Fréttablaðið - 14.06.2001, Side 22

Fréttablaðið - 14.06.2001, Side 22
22 FRÉTTABLAÐIÐ 14. júní 2001 FIIVIIVITUDACUR HRAÐSOÐIÐ SIGURÐUR SKARPHÉÐINSSON gatnamálstjóri Malbikunarmet HVERSU umfangsmiklar eru fram- kvæmdirnar f sumar? „Fjárveitingar til viðhalds og rekstr- ar gatna og holræsa á þessu ári eru um 1730 milljónir króna og er það er svipað og var í fyrra. Reyndar hafa verið aukin framlög til malbiksfram- kvæmda árin 2000 og 2001. Borgin kom mjög illa undan vetri fyrir rúmu ári og þá var ákveðið að bæta fyrst og fremst malbikslitlög, gangstéttar, kanta og annað sem hafði farið illa. Sú fjárveiting heldur áfram í ár og vonandi eitthvað áfram.“ HVERNIG ganga framkvæmdirnar? „Þær ganga mjög vel þótt votviðri hafi tafið dálítið fyrir okkur. Við höf- um malbikað meira á þessum árstíma en við höfum séð áður frá upphafi. Við erum með þrjá mjög öfluga verk- taka sem sinna þessu fyrir okkur. Um leið og það koma þurrir og hlýir dag- ar þá skotgengur þetta.“ HVERT er stærsta verkefnið i ár? „Það er erfitt að að svara hvert er stærsta einstaka verkefnið í viðhaldi og rekstri. Það er frekar nýbygging- arverkefnin sem standa upp úr en þar er stærsta verkefnið hreinsun strandlengjunnar með byggingu hreinsistöðvar í Klettagörðum." HVERNIG taka vegfarendur lokun- um gatna vegna framkvæmdanna? „Þeir taka þeim yfirleitt mjög vel og hafa á þeim skilning. Það er helst að við höfum lent í mjög erfiðum lokun- um þar sem við nánast lokum þjón- ustufyrirtæki af kannski í heilan dag. Við reynum, þegar við sjáum fram á slíkt, að láta viðkomandi vita. Vanda- málið er að við getum ekki tímasett okkur því við erum algerlega háðir veðri og þurrki. Oft neyðumst við að hafa þann háttinn á að segja fólki með tveggja eða þriggja tíma fyrirvara að einhver gata verði lokuð yfir allan daginn. Skiljanlega er fólk ekki ánægt þegar það heyrir þannig frétt." HVENÆR lýkur sumarvertíðinni i gatnagerðinni? „Hún fjarar einfaldlega út samlhiða því að það kólnar." Sigurður Skarphéðinsson gatnamálstjóri í Reykjavík stendur að venju í ströngu í sumar við gatnagerð og endurnýjun á samgöngukerfi höf- uðborgarinnar. Portillo london. ap. Michael Portillo tilkynnti í gær að hann myndi falast eftir leið- togaembætti breska íhaldsflokksins. Portillo sagði að undir hans stjórn myndi hann leiða flokkinn inn að miðju. Portillo sagði að hann myndi þó ekki breyta afstöðu íhaldsflokks- ins gegn evrunni, hann myndi berjast gegn því að Bretar gerðust aðilar að henni. Búist hafði verið við því að Portillo gæfi frá sér yfirlýsingu í vik- unni en hann er fyrstur til að lýsa yfir áhuga sínum á leiðtogaembættinu sem losnaði eftir að William Hague sagði af sér. „Við þurfum að sýna ... að við FRÉTTIR AF FÓLKI ndrés Sigmundsson og fleiri í Vestmannaeyjum hafa tekið sig til og gefið út blað sem heitir Nýi Eyjamaðurinn og virðist hafa þann megin tilgang að mótmæla skulda- söfnun Guðjóns Hjörleifssonar bæj- arstjóra og meirihluta Sjálfstæðis- flokksins. Segja þeir að skuldir bæj- arsjóðs nemi um 550 þúsund á hvert mannsbarn. Bæjarstjórinn hefur mótmælt þessu og segir að skuldirn- ar séu ekki nema eitthvað á fjórða hundrað þúsund. Nýi Eyjamaðurinn segir að bærinn sé að miklu leyti rekinn fyrir lánsfé. „Til samanburð- ar má geta þess að sjálfstæðismenn í Reykjavík fara hamförum í fjölmiðl- um vegna skuldastöðu Reykjavíkur- borgar en þar nemur skuld á íbúa kr. 126.000.“ Hvar er kvennapólitíkin hjá Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra og Reykjavíkurlistan- um spyrja þroska- þjálfar sem eiga í kjaradeilu við borg- ina? Við getum upp- lýst það. Hún er í ráðum og nefndum borgarinnar. Þannig var t.d. tilkynnt um fyrstu úthlutun úr Menningarborgar- sjóði í vikunni og kom þá fram að í úthlutunarnefnd sitja eftirfarandi: Þórunn Sigurðardóttir formaður, Kristín Árnadóttir varaformaður, Karitas H. Gunnarsdóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir og Katrín Dóra Þor- steinsdóttir. Það þarf að fara langt aftur í tímann til þess að finna eins einlitar nefndir hvað kynjahlutfall varðar eins og hjá Reykjavíkurlist- anum í dag. Munurinn er sá að í hina góðu og gömlu daga voru bara karlar í nefndunum. IBifröst, útskriftarblaði viðskipta- nema á Bifröst, segir Magnús Árni Magnússon aðjúnkt eftirfar- andi sögu: Á sautjándu öld varð til „nýtt hagkerfi" í norðanverðri Evr- ópu. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum urðu túlípanar einhver verðmætasta verslunarvara samtím- ans. Upphæðirnar sem bláeygir ís- lenskir fjarfestar eyddu í DeCode bréf fyrir tveimur árum blikna í samanburði við það sem hollenskir og aðrir norður-evrópskir fjárfestar Breski íhaldsflokkurinn: tilkynnir framboð erum fólk eins og annað fólk, að áhyggjur þeirra eru líka okkar áhyggjur. Við þurfum að ræða mál sem Bretar eru að ræða,“ sagði Portillo er hann tilkynnti framboðið. Talið var víst að Portillo myndi bjóða sig fram til formennsku fyrir fjórum árum. Hann tapaði hins vegar óvænt þingsæti sínu í þeim kosning- um og var því ekki kjörgengur. Hann komst aftur á þing 1999 í aukakosn- ingum og hafði notað tímann í milli- tíðinni til að mýkja ímynd sína í stjórnmálaum og færa sig nær miðju stjórnmála. Kynhneigð Portillos hefur verið til umfjöllunar í Bretlandi, en mikla at- hygli vakti þegar Portillo viðurkenndi fyrir nokkrum árum að þegar hann var ungur maður hefði hann hneigst til samkynhneigðar. Andstæðingar hans gagnrýndu hann mjög þá og sögðu hann hræsnara vegna þess að hann var andsnúinn því að samkyn- hneigðir fengju inngöngu í herinn. Veðmangarar telja Portillo sigur- stranglegastan í keppninni um leið- togaembættið. Talið er líklegt að með- al mótframbjóðenda Portillo verði hægrimaðurinn Iain Duncan Smith, Kenneth Clarke og Ann Widdecombe. Hún ýjaði reyndar að því í gær að hún myndi ekki bjóða sig fram ef Clarke færi í framboð. ■ SJÓNVARPSVÆNN Hinn spænskættaði Michael Portillo þykir vera meiri sjarmör en William Hague og stal stundum senunni frá honum I nýaf- staðinni kosningabaráttu. Mikill uppgangur hjá Ferðaþjónustu bænda: Upp í 100% nýting á vinsælustu stöðunum BÆNDAGISTINC „Við rekum stærsta hótel á landinu", segir Sævar Skaptason framkvæmdastjóri Ferða- þjónustu bænda sem hér er lengst til hægri i hópi starfsmanna. í aftari röð frá vinstri Inga Þór Ingadóttir, Hildur Hreinsdóttir.Maria Leifsdóttir og Oddný Björg Halldórsdóttir. f fremri röð Sólrún Jónsdóttir, Nanna Bergþórsdóttir og Sigríður Björnsdóttir. ferdamennska Átta nýir gististaðir hafa bæst við hjá Ferðaþjónustu bænda í ár og eru þeir nú 120 um land allt með 2700 uppbúin rúm. „Það má segja að á háannatímann frá því í miðjum júní og fram til loka ágúst sé allt fullt og upp í 100 % nýting á vinsælustu stöðunum.", segir Sævar Skaptason fram- kvæmdastjóri ferðaþjónustunnar. Þar er um að ræða aðal ferðamanna- staðina eins og á Suðurlandi, Skafta- fellssýslu, Mývatnssvæðinu og við Eyjafjörð. Á ýmsum jaðarsvæðum þar sem þjónusta er einnig í lægra gæðaflokki, og ekki er boðið upp á Gullfoss og Geysi, er aðsókn minni. „Það eru fyrst og fremst útlending- ar sem nýta sér Ferðaþjónustuna á annatímanum en íslendingar meira á jaðartimanum í apríl og maí og í september og október. Það mætti þó vera meira og það hlýtur að vera sameiginlegt verkefni okkar, Ferða- málaráðs og stjórnvalda og lengja nýtingartímann." Ferðaþjónustan hefur nýverið dreift bæklingi í 40 þúsund eintök- um þar sem gististaðir og ferða- þjónusta bænda eru kynnt. Einnig á sér stað veruleg kynning erlendis. „Það er mikill uppgangur í ferða- þjónustu á vegum bænda og bjart yfir greininni“, segir Sævar. „Við segjum oft að þetta sé besta leiðin til þess að tryggja byggð í landinu. Margir bændur, sem hafa selt full- virðisrétt, hafa snúið sér alfarið að ferðaþjónustu. Aðrir reka gistingu og bjóða upp á afþreyingu í smærri stfl, og segja að það færi þeim vasa- peninga sem geri þeim kleift að búa áfram á jörðum sínum.“ Bændur sjálfir eiga hlutafélagið Ferðaþjón- ustu bænda sem annast þjónustu við bændagistingar og kynningar- starf. Hjá henni vinn 6 manns allan ársins hring en 2 bætast við yfir sumartímann. Sjálfur hefur Sævar unnið hjá Ferðaþjónustunni í þrjú ár. ■ eyddu í fallega túlípana á þeim árum. Menn eyddu ævitekjum í einn litríkan og sjald- gæfan túlípana- haus og verðið hækkaði og hækk- aði. Þar til einn góðan veðurdag að einhver vaknaði og spurði sig: Hvaða endemis della er þetta? Hvers vegna er ég að eyða öllum þessum peningum í eitthvað sem er í rauninni bara venjulegt blóm?“ Sá hinn sami seldi alla túlíp- ana sína fyrir metfé, en þessi hugs- un skaut rótum. Allt í einu vildu all- ir selja. Ein fyrsta spákaup- mennskusápukúlan sprakk. Fjöldi svartklæddra kaupahéðna varð gjaldþrota á einni nóttu. Ótal menn sáu uppi með einskis verða túlípans- ka svörtu-pétra. Þessi saga endur- tekur sig reglulega. Nýja heimasiðan, réttarheimild.is, sem Sólveig Pétursdóttir dóms- málaráðherra, opnaði í gær, hefur alla burði til að verða fróðleg og gagnleg heimild yfir ný lög og reglugerðir svo og gildandi laga- reglur. Þar getur m.a. að líta hverjir fengu íslenskan ríkisborgararétt í lok þings sam- kvæmt sérstökum lögum. Það voru ellefu manns, tveir fæddir í Banda- ríkjunum og einn í hverju eftirtal- inna landa: Póllandi, Egyptalandi, Kenya,Sovétríkjunum,Rússlandi, Ví- etnam, íran, Kólombíu og íslandi. Flestir eru verkamenn en í hópnum eru einn prjónavélasérfræðingur og einn körfuboltamaður. samspU jnótan Útsala á hljóðfærum 11. -16. júní Við eigum 1 árs afmæli. Af því tilefni bjóðum við afslátt sem um munar, einnig af nýjum vörum. 20 - 50% afsláttur Tónlistarfólk komið og gerið góð kaup. Samspil - Nótan, Skipholti 21, sími 595 1960 ,Á morgun? Auðvitað komum við í mat! Hver er þetta?"

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.