Fréttablaðið - 09.07.2001, Side 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
9. júlí 2001 MÁNUDAGUR
Karadzic
handtekinn?
Tal & Islandssími:
Ekki hækkanir
FARSÍMAR Talsmenn þjónustuvera
bæði Tals og Íslandssíma kannast
ekki við að neinar hækkanir séu í bí-
gerð hjá þeim á símtölum í farsíma
til landa í Evrópu, eins og Landsím-
inn hefur boðað. Sem kunnugt er
hefur Síminn tilkynnt að mínútu-
gjaldið muni hækka hjá þeim um
nær tvöfalt frá því sem verið hefur,
eða um 18 krónur og kemur sú
hækkun til framkvæmda í dag.
Það að ekki skuli vera nein
hækkun á döfinni hjá Tal og ísland-
síma vekur athygli þegar haft er í
huga að Landsíminn rökstyður sína
hækkun með því að kostnaður
vegna símtala í erlenda farsíma hef-
ur hækkað umtalsvert vegna hærri
þjónustugjalda erlendra farsíma-
fyrirtækja. ■
stríðsglæpir Radovan Karadzic,
fyrrverandi leiðtogi Bosníu-
Serba, hefur verið handtekinn af
öryggislögreglunni í Serbíu að því
er haft er eftir þýsku fréttastof-
unni DPA á fréttavef sænska dag-
blaðsins Aftonbladet. Þetta hefur
ekki fengist staðfest.
Dragan Bojec, öryggisstjóri
Karadzic, hefur verið í yfir-
heyrslu hjá serbnesku öryggislög-
reglunni en óvist er hvort hann
hafi sagt til um dvalarstað Kara-
dzic. Kona Karadzic sagði að eig-
inmaður sinn myndi aldrei gefa
sig fram við yfirvöld og eiga á
hættu að vera leiddur fyrir Stríðs-
glæpadómstólinn í Haag. Eftir að
Milosevic var framseldur til
Stríðsglæpadómstólsins eru Kara-
dzic og Ratko Mladic eftirsóttustu
stríðsglæpamennirnir hjá dóm-
stólnum í Haag.
Króatísk stjórnvöld hafa gefið
út yfirlýsingu þess efnis að þau
muni framselja alla stríðsglæpa-
menn til Stríðsglæpadómstólsins i
Haag. Yfirlýsing króatískra
KARADZIC
Radovan Karadzic var leiðtogi Bosníu-
Serba i átökunum í Júgóslavíu á síðasta
áratug.
stjórnvalda hefur valdið miklum
deilum í landinu. ■
Þórsmörk:
Fimm fluttir
í bæinn
med sjúkrabíl
óhapp Kallað var á lækni, sjúkra-
bíl og lögreglu í Þórsmörk þegar
dekk affelgaðist á pallbíl með
þeim afleiðingum að fimm slösuð-
ust. Sjö farþegar stóðu á palli bíls-
ins, sem var að ferja fólk yfir
Krossá á leiðinni í Húsadal. Mildi
þykir að bíllinn valt ekki þegar
slysið átti sér stað.
Fólkið var flutt á slysadeildina
á Landsspítalans í Fossvogi og
voru einhverjir með brotinn hand-
legg, rif og nef.
Okumaðurinn er grunaður um
ölvunarakstur. ■
Heimild: Þjóðhagsstofnun
Heildarskuldir ríkissjóðs:
Sextíu pró-
sent í er-
lendri mynt
ríkissjóður í nýrri ársskýrslu
Lánasýslu ríkisins segir að heild-
arfjárhæð innlendra lána ríkis-
sjóðs hafi verið 92 milljarðar
króna í lok ársins f fyrra. Heildar-
fjárhæð erlendra lána var hins
vegar 139 milljarðar á sama tíma.
Af heildarskuldum ríkissjóðs eru
60% f erlendri mynt.
„Ókostur við erlend lán er
gengisáhætta," segir TYyggvi Þór
Herbertsson, forstöðumaður Hag-
fræðistofnunar. Að öðru leyti seg-
ir hann þetta vera eins og hverjar
aðrar skuldir, spurningin sé hvað
mikið ríkið er tilbúið að borga í
vexti.
„Auðvitað væri æskilegt að
ríkissjóður væri skuldlaus við út-
lönd því þá myndi fjármagn ekki
flæða úr landi í afborganir af lán-
um og vaxtagreiðslur. Við þær að-
stæður væri hægt að ráðast í
skattalækkanir og aðra góða
hluti,“ segir Tryggvi. Hann telur
þó skuldir ríkissjóðs vera hófleg-
ar og í sjálfur sér ekkert slæmt að
ríkið skuldi. ■
Bresk heilbri:
um
rfirðisyfirvöld
Smituðust
8% við
munnmök?
heilsa. Að sögn breskra heilbrigð-
isyfirvalda er hættan á að smitast
af HlV-veirunni vegna munn-
maka, meiri en margir halda.
Þrátt fyrir að munnmök teljist til
mun minni áhættuþáttar hvað
varðar HlV-smit heldur en annars
konar mök, þá benda nýlegar
rannsóknir til þess að munnmök
sé ástæðan í allt að 8% tilfellum
af þeim sem smitast af HIV-
veirunni, sem síðar leiðir til al-
næmissjúkdómsins. „Flestir telja
að munnmök geti ekki verið
hættuleg," segir Dr. Barry Evans,
hjá smitsjúkdómadeild bresku
heilbrigðisstofnunarinnar. En að
hans sögn hafa nýjustu rannsókn-
ir leitt í ljós að þau leiði til 30-50
nýrra HlV-tilfella á hverju ári í
Bretlandi. „Munnmök eru ekki
stór áhættuþáttur hvað varðar
HlV-smit, en fólk þarf hins vegar
að gera sér grein fyrir að það er
áhættuþáttur," bætti hann við í
samtali við fréttavef Reuters. ■
FRÉTTASKÝRINC
Tímasprengjan tifar
hjá Lyfjaversluninni
Atökin innan Lyíjaverslunar Islands náðu nýjum hæðum um helgina þegar forstjóri fyrirtækis-
ins og margir lykilstarfsmanna þess lögðu starf sitt að veði með því að lýsa opinberri andstöðu
við kaupin á Frumafli. Andstæðingar kaupanna segjast hafa safnað meirihluta hluthafa til að
hafna kaupunum á hluthafafundi á morgun og ætla að neyta aílsmunar.
LYFJAVERSLUN fSLANDS
Hefur eignast Frumafl eða ekki og mun það þá valda fyrirtækinu ómældum skaða?
viðskipti Stöðunni innan Lyfja-
verslunar íslands virðist í augn-
blikinu helst hægt að líkja við
tímasprengju. Á morgun verður
haldinn hluthafafundur um um-
deild kaup félagsins á rekstrarfé-
laginu Frumafli fyrir 860 milljón-
ir króna.
Andstæðingar kaupanna segj-
ast þegar hafa tryggt sér meiri-
hluta á fundinum. Hafni hluthaf-
arnir kaupunum á Frumafli gæti
félagið átt yfir höfði sér máls-
höfðun frá seljandanum, Jóhanni
Óla Guðmundssyni, sem telur sig
hafa bindandi samning um þessi
viðskipti.
Kjósi meirihluti hluthafanna
hins vegar að staðfesta kaupin er
ljóst að forstjóra fyrirtækisins og
mörgum lykilstarfsmönnum er
ekki vært lengur í fyrirtækinu.
Þessir starfsmenn hafa opinber-
lega lýst andstöðu við vilja stjórn-
arinnar í málinu. Þeir telja verðið
sem Lyfjaversluninni er gert að
greiða fyrir Frumafl vera alltof
hátt og segja rekstur þess og
framtíð á alla lund vera stefnt í
hættu verði kaupunum ekki af-
stýrt.
Skoðanir Sturlu Geirssonar
forstjóra og nokkurra samverka-
manna hans innan Lyfjaverslun-
arssamsteypunnar birtust í bréfi
þeirra til stjórnar félagsins. Bréf-
ið var birt í Morgunblaðinu í gær
en Sturla segir það reyndar hafa
verið í óþökk sinni.
Meðal þess sem Sturla segir í
bréfi sínu er að stjórnmálaflokkar
séu andvígir kaupum Lyfjaversl-
unarinnar á Frumafli og að þau
séu illa séð af stjórnvöldum. Lík-
legt sé að menn úr öllum flokkum
leggi stein í götu fyrirtækisins
gangi kaupin eftir.
„Þetta viðhorf hefur bæði kom-
ið fram í einkaviðtölum mínum
við stjórnmálamenn og í yfirlýs-
ingum í þessa veru frá stjórn-
málamönnum", segir Sturla.
Grímur Sæmundsen, stjórnar-
formaður Lyfjaverslunarinnar,
segir bréf Sturlu og félaga fyrst
og fremst innihalda órökstuddar
vangaveltur. „Ég hef hvergi séð
yfirlýsingar frá stjórnvöldum eða
stjórnmálamönnum um Lyfja-
verslun íslands. Þetta er sett upp
eins og allir séu að hlaupa frá fé-
laginu en þannig gerast hlutirnir
einfaldlega ekki. Eg á von á því að
eftir fundinn á þriðjudaginn lægi
þessar öldur og þá fari menn ein-
faldlega að 'reka félagið,“ segir
Grímur.
Grímur vonast til að hægt sé
ná sáttum meðal hlutahafa Lyfja-
verslunarinnar.
„Það verður að finna lausnir
sem fela það í sér að Lyfjaverslun
íslands sé áfram eigandi að Frum-
afli. Ef menn telja það einu leiðina
að fara að vilja þess hóps sem seg-
ist á móti kaupunum er auðvitað
ekki um neinar sættir að ræða.
Það sem Sturla er að leggja til er
það sem fundarboðendurnir vilja;
að Jóhann Óli verði alls ekki
stærsti hluthafi í félaginu. Þessir
menn vilja einfaldlega hafa völd í
félaginu en málið er hins vegar
sett fram í skjóli ágreinings um
kaupverðið á Frumafli sem þeir
voru sjálfir búnir að samþykkja í
janúar," segir Grímur.
Sá hluthafi sem harðast hefur
gengið fram í gagnrýni sinni á
kaupunum á Frumafli er Aðal-
steinn Karlsson, eigandi heildsöl-
unnar A. Karlsson, sem Lyfja-
verslunin keypti fyrir ríflega 800
milljónir króna. Grímur telur Að-
alstein skjóta úr glerhúsi þegar
hann gagnrýnir verðmat á við-
skiptavild Frumafls.
„Ágreiningur vegna verðmats-
ins á Frumafli hefur verið um
þessar óefnislegu eignir sem hann
segir vera einskis virði. Á sama
tíma var fyrirtæki hans keypt á
800 milljónir króna þegar eigið fé
þess var aðeins 125 milljónir. Af-
gangur verðsins var metin sem
viðskiptavild fyrirtækisins,“ seg-
ir Grímur.
Grímur segir hugsanlegt að
vinna áfram með Sturlu og öðrum
bréfriturum þrátt fyrir skrif þeir-
ra: „Það er gífurlegt álag á öllum
hlutaðeigandi og fólk er mjög
uggandi og ég held að þesssir
starfsmenn hafi þess vegna geng-
ið fullhart fram. Þetta fólk hefur
góðan hug til félagsins en í bréf-
inu er því hins vegar því miður
lýst sem rjúkand rúst og það er nú
ansi djúpt í árinni tekið."
Sturla segir sig og félaga sína
hins vegar hafa lagt starf sitt að
veði með bréfinu: „Lyfjaverslunin
er gríðarlega öflugt fyrirtæki
með bjarta framtíð og það er
óskiljanlegt að þessir menn vilji
stefna henni í voða. Til að vinna
gegn þessu höfum við lagt starf
okkar að veði og það sýnir einfald-
lega hversu alvarlegum augum
við lítum stöðuna."
gar@frettabladid.is