að
| leika tónlist sem byggð er á
i ljóðum eftir hana sjálfa og
i skreyta þau með sameigin-
i legum spuna sem þróast .
i hefur út frá samvinnu þeir-
i ra á geisladiskinum Crucible
i frá árinu 1998. ■
TENA PALMER
Löngu landsþekkt fyrir söng sinn og
sérstæðan spuna. dk