Fréttablaðið - 09.07.2001, Qupperneq 2
Islensk Auðlind
L æ k j a r t o r g i
Hafnarstræti 20. 2h
101 Reykjavík
561-4000
www.audlind.is
Blóma og gjafavöruverslun
Vorum að fá á söluskrá okkar glæsilega blóma-og gjafavöruverslun á frábærum stað I
úthverfi Reykjavík, Um er að ræða fyrirtæki með góða viðskiptavild, smekklega innréttaða og
með fína veltu. Fyrirtækið er rekið í leiguhúsnæði.
Fatahreinsun
Vegna sérstakra aðstæðna erum við með á söluskrá okkar glæsilega fatahreinsun í einu af
úthverfum Reykjavíkur. Fyrirtækið er mjög vel tækjum og búnaði búin og með fína viðskiptavild.
Matvælaframleiðslufyrirtæki
Erum með í einkasölu traust og gott matvælaframleiðslufyrirtæki sem sérhæfir sig m.a. i
salatgerð ásamt öðru. Fyrirtækið er með fína viðskiptavild.
Söluturn og grill með tveimur bílalúgum
Eum með á söluskrá okkar öflugan söluturn ásamt grilli og myndböndum sem rekin er í eig-
in húsnæaði. Fyrirtækið er ungt að árum en hefur náð öflugri veltu á skömmum tíma. Skemmti-
lega innréttað og vel tækjum og búnaði búið.
Vegna mikillar sölu undarnfariö vantar okkur allar gerðir af fyrirtækjum á skrá.
Erum með mjög öfluga og trausta kaupendur sem leita af ákveðnum fyrirtækjum til kaups.
Fyrirtækjasala I Fasteignasala I Leigumiðlun I Lögfræðiþjónusta
KJÖRKASSINN
FRETTABLAÐIÐ
9. júlí 2001 MÁNUPAGUR
Þroskabjálfar til vinnu
í dag:
Lífiðí
fyrra horf
fatlaðir Daglegt líf íbúa í Víðihlíð
9 er komið í sitt fyrra horf eftir að
deila þroskaþiálfa og ríkisins
leystist í gær. Á meðan á verkfall-
inu stóð gátu þau ekki sinnt sínum
daglegu störfum á daginn og
fengu ekki þá þjálfun sem öllum
er nauðsynleg. Það lá vel á Birnu
Rós Snorradóttur og Kristínu Evu
Jónsdóttur í gær og kíktu þau í
tívoli til að gera sér glaðan dag.
„Ég hlakka til að fara í Bjark-
arás að vinna,“ sagði Birna spen-
Fjölmiðlakönnun PriceWaterhouseCoopers:
Fréttablaðið mest notað allra fréttamiðla
I SAMT LAG I DAG
Birna Rós Snorradóttir og Kristín Eva Jensdóttir búa á vistheimili í Víðlhlíð þar sem lífið
kemst í samt lag í dag, að loknu verkfalli. Þær hlökkuðu til að fara í vinnuna sína í dag.
nt. Þar á hún marga vini sem
skemmtilegt er að hitta aftur eftir
langt verkfall. Hún var búin að
vera heima hjá fjölskyldu sinni í
vikunni og fór m.a. í bíó en á
morgun hefst aftur hið reglu-
bundna líf. „Ég vakna klukkan
átta og svo kemur bíllinn og sæk-
ir mig klukkan 11,“ sagði Birna.
Fáir voru í Víðihlíðinni í gær
vegna verkfallsins en búist er við
að fleiri bætist í hóp íbúa í dag og
starfsemin komist á fullt aftur
þegar líður á vikuna. ■
Hraðakstur:
Ahrif verkfalls-
Útlendingar
óupplýstir
umferð Stór hluti þeirra, sem lög-
reglan á Blönduósi hefur stöðvað
fyrir hraðakstur í sumar, eru er-
lendir ferðamenn á bílaleigubil-
um. Að sögn lögreglunnar eru
þeir ekki upplýstir um hámarks-
hraða á þjóðvegum landsins og
keyra þess vegna hraðar en leyfi-
legt er. Engin umferðamerki sýna
hve hratt má aka utan þéttbýlis og
gert er ráð fyrir að fólki sé kunn-
ugt um hraðatakmörkin. Einu
merkin sem sjást þegar keyrt er
út fyrir borgarmörkin sýna að nú
sé keyrt utan þéttbýlis. ■
Atök á Gaza-svæðinu:
Hóta Israel-
um hefndum
RAFAH. GAIA SVÆÐIÐ. ap Palestínskir
uppreisnarmenn köstuðu í gær
yfir 60 handsprengjum og skutu
úr vélbyssum á aðsetur ísraela í
Rafah, á Gaza- svæðinu nálægt
landamærum Egyptalands. Á
sama tíma hótuðu hundruð Palest-
ínumanna hefndaraðgerðum gegn
ísraelum eftir jarðaför 11 ára
gamals Palestínubúa sem skotinn
var í höfuðið á laugardaginn var.
Er talið að ísraelskur hermaður
hafi verið þar að verki. ísraelsher
hefur ekki viljað gefa út yfirlýs-
ingu vegna verknaðarins. ■
LANPHELGISBROT
Landhelgisgæslan vísáði norska
loðnuskipinu Magnarson til
hafnar á ísafirði í gær eftir að í ljós
kom að skipið var með mun meiri
afla en það hafði áður tilkynnt
stjórnstöð Gæslunnar. Þetta mis-
ræmi í afla kom í ljós við skoðun
varðskipsmanna á Óðni um borð í
norska skipinu á miðunum. Skipið
var væntanlegt til ísafjarðar um
klukkan 23 í gærkvöld í fylgd varð-
skipsins þar sem frekari rannsókn
fer fram. Mikil loðnuveiði hefur
verið á Vestfjarðamiðum um helg-
ina.
ins hverfandi
könnun Fréttablaðið er mest lesna
dagblaðið á virkum dögum meðal
fólks á aldrinum 25 til 67 ára á
höfuðborgarsvæðinu. Þetta kem-
ur fram í nýrri fjölmiðlakönnun
PriceWaterhouseCoopers sem
gei’ð var í lok júní og byrjun júlí.
Meðallestur Fréttablaðsins mæld-
ist 72,5 prósent meðal fólks á aldr-
inum 25 til 67 ára en meðallestur á
Morgunblaðinu var 71,5 pi’ósent.
Mestu munaði á lestri þessara
blaða meðal fólks á aldrinum 25 til
29 ára. Þar var meðallestur
Fréttablaðsins 70,1 prósent en
60,5 prósent á Morgunblaðinu.
65,8 prósent fólks á aldrinum 30
til 39 ára las Fréttablaðið að með-
altali en 62,7 prósent Morgunblað-
ið.
Könnunin var gerð stuttu eftir
að Fréttablaðið varð tveggja mán-
aða. Hún staðfestir sterka stöðu
blaðsins sem kom fram í könnun
Gallup í maí og sýnir að það er í
mikilli sókn meðal yngri lesenda.
„Svipuð staða í lestri yfir lín-
una á tveimur mánuðum og Morg-
unblaðið hefur verið 88 ár að byg-
gja upp er meiri árangur en nokk-
ur þorði að vona,“ segir Einar
Karl Haraldsson, ritstjóri Frétta-
blaðsins. „Frábærar viðtökur hjá
fólki efla okkur að sjálfsögðu til
betri verka og fyrir það erum við
þakklát." Þá kemur fram að fólk
Heildarverðmæti útflutnings jókst milli ára. Tvö stærstu fyrirtækin
vörðust áhrifum verkfalls með því að ganga á birgðir og kaupa meira
erlendis frá. Vöruskipti hagstæðari það sem af er árinu.
sækir miklu fremur
fréttir í dagblöðin en
í ljósvakamiðlana.
„Þessar niðurstöður
benda til þess að
svipað sé að gerast
hér á landi og víða
erlendis", segir Ein-
ar Karl. „Okeypis
blöðin hafa þar eins
og hér aukið dag-
blaðalestur yngra
fólks og almennt
styrkt dagblöðin
gagnvart ljósvaka-
miðlunum."
Sjá samantekt um
könnunina á miðopnu.
Siv Svavarsdóttur og Hallldóri Meyer fæddust þríburar á fyrsta
útgáfudegi Fréttablaðsins, 23. apríl. „Þeir eru allir hraustir og
kátir og þyngjast vel," sagði Siv í samtali við Fréttablaðið í gær.
fiskútflutningur „Það ei’ óhætt að
segja að við höfum sloppið nokkuð
vel, smábátar réru og menn gátu
gengið á birgðir. Einnig hjálpar
það til að við kaupum líka fisk frá
Noregi, Færeyjum og Rússlandi,"
segir Gunnar Svavarsson, for-
stjóri Sölumiðstöðvar Hraðfrysti-
húsanna, um áhrif sjómannaverk-
fallsins á fiskútflutning. Nýjar
tölur frá Hagstofunni sem sýna
tveggja prósenta
aukningu á heild-
arveðmæti út-
flutnings sjávar-
afurða í maí á
þessu ári miðað
við sama mánuð á
síðasta ári koma
Gunnari því ekki á
óvart. Hann segir
að helst hafi hið
sex vikna sjó-
mannaverkfall í
vor haft áhrif á út-
hafskarfaveiði, en
GUNNAR SVAV-
ARSSON
Kemur ekki á
óvart, segir for-
stjófi SH.
að heildaráhrif þess á starfsemi
SH séu hverfandi.
Guðmundur Davíðsson, fram-
kvæmdastjóri rekstrarsviðs SÍF
tekur í sama streng og Gunnar.
„Sjómannaverkfallið snerti okkur
ekki mikið. Reikna má með að
mörg útflutningsfyrirtækin hafi
átt hjá sér birgðir og einfaldlega
hreinsað til. Það var hægt að af-
greiða meira og minna það sem lá
fyrir, þó kannski sé of mikið að
segja að við höfum verið búnir
undir verkfall," segir Guðmundur
og bendir á að SÍF starfi í alþjóð-
legu umhverfi þar sem útflutning-
ur frá íslandi sé ekki eini kostur-
inn. Hann segir að áhrifa verk-
fallsins muni ef til vill gæta í ver-
tíðarbundnum afurðum, svo sem
saltfiski.
Sjómannaverkfallið kom lítið við tvö stærstu fiskútflutningsfyrirtækin á l'slandi.
Bæði SH og SÍF áttu uppsafnaðar afurðir í geymslu, auk þess sem þau keyptu meira frá
erlendum aðilum.
I-Ieildarverðmæti útfluttra
sjávarafurða í maí sl. var 8.512
milljónir króna samanborið við
8.489 milljónir í sama mánuði árið
áður. Fyrstu fimm mánuói þessa
árs voru fluttar út vörur fyrir
rúmlega 75.500 milljónir og voru
sjávarafuröir þar af 61%, eða um
46.000 milljónir. Lesa má úr tölum
Hagstofunnar að ástand útflutn-
ings er almennt gott. Orsök þess
er ekki síst gengisfall krónunnar,
en samkeppnisstöðu íslenskra
sjávarafurða batnað verulega.
Batnandi vöruskiptajöfnuður end-
urspeglar þetta, en vöruskipta-
hallinn var fyrstu fimm mánuði
ársins 8,6 milljarðar króna sam-
anborið við 18 milljarða á sama
tímabili í fyrra, miðað við fast
gengi.
matti@frettabladid.is
LAUSNIN KOM
UM HELGINA
Lítill hluti kjósenda
á visi.is sá fyrir að
deila þroskaþjálfa
við ríkið mundi leys-
ast um helgina en
samningar tókust á
laugardagskvöld.
Leysist deila þroskaþjálfa
fyrir helgi?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
13°/o
Spurning dagsins í dag:
Finnst þér að Jón Steinar hafi brotið
góða lögmannshætti með ummælum
um prófessorsmálið?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þína skoðun
IVICA RACAN
Leiðtogar Króatíu hvaða verið undir mikilli
pressu vegna framsals stríðsglæpamanna
eftir að ríkisstjórn Serbíu ákvað að fram-
selja Milosevic fyrrverandi forseta landsins
til stríðsglæpadómstólsins í Haag.
Forsætisráðherra Króatíu:
Staðfestir
framsal stríðs-
glæpamanna
zagreb. króatíu. ap. Ivica Racan,
forsætisráðherra Króatíu, stað-
festi í gær áform ríkisstjórnar
sinnar um að framselja króatíska
stríðsglæpamenn til stríðsglæpa-
dómstóls Sameinuðu þjóðanna.
„Hinn kosturinn hefði verið sá að
hafna beiðni stríðsglæpadóm-
stólsins'um framsal og hefja þar
með deilur bæði við dómstólinn
og við Evrópu og hið alþjóða sam-
félag,“ sagði Racan í gær. „Ríkis-
stjórn þessi gat einfaldlega ekki
tekið þessa áhættu:" Fyrr um dag-
inn hafði Stipe Mesic, forseti
Króatíu, stutt áform ríkisstjórn-
arinnar og sagði hann að landar
sínir væru líka sekir um stríðs-
glæpi í baráttu sinni fyrir sjálf-
stæði. Ákvörðun króatísku ríkis-
stjórnarinnar hefur vakið upp
miklar deilur í landinu ög nú er
talin hætta á því að stjórnin gæti
hrunið eftir aðeins 18 mánaða
valdatíma. Þegar hafa fjórir ráð-
herrar innan ríkisstjórnarinnar
sagt upp störfum í mótmæla-
skyni, en þeir eru allir úr flokki
frjálslyndra sósíalista, sem verið
hefur í mestu samstarfi vió flokk
Racan innan króatísku ríkis-
stjórnarinnar. Ekki hefur verið
gefið upp hvaða stríðsglæpamenn
verði framseldir, en á meðal þeir-
ra sem nefndir hafa verið eru
tveir hershöfðingjar; Ante Goto-
vina og Rahim Ademi.
einnig bls. 9.