Fréttablaðið - 09.07.2001, Qupperneq 14
14
FRETTABLAÐIÐ
9. júli 2001 MÁNUDflCUR
Þjóðverjar Evrópumeistarar kvenna:
Fyrsta gullmarkið
Meistaramót Islands í frjálsum íþróttum:
FH Islandsmeistarar
knattspyrna Úrslitaleikur Evrópu-
móts kvenna í knattspyrnu fór fram í
Ulm í Þýskalandi á laugardaginn. Þar
mættust Þjóðverjar og Svíar, sem
höfðu sigrað Noreg og Danmörk í
undanúrslitunum.
Enn var markalaust eftir venju-
legan leiktíma og var því spilað upp á
gullmark í framlengingu en aldrei
áður hefur verið skorið úr um Evr-
óputitill kvenna með gullmarki. Það
kom eftir átta mínútur af framleng-
ingunni þegar Þjóðverjinn Claudia
Mueller tryggði landi sínu fimmta tit-
ilinn í Evrópukeppni kvenna. Mueller
sóaði tveimur dauðafærum stuttu
áður þannig að þeir 16 þúsund áhorf-
endur sem horfðu á leikinn í Þýska-
MOLAR
landi voru fegnir.
Þetta er næst mesti áhorfenda-
fjöldi sem hefur mætt á kvennaleik í
Þýskalandi. Aðstandendur keppninn-
ar eru himinlifandi yfir þeim 90 þús-
und manns sem eru búnir að mæta á
leiki og segja fjöldann fara langt
fram úr björtustu vonum.
„Spilamennskan í keppninni var
frábær og styður undir þá jákvæðu
þróun sem er í gangi,“ sagði Norð-
maðurinn Karen Espelund, sem er
yfir nefnd um evrópskan kvenna-
bolta.
Knattspyrnusamband Þýskaland
tilkynnti að það ætlar að leggja áher-
slu á að gera atvinnumannadeild úr
kvennadeildinni þar í landi. ■
BÚIÐ SPIL
Claudia Mueller fagnar eftir að skora gull-
markið í úrslitaleiknum.
FRJÁLSflR ÍÞRÓTTIR Heimamenn í FH
sigruðu stigakeppni Meistara-
móts íslands í frjálsum íþróttum
á Kaplakrika nú
um helgina og
hlutu titilinn ís-
landsmeistari fé-
lagsliða. FH sigr-
aði með 287 stig,
UMSS varð í öðru
sæti með 162,5
stig og Breiðablik
í því þriðja með
94 stig.
FH fékk 18 ís-
landsmeist-
aratitla, UMSS fékk fimm,
Breiðablik fjóra, HSK þrjá, ÍR
tvo og UMSE einn.
Hlauparinn Silja Úlfarsdóttir
var í stuði um helgina, sigraði í
þremur einstaklingsgreinum,
100, 200 og 400 metra hlaupi og
tveimur boðhlaupum, 4x100 og
4x400 metra. Þá sigruðu Sveinn
Margeirsson UMSS og Jón Arnar
Magnússon Breiðabliki í þremur
greinum.
Þórey Edda Elísdóttir stuðlaði
einnig að sigri FH með því að
vinna í stangarstökki. Elún stökk
yfir 4,30 metra og setti þar með
mótsmet. Þórey átti einnig heið-
arlega tilraun við nýtt fslands-
met, 4,51, rétt felldi rána í þriðju
tilraun. Vala Flosadóttir ÍR varð í
öðru sæti. Hún stökk yfir 4,20 og
felldi 4,30 þrisvar. ■
SILJA ÚLFARSD.
Fimmfaldur
(slandsmeistari
Kristín Rós Hákonardóttir setti í
gærmorgun heimsmet fatlaðra í
200 metra baksundi á Sundmeistara-
móti íslands sem
var haldið í Sund-
lauginni í Laugar-
dal um helgina og
lauk í gær. Hún
synti á 3.19,41 mín.
Koibrún Ýr Krist-
jánsdóttir hlaut
Pálsbikarinn, sem
veittur er fyrir besta afrek mótsins.
Hann fékk hún fyrir sigur sinn i 50
metra baksundi, þar sem hún fékk
780 stig. Hún fékk einnig Kolbrúnar-
bikarinn, sem gefin er fyrir besta af-
rek konu. Örn Arnarson fékk Guð-
mundarbikarinn, fyrir besta afrek
karla á mótinu. Hann fékk 760 stig
fyrir 50 metra skriðsund.
9. iiil ■li. lul
i mán FH - Fytklr SímadBildin kl. 19.40
! Þri íslensku mðrkln Kl. 23.10
fös Hestar 847 kl. 20.00
laa Tlm Austin - Steve Dotse Hnelaleikar kl. 22.30
! sun íþróttastjömur kl. 19.45
sun islensku möridn kl. 23.10
í mán Keflavík - Grindavík Símadeildin kl.19.40
Hörkuleikur í Kaplakrika
Vanda Sigurgeirsdóttir þjálfari Neista spáir fyrir um leiki kvöldsins í Símadeild karla. Hún segir
það skila sér í bættum anda og betri aðsókn að hafa uppalda leikmenn í liðunum.
knattspyrna I kvöld fara fram
tveir leikir í níundu umferð
Símadeildar karla. Keflavík tek-
ur á móti Fram á Keflavíkurvelli
„Það er kannski dálítið erfitt að
spá um Fram liðið,“ sagði Vanda
Sigurgeirsdótti
fyrrum landsliðs-
þjálfari kvenna-
landsliðsins þeg-
ar Fréttablaðið
bað hana að spá
fyrir um leikina.
„Maður er alltaf
að bíða eftir að
eitthvað gerist
hjá þeim. Það er
bara spurning
hvenær það ger-
ist en þeir hafa
ekki sýnt neitt
hingað til svo ég spái Keflavík
sigri. Ætli leikurinn endi ekki 2-
l.“
VANDA SIG.
Hún segir Fram-
liðið ekki enn hafa
náð að sanna sig
og eiga mikið inni.
Á Kaplakrika taka FH-ingar á
móti Fylkismönnum en þessi lið
eru á toppi Símadeildarinnar.
Vanda spáir hörkuleik en segir
Fylki fara með sigur af hólmi.
„Ég spái mínum mönnum úr
Árbænum sigri. Ég veit samt að
Logi vinur minn Ólafsson verður
ekki kátur með þessa spá-
mennsku en Fylkir er á góðri
siglingu. Mér finnst vera meist-
arabragur á þeim, þeir fengu
smjörþefinn af þessu í fyrra og
ætla sér að gera betur en þá.
Þetta verður ábyggilega hörku-
leikur en eins og ég segi
finnst mér vera góð
sigling á þeim
þannig að ég
held að þeir
vinni þennan
leik.“ Vanda
er nú bú-
sett á
Sauðár-
k r ó k i
þ a r
s e m
h ú n
þjálfar
Neista
frá Hofs
ósi í
deildinni.
Hefur hún
eitthvað séð til
liðanna í sumar?
„Ég hef nú bara
séð leikina í sjón-
varpinu. En í FH lið-
inu eru ungir og
sprækir leikmenn auk
gamalla jaxla inná
milli. Það sem mér
finnst hinsvegar sér-
staklega gaman við
Fylkisliðið er að þetta
eru strákar að stórum
hluta úr Árbænum.
Þannig að þetta eru
Fylkismenn innað
beini," segir Vanda,
en hún vann í félags-
miðstöðinni Árseli og
þekkir því svolítið til
liðsins. „Mér finnst
það skipta mjög
miklu máli í öllum
þessu peningadóti
sem ríkir í knatt-
spyrnunni. Ég
held að andinn verði betri í liðinu
og fólk úr Árbænum kemur til að
sjá stráka sem hafa alist upp
þarna,“ sagði Vanda að lokum. ■
GLAÐIR
Sverrir Sverrisson fagnar hér marki Péturs
B. Jónssonar gegn Skagamönnum I áttun-
du umferð Símadeildarinnar.
Inter-toto keppnin í knattspymu:
MOLAR
afnfirðingarnir Hilmar Þór
Guðmundsson og Daði Eyj-
ólfsson töpuðu báðir fyrstu leikj-
um sínum á HM
U-21 í snóker.
Mótið fer fram í
Stirling í
Skotlandi. Hilmar
tapaði 4-0 fyrir
Skotanum Mark
Boyle og Daði
tapaði fyrir sam-
landa hans, Scott McKenzie, 4-1.
Hilmar leikur við Neil Roberts-
son frá Ástralíu og Daði við N-ír-
ann Mark Allen í dag.
Knattspyrnuráð Ameríku tók
þá ákvörðun í síðustu viku að
Suður-Ameríkubikarnum yrði
ekki frestað
vegna óöryggis í
Kólumbíu. Búið
var að ákveða að
keppnin færi
fram í janúar eft-
ir að Hernan
Meija, varafor-
seta knattspyrnu-
sambands Kól-
umbíu, var rænt á dögunum.
Keppnin mun því fara fram dag-
ana 11. til 29. júlí eins og upp-
runalega var ákveðið. Landslið
Chile og Ekvador mættu til Kól-
umbíu í gær. Kanada sagði sig úr
keppninni og Argentína ætlar að
svara á morgun. Landslið Brasil-
íu mætir í dag. Með því verða al-
ríkislögreglumenn sem munu fyl-
gja því og vernda hvert sem það
fer.
Grindavík úr leik í Evrópukeppni
knattspyrna Grindvíkingar eru
úr leik í Inter-toto keppninni í
knattspyrnu eftir 2-0 tap gegn
svissneska liðinu FC Basel á
Grindavíkurvelli í gær. Basel
vann fyrri leikinn með þremur
mörkum gegn engu og því sam-
tals 5-0. Grindvíkingar spiluðu
vel í fyrri hálfleik og áttu þrjú
góð færi en nýttu þau ekki sem
skyldi. Andre Muff skoraði bæði
mörk gestanna, það fyrra á 14.
mínútu en það síðara tíu mínút-
um fyrir leiks lok.
„Þetta var ágætur leikur hjá
okkur og þá sérstaklega fyrri
hálfleikur. Þetta er með betri
fyrri hálfleikjum sem liðið hefur
spilað,“ sagði Milan Stefán
Jankovic þegar Fréttablaðið
hafði samband við hann í gær.
„Við fengum nokkur færi í fyrri
hálfleik og hefðu geta skorað eitt
til tvö mörk en þeir skoruðu eftir
varnarmistök hjá okkur.“ Milan
var ekki ánægður með leikinn í
dag enda var takmarkið að vinna
leikinn.
„Það hefði verið skemmtilegra
að ná jafntefli en því miður tókst
það ekki. Þetta er samt mjög góð
reynsla fyrir leikmenn, þjálfara
og aðstandendur liðsins." Það
vakti furðu hve fáir lögðu leið
sína í nýja og glæsilega stúku
þeirra Grindvíkinga en Milan
sagði að einungis fjögurhundruð
manns hefðu lagt leið sína á völl-
inn. En hann hafði skýringar á
ÓHEPPNIR
Grindvlkingar fengu þrjú til fjögur góð færi I leiknum en náðu ekki að nýta sér það sem
skyldi. „Góð reynsla fyrir leikmenn, þjálfara og aðstandendur liðsins," sagði Milan Stefán
Jankovic.
reiðum höndum. „Það voru svo
margir í útilegu eða á pollamót-
inu á Akureyri."
Grindavík er sem stendur í
áttunda sæti deildarinnar með
níu stig og segir Milan Stefán að
nú taki baráttan við. „Það er leik-
ur við Keflavík og einnig í bik-
arnum og við ætlum að standa
okkur þar.“ ■