Fréttablaðið - 09.07.2001, Page 1
LIFIÐ
Náið samband
lykill að
hamingju
bls 4
MENNiNC
Tungan
og tœknin
bls 18
ÚTLÖND
Er búið að
handtaka
þennanmann?
bls 8
Una.net
%
FRETTABLAÐIÐ
53. tölublað - 1. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Mánudagurinn 9. júlí 2001
Síðasta heimsókn
sendiherrans
í SKUGGA D-ÁLMUNNAR
Fjölskyldan að að Suðurgötu 16 I Keflavík
nýtur þess illa að grilla með sjúklinga og
hjukrunarfólk á áhorfendapöllunum.
röð þar sem allir sjúklingar,
starfsfólk og gestir geta horft inn
til okkar. Þetta væri kannski öðru-
vísi ef þarna væri íbúðarhús með
venjulegu heimili," segir Ásbjörn.
Að því er Ásbjörn segir nýtur
nú aðeins sólar á lóðinni þegar sól
er hæst á lofti. „Nú þegar sólin er
farin að lækka aftur á lofti er að
verða skuggi nánast allan daginn.
Þetta er yfirþyrmandi og lóðin er
okkur einfaldlega ónýt,“ segir
hann.
Þrátt fyrir að bæjarráðið hafi
hafnað erindi hjónanna á þeim
grundvelli að ekki væri fordæmi
fyrir slíkum kaupum nefna þau
einmitt slík dæmi í erindi sínu.
Þau segja að Reykjavíkurborg
hafi keypt íbúð í fjölbýlishúsi í ná-
grenni við nýju brúna sem er í
smíðum í Mjódd - einmitt vegna
„skerts útsýnis" og að borgin hafi
keypt hús í nágrenni Ráðhússins
af svipuðum ástæðum.
Ásbjörn og Jenný höfðu vonast
eftir að ná sáttum við bæjaryfir-
völd vegna málsins en nú þegar
NJÓTA EKKI SÓLAR í EIGIN GARÐI
Drengirnir á heimilinu að Suðurgötu 16
njóta ekki lengur sólar í garðinum heima.
Ingi E. Asbjamason og Bragi Haraldsson
gægjast fyrir horn.
erindi þeirra hefur verið hafnað
vita þau ekki hvað taka skal til
bragðs. Þau hafa reynt að selja
húsið en án árangurs og virðast
dæmd til að búa í skuggahúsinu.
„Ég nenni að minnsta kosti ekki að
fara í margra ára málarekstur,"
segir Ásbjörn.
gar@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Sendiherra ísraels á fs-
landi hefur aðsetur í Noregi og nú
eru mannaskipti í aðsigi í þessu
embætti. Sá sem gegnt hefur emb-
ættinu undanfarin ár kemur í dag í
sína síðustu heimsókn til íslands og
kveður félaga sína og starfssystkin
í íslensku utanríkisþjónustunni og
ræðir e.t.v. viðhorfið í Mið-Austur-
löndum frá sjónarhóli landa sinna í
leiðinni.
Reykjanesbær hefur hafnað beiðni um kaup á einbýlishúsi í bænum. Ný álma sjúkrahússins
skyggir á á húsið og íbúarnir segja lóðina ónýta vegna sólarleysis og þess að þar séu þeir ber-
skjaldaðir fyrir augum sjúklinga og læknaliðs.
sveitastjórnir Reykjanesbær mun
ekki kaupa einbýlishús við Suður-
götu sem stendur í skugga nýrrar
þriggja hæða álmu við sjúkrahús-
ið í bænum.
Hjónin sem eiga húsið, Jenný
K. Ingadóttir og Asbjörn Eggerts-
son, höfðu farið fram á kaupin við
bæjaryfirvöld þar sem nýja álm-
an hafi í raun ónýtt fyrir þeim lóð
hússins. Bæjarráðið segir hins
vegar að ekki sé fordæmi fyrir
uppkaupum á fasteignum vegna
„skerts útsýnis" og höfnuðu erindi
hjónanna.
Ásbjörn segir í samtali við
Fréttablaðið að þau hjón hafi flutt
í hús sitt árið 1995. Þau hafi verið
að heiman þegar deiliskipulag
vegna byggingar nýju sjúkra-
húsálmunnar var auglýst og því
ekki náð að gera við það athuga-
semdir.
„Það er aðeins útúrsnúningur
þegar bæjarráð segist ekki geta
keypt húsið vegna skerts útsýnis
því þetta mál snýst um miklu
meira en það. Við höfum notað
þessa litlu lóð sem útivistarsvæði
fyrir fjölskylduna þar sem við
grillum og þess háttar. Á nýju við-
bygginguni er hins vegar glugga-
86% hækkun
SÍMTÖL í dag tekur
gildi allt að 86%
hækkun á kostnaði
viðskiptavina
Landssímans við að
hringja í GSM-síma
í 17 af helstu við-
skiptalöndum ís-
lendinga. Forsvarsmenn Tals og ís-
landssíma segja engar hækkanir á
döfinni þar á bæ.
j veðriðTdag
REYKJAVIK Norðlæe átt 3-8 m/s og minnkandi skúraleiðingar. Hiti 8 til 14 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
ísafjörður O 8-13 Skýjað 013
Akureyri © 3-8 Skýjað ©12
Egilsstaðir O 3-8 Skýjað O’4
Vestmannaeyjar ® 4 Úrkoma O’O
íslenskt þjóðfélag
á sænsku
FYRIRLESTUR Borgþór Kærnested,
túlkur og forsvarsmaður Norræna
flutningamannasambandsins, held-
ur fyrirlestur um íslenskt samfélag
í Norræna húsinu kl. 13 og mælir á
sænsku. Að loknu erindi svarar
hann fyrirspurnum.
Boltinn rúllar
FÓTBOLTI10. umferð Símadeildar
karla hefst í kvöld kl. 20 með leikj-
um toppliðanna FH og Fylkis í
Kaplakrika. Á sama tíma mætast
Keflavík og Fram í Keflavík. Með
sigri gætu Kefivíkingar, sem nú
eru í 4. sæti, styrkt stöðu sína í
toppbaráttunni.
rarsíáTRvöCFi
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 íþróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 18 Útvarp 21
Hjón dæmd til að
búa í skuggahúsi
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRÉTTABLAÐIÐ
Hvað les fólk
á aldrinum
25 til 29 ára?
Meðallestur á virkum
dögum samkvæmt
könnun PriceWater-
houseCoopers frá
júní/júlí 2001
70,1%
70.000 eintök
70'% fóíks les blaðié
ÍFJÖLMIÐLAKÖNNUN PRICEWATERHOUSECOOPERS VAR
j FRAMKVÆMT DAGANA 25. JÚNl TIL 3. JÚLl 2001.
Átökin um Frumafl innan Lyfjaverslunar íslands:
Minnihluti sigurviss
viðskipti Andstæðingar kaupa
Lyfjaverslunar íslands (LÍ) á
Frumafli segjast hafa meirihluta
hluthafa á bak við sig og ætla að
greiða atkvæði gegn kaupunum á
hluthafafundi á rnorgun.
Á sama tíma hefur Hæstiréttur
til meðferðar lögbannskröfu þeir-
ra á að Jóhann Oli Guðmundsson,
sem seldi Lyfjaversluninni Frum-
afl gegn hlutbréfum í Lyfjaversl-
uninni fyrir 860 milljónir króna,
fái að nýta atkvæðaréttinn sem
fylgir bréfunum á fundinum.
Sturla Geirsson, forstjóri LÍ,
og fleiri stjórnendur innan fyrir-
tækisins segja framtíð þess stefnt
í voða með kaupum á Frumafli.
Þeir telja líklegt _að stjórnvöld
leggi stein í götu LÍ gangi kaupin
eftir.
Grímur Sæmundsen, stjórnar-
formaður LÍ, segir helsta and-
stæðing Frumaflskaupanna, Aðal-
stein Karlsson, kasta grjóti úr
glerhúsi þegar hann segi við-
skiptavild Frumafls einskis virði.
Sjálfur hafi Aðalsteinn fengið
greiddar 800 milljónir' króna frá
LÍ fyrir fyrirtæki sem aðeins
hafði 125 milljónir króna í eigið fé.
Einnig bls. 8
ÞETTA HELST
120 lögreglumenn særðust og
fimm ungmenni voru handtek-
in í miklum kynþáttaóeirðum í
Bradford á Norður-Englandi í
fynúnótt. bls. 6.
~--^---
réttablaðið er mest notaði
fréttamiðill landsins á virkum
dögum í hópi 25-67 ára á höfuð-
borgarsvæðinu, samkvæmt nýj-
ustu fjölmiðlakönnun PriceWa-
terhouseCoopers. bls. 2 og 12-13.
Forsætisráðherra Króatíu, stað-
festi í gær framsal króatíska
stríðsglæpamanna. Óstaðfestar
fréttir greina frá handtöku Kara-
dzcic. bls.2 og 8.