Fréttablaðið - 09.07.2001, Síða 11
MÁNUDAGUR 9. júlí 2001
FRETTABLAÐIÐ
Söluandvirði Landsbankans:
Glórulaust að eyrna-
merkja féð byggðamálum
einkavæðing „Að eyrnamerkja
þessa peninga einhverjum
byggðaaðgerðum held ég að sé
glórulaust. Vandamálið í byggða-
málum er ekki peningarnir heldur
hvað eigi að gera,“ segir IVyggvi
Þór Herbertsson, forstöðumaður
Hagfræðistofnunar, um ráðstöfun
söluandvirðis Landsbankans.
TVyggvi segir hagnaðinn af söl-
unni vandmeðfarinn. „Það er
mjög gott ef erlendir fjárfestar
koma með pening inni landið; það
styrkir íslenskt efnahagslíf og
krónuna enn frekar. Ég hefði
haldið að í þessari stöðu sé eðli-
legt að grynnka sem mest á skuld-
um og borga niður lífeyrisskuld-
bindingar en fara ekki út í ein-
hverja eyðslu."
Valgerður Sverrisdóttir, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, hefur
sagt að eyða eigi hluta af söluand-
virði Landsbankans í sértækar að-
gerðir til að styrkja landbyggðina
og hefur Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra tekið undir það. Ti’yggvi
segir að það sé alltaf verið að tala
urn að það vanti peninga en svo
hafi menn engar hugmyndir. ■
Hverfandi áhrif
sjómannaverkfalls
Álver í Reyðaríirði:
Sprengir Kyoto-mörkin
SVAGA
jj
10-16 jáli
20-70% afsláttur
Útiflísar 30x30 cm ákr. 1.390,-pr.m2
Veggflísar 15x20 cm frákr. 1.190,-pr.m2
Gólfflísar 30x30 cm frákr. 1,290,-pr.m
Lágmarks afsláttur 20%
Afgangsflísar 70%
Heildarverðmæti útflutnings jókst milli ára.
Tvö stærstu fyrirtækin vörðust áhrif
verkfalls með því að ganga á birgðir og kaupa
meira erlendis frá. Vöruskipti hagstæðari
það sem af er árinu.
lanpvernd Landvernd telur að
framkvæmd vegna álvers í Reyð-
arfirði muni valda umtalsvert
meiri umferð og hávaða og gróður
og dýralíf muni
verða fyrir nei-
kvæðum áhrifum
á þynningarsvæði
mengunar. Þá
munu háspennu-
línur og stórar
byggingar raska
landslaginu um-
talsvert og árlega
munu tæplega 90
tonn af köfnunar-
efnisoxíðum
verða losuð út í
andrúmsloftið. í
framhaldi af því
vekur Landvernd
athygli á því hvort
þessir þættir
ÓLÖF GUÐNÝ
VALDIMARS-
DÓTTIR FOR-
MAÐURLAND-
VERNDAR
Félagið vill að öll-
um tiltækum ráð-
um verði beitt til
að halda mengun
frá álveri í Reyðar-
firði I lágmarki.
muni ekki hafa neikvæð áhrif á
ímynd svæðisins vegna ferða-
þjónustu og matvælaframleiðslu.
í athugasemdun Landverndar
til Skipulagsstofunar kemur ein-
nig fram að framsetning efnis og
uppskipting Norals-verkefnisins
gerir það að verkum að erfitt sé
að meta umhverfisáhrif fram-
kvæmda á Reyðarfjörð. Þá telur
félagið að framkvæmdaaðili hafi
ekki fjallað á fullnægjandi hátt
um val á staðsetningu verksmiðj-
unnar. Jafnframt virðist skorta
greiningu á þeirri samfélagslegu
áhættu sem álver kann að hafa
fyrir svæðið. Einnig sé viðbúið að
þessi eina framkvæmd muni
valda því að losun íslands á
gróðushúsalofttegundum fari
talsvert fram úr þeim viðmiðun-
armörkum sem sett eru í Kyoto-
bókuninni. ■
fiskútflutningur „Það er óhætt að
segja að við höfum sloppið nokkuð
vel, smábátar réru og menn gátu
gengið á birgðir. Einnig hjálpar
það til að við kaupum líka fisk frá
Noregi, Færeyjum og Rússlandi,"
segir Gunnar Svavarsson, forstjóri
Sölumiðstöðvar Hraðfrystihús-
anna, um áhrif sjómannaverkfalls-
ins á fiskútflutning. Nýjar tölur
frá Hagstofunni sem sýna tveggja
prósenta aukningu á heildarveð-
mæti útflutnings sjávarafurða í
maí á þessu ári miðað við sama
mánuð á síðasta ári koma Gunnari
því ekki á óvart. Hann segir að
helst hafi hið sex vikna sjómanna-
verkfall í vor haft áhrif á út-
hafskarfaveiði, en að heildaráhrif
þess á starfsemi SH séu hverfandi.
Guðmundur Davíðsson, fram-
kvæmdastjóri rekstrarsviðs SÍF
tekur í sama streng og Gunnar.
„Sjómannaverkfallið snerti okkur
ekki mikið. Reikna má með að
mörg útflutnings-
fyrirtækin hafi átt
hjá sér birgðir og
einfaldlega hreins-
að til. Það var
hægt að afgreiða
meira og minna
það sem lá fyrir,
þó kannski sé of
mikið að segja að
við höfum verið
búnir undir verk-
fall,“ segir Guð-
mundur og bendir
á að SÍF starfi í al-
þjóðlegu umhverfi
þar sem útflutn-
ingur frá íslandi sé ekki eini kost-
urinn. Hann segir að áhrifa verk-
fallsins muni ef til vill gæta í ver-
tíðarbundnum afurðum, svo sem
saltfiski.
GUNNAR SVAV-
ARSSON
Kemur ekki á
óvart, segir for-
stjóri SH.
NÓG TIL AF FISKI
Sjómannaverkfallið kom lítið við tvö
stærstu fiskútflutningsfyrirtækin á fslandi.
Bæði SH og SÍF áttu uppsafnaðar afurðir í
geymslu, auk þess sem þau keyptu meira
frá erlendum aðilum.
Heildarverðmæti útfluttra
sjávarafurða í maí sl. var 8.512
milljónir króna samanborið við
8.489 milljónir í sama mánuði árið
áður. Fyrstu fimm mánuði þessa
árs voru fluttar út vörur fyrir rúm-
lega 75.500 milljónir og voru sjáv-
arafurðir þar af 61%, eða um
46.000 milljónir. Lesa má úr tölum
Hagstofunnar að ástand útflutn-
ings er almennt gott. Orsök þess er
ekki síst gengisfall krónunnar, en
samkeppnisstöðu íslenskra sjávar-
afurða batnað verulega. Batnandi
vöruskiptajöfnuður endurspeglar
þetta, en vöruskiptahallinn var
fyrstu fimm mánuði ársins 8,6
milljarðar króna samanborið við
18 milljarða á sama tímabili í
fyrra, miðað við fast gengi.
matti@frettabladid.is
KONUR ATH!
UTSALAN
HEFST Á MORGUN KL. 10:00
Allt að
50%
afsláttur
Fallegur
fatnaður
Góðar stæri
34-46
Part Two
Kringlunni
Sími 568 6845
Ertu að byggja?-Viltu breyta?-Þarftu að bæta?
Grensásvegi 18 s: 581 2444
d grcidilukjor!
Raðgrclðslur
l.tACKMAN ouglýsit