Fréttablaðið - 09.07.2001, Qupperneq 15
MÁNUDAGUR 9. júli 2001
FRETTABLAÐIÐ
15
Evrópumótið í golfi:
Island í fjórða sæti
8-liða úrslit Coca-Cola
bikarkeppninnar:
Stefnir í
hörkuleiki
knattspyrna Á föstudaginn var
dregið í átta liða úrslitum í Coca-
Cola bikarkeppninni. í karla-
flokki er KA eina liðið sem ekki
kemur úr úrvalsdeildinni. Norð-
anmenn, sem sitja á toppi l.deild-
ar, taka á móti Keflavík á KA
velli. FH og ÍBV eigast við í
Hafnarfirði og á Valbjarnarvelli
eigast við Skagamenn og Fram.
Þessir leikir verða spilaðir
sunnudaginn 22. júlí. Fjórði og
síðasti leikurinn verður spilaður
mánudaginn 23. júlí er Grindavík
og Fylkir mætast á Grindavíkur-
velli. Allir leikirnir hefjast
klukkan 20.00.
í bikarkeppni kvenna tekur 1.
deildarlið Hauka úr Hafnarfirði á
móti Valsstúlkum, á Stjörnuvelli
mætast Stjarnan og KR, á Kópa-
vogsvelli mætast efstu lið Síma-
deildar Breiðablik og ÍBV og
HÖRKURIMMA
Fylkir mætir Grindavík og ÍA mætir Fram í
8- liða úrslitum bikarkeppninnar.
Þróttur Reykjavík, sem einnig
spilar í 1. deild, tekur á móti FH.
Leikirnir verða spilaður þriðju-
daginn 17. júlí og hefjast klukkan
20.00. ■
golf íslenska karlalandsliðið í golfi
hafnaði í fjórða sæti á Evrópumót-
inu, sem fram fór á Ljunghusen vell-
inum í Svíþjóð, eftir 4-1 tap gegn
Englendingum í leik um bronsverð-
launin. Eftir glæstan sigur gegn Sví-
um í átta liða úrslitum mættu ís-
lenska liðið því írska í undanúrslit-
um. írar voru ekki taldir jafn sterkir
og þeir sænsku en mættu ákveðnir til
leiks og sigruðu 5-2. Ottó Sigurðsson
og Helgi B. Þórisson sigruðu í fjór-
menningsleik sínum og náðu í einn
vinning en það var síðan Suðurnesja-
maðurinn Örn Ævar Hjartarson sem
sigraði í sínum leik og náði í annan
vinning.
íslendingar mættu því feyki-
sterku liði Englendinga í sæti um
bronsverðlaunin og var spilað með
breyttu keppnisfyrirkomulagi, að-
eins einn fjórmenningsleikur og fjór-
ir tvímenningsleikir.Orn Ævar Hjart-
arson var sá eini sem náði í stig fyrir
fslendinga en hann lagði Luke Don-
ald sem talinn er einn efnilegasti
golfleikari heims. Aðrir leikir töpuð-
ust og lenti ísland því í fjórða sæti
keppninnar. Þetta er stórkostlegur
árangur hjá íslensku strákunum sem
leika golf við allt aðrar aðstæður en
mótherjar þeirra og er óhætt að
segja að þessi árangur gefi golfinu
byr undir báða vængi. ■
Venus varði titilinn
Sigraði Belgann unga, Justine Henin, í gær. Urslit karla í dag.
tennis Venus Williams tryggði sér
í gær sigur á Wimbledon, annað
árið í röð. Hún sigraði Belgann
Justine Henin 6-1, 3-6, 6-0.
Viðureignin átti að fara fram á
laugardag en var frestað vegna
mikillar rigningar. Úrslitaviður-
eign karla, milli Pat Rafter og
Goran Ivanisevic, átti að fara
fram í gær en var frestað um einn
dag. Ivanisevic sló Tim Henman
út í gær og Rafter sló Andre
Agassi út á föstudag.
„Ég er ekki búin að tapa í 14
viðureignum auk sigra í tvíliða-
leik. Ég held að Wimbledon eigi
eftir að vera mér góður staður
áfram,“ sagði Williams kokhraust
eftir sigurinn. Hún vildi ekki
segja til um hvort hún muni ná
jafn góðum árangri og Pete
Sampras, sem hafði unnið sjö
sinnum í röð áður en hann var
sleginn út á þessu móti. „Minn
fyrsti sigur var þegar ég var tví-
tug. Ef ég hefði verið fjórum
árum fyrr á ferð væri það mögu-
leiki,“ sagði Williams.
Belganum Henin er búið að
ganga vel í ár. Hún komst í undan-
úrslit á Opna franska meistara-
mótinu og nú í úrslit Wimbledon
eftir að hafa sigrað Jennifer
Capriati í undanúrslitum. „Á
morgun verð ég í fimmta sæti á
styrkleikalistanum. Ég var í 100.
sæti í fyrra og í 45. í byrjun árs,“
sagði Henin. Hún tileinkar gott
gengi móður sinni, sem lést úr
krabbameini þegar hún var tólf
ára.
Williams og Henin höfðu einu
sinni áður mæst, á leirvelli í
Berlín í maí. Þá sigraði Henin 6-1,
6-4. Hún sagði uppgjafir Williams
í gær vera erfiðar viðureignar.
„Það er nær ómögulegt að taka á
móti þeim á grasvelli. Þvílíkur
hraði og nákvæmni. Hún á eftir að
sigra á Wimbledon aftur,“ sagði
Henin.
Bandaríkjamennirnir Lisa
Raymond og Rennae Stubbs sigr-
uðu í gær Belgann Kim Clijsters
og Japanann Ai Sugiyama í úr-
slitaviðureign í tvíliðaleik kven-
na. Raymond og Stubbs hafa áður
sigrað á Opna ástralska meistara-
mótinu í fyrra og í Tokyo, Scotts-
dale, Charleston og Eastbourne í
ár.
Þá sigruðu Bandaríkjamenn-
irnir Don Johnson og Jared Pal-
SIGURINN I HÖFN
Venus Williams sendir fingurkoss eftir verðlaunafhendinguna á Wimbledon i gær. Justine
Henin stendur álengdar.
mer Tékklendingana Jiri Novak saman fyrr á árinu og hafa sigrað
og David Rikl í úrslitum tvíliða- í fimm af átta keppnum sem þeir
leiks karla. Þeir byrjuðu að spila hafa tekið þátt í. ■
k mm
Njóttu þess að búa í Klapparhlíð í Mosfellsbæ
í grennd við náttúru, borg og bæ
Til sölu glæsilega hannaöar 2ja til 5 herbergja íbúðir í
Klapparhlíð 18 og 20. Allar íbúðir eru með sérinngangi.
íbúðirnar verða afhendar undir lok ársins.
ibúðir áannariog þriðju hæð ent með lúmgöðat svaMt og ibúðtt fyrstu hatdat etu nwð sér
afnotarétt afhluta lóðar. Allar ibúðir eru imð sérinoqemgi.
Hafðu samband við söludeild (AV í síma 530 4200
Stutt i þjónustu og útivist
Bæöi ieikskóli og grunnskóli eru i göngufæri án þess aö fara þurfi yfir
umférðargötur. Stutt er f miðbæ Mosfeltsbæjar og meö tengingu
Baugshlíðar við Vesturtandsveg næsta vor mun leiðin til Reykjavfkur styttast
verulega. Þá veröa einungis um 10 km i Kringluna.
f friösælli nátturunni munu ibúar geta notið útMstar. Stutt er á golfvöllinn, á
slóöi f Skálafelt og f hesthúsin þaöan sem góðar reiöleiöir eru.
Góður frigangur
Ibuöimar afhendast fúllbúnar meö vönduðum innréttingum án gólfefna en
þóeru baöherbergis- og þvottahúsgólf flísalögð.
Settur verður upp tengikassi fyrir síma loftnet og Ijósleidara og verða
sjónvarps-.sima- og nettengingar mðgulegar úröllum herbergjum.
Húsin eru einangruð og klædd að utan aö hluta til með harðviði og að hluta
með litaðri bárumálmklaeðningu,gluggar verða áiklæddir og þarfriast húsin
þvf iágmarksviðhalds.
Lóð verður fullfrágengin með limgerði á ióðamörkum.
Útsýni 09 gott rými
Við skipulag hverfisins var lögð áhersta á gott rými um húsin og góða stððu
gagnvart sól og útsýni. Stórt opið rými verður f miðju hverfinu þar sem gert
er ráð fyrir að mynda skjólgott útivistarsvaeði.
www.iav.is
Islenskir aðitverktakar hf. Suðurlandsbraut S4. 108 Reykjavtk, stmi 530 4200, fa* S3Q 420$, www.iav.is