Fréttablaðið - 09.07.2001, Síða 16
FRÉTTABLAÐIÐ
BESTI TÖLVULEIKURINN
9. júli 2001 MÁNUDACUR
ODDUR SNÆR MAGNÚSSON
forritari hjá Fiskum og Núlleinum á íslandi
Aftur til fortíðar
„Ég er aðallega að spila gamla arcade
leikinn Space Invader. Þetta er frábær
leikur sem maður getur gleymt sér í
tímunum saman. Einfaldur en góður." ■
HÁSKÓLABÍÓ
MMAtiá :>
rrrnTTmxm i rm 1i rinimumi inimn o-^-o
ncXo
ALFABAKKA 8, SIMI 587 8900
www.samfilm.is
EVOLUTION
Sýnd kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.15 virlio
jPEARL HARBOR kl. 6, 8 og 93011235I
[head över heels kl. 4,6,8 og 10 liíiS Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 vit 249
[THE MUMMYRElfjRNS kl. 3.45, 5.30, ogSjgSS ÍVALENTINE kl. :o..’o 2is
SPOT ki. 4ogelSS NYl SriLLINN KEISARANS (ísttai) kl. 3.45 |g|5
BANDARÍSKI LISTINN
A DEVIL'S NICHT D-12 f?PB
Q BREAK THE CYCLE Staind T
A TAKE OFF YOUR PANTS AND JACKET ▼ Blink 182
A SURVIVOR Destinýs Child T
0 M0ULIN ROUCE Ýmsir T
0 LUTHER VANDROSS Luther Vandross USÞ
0 RETURN OF DRAGON Sisqo
0 FREE CITY St. Lunatics T
0 SHANGRI-LA DEE DA Stone Temple Pilots
© FROM CHAOS 311 Ujji
Vinsælustu tölvuleikirnir:
Simsleikirnir
alltaf vinsælir
tölvuleikir Vinsælasti PC-leikur
landsins um þessar mundir, sam-
kvæmt Skífunni, er hinn frábæri
leikur Emperor : Battle for Dune.
Þó nokkrir „gamlir leikir" koma
aftur inn á listann og er ljóst að
Sims leikirnir njóta alltaf mikilla
vinsælda.
Emperor: Battle for Dune er
herkænsku leikur af bestu gerð
sem gefur óteljandi möguleika.
Tilgangur leiksins er að verða
keisari og heimsvaldur. Leik-
menn getur valið milli þriggja
mismunandi fylkinga og fimm
mismunandi undirfylkinga. Meó
þeim skipuleggur þú leið þína á
toppinn sem liggur í gegnum 5
hættulega heima. Bæði er hægt
að spila leikinn einn eða með öðr-
ura, jafnvel í gegnum internetið.
I þriðja sæti listann er Qunic
tölvutónlistarforritið. Þetta er
enn ein viðbótin við þá flóru
tölvutónlistarforrita sem hafa
skotið upp kollinum að undan-
förnu. Forritið gefur ágætis
möguleika og er t.d. hægt að lesta
(upload/download) lögum inná
gagnagrunn á www.qunic.com,
þar sem notendur forritsins geta
skipst á lögum. Á heimasíðu Qun-
ic er einnig hægt að fá prufuút-
gáfu af forritinu og hægt að lesta
nýjum viðbótum. B
FRÉTTIR AF FÓLKI
Búið er að ákveða að byggja
gosbrunn á bökkum
Serpentine vatns í Hyde Park í
London tii minningar um Diönu
prinsessu. „Hann
verður til staðar
fyrir alla sem
vilja minnast
Díönu á hljóðlátan
hátt,“ sagði bres-
ki menningarráð-
herran Tessa
Jowell. Hönnun
gosbrunnsins
verður valin í samkeppni, sem er
opin arkitektum, listamönnum,
umhverfissérfræðingum og verk-
fræðingum. Hann verður byggð-
ur fyrir opinbert fé og stefnt er
að því að framkvæmdum verði
lokið eftir tvö ár. Díana prinsessa
hefði orðið fertug 1. júlí.
Hollenska þingið samþykkti í
síðustu viku hjónaband hins
34 ára krónprins Willem-Alex-
ander og unnustu
hans, Maxima
Zorreguieta.
Ráðahagurinn er
umdeildur þar
sem faðir Zor-
reguieta var land-
búnaðarráðherra
Argentínu í ein-
ræðistíð Jorge
Videla forseta. Willem-Alexander
gerði sambandið opinbert fyrir
tveimur árum. Brúðkaupið mun
fara fram 2. febrúar 2002.
Söngkonan úr TLC, Lisa „Left
Eye“ Lopes, gefur út breið-
skífu á sínum eigin vegum í
næsta mánuði. Lopes er búin að
vera lengi með plötuna
Supernova í bígerð en vinkonur
hennar úr TLC hjálpa til á henni.
Hún kemur út 14. ágúst. TLC eru
á fullu í hljóðveri þessa stundina
að klára sína fjórðu breiðskífu,
sem á að koma út seinna á árinu.
Hljómsveitin lýsti sig gjaldþrota
fyrir nokkrum árum en rétti úr
kútnum með síðustu plötu.
Skaðabótakröfu bandaríska
leikarans Dustin Hoffman á
hendur tímaritinu Los Angeles
hefur verið dæmd ógild.
Hoffman heimtaði 3 milljónir
dollara af tímaritinu þegar það
birti mynd af honum úr myndinni
Tootsie, sem Dorothy Michaels.
NABBI f
Tímaritið var hinsvegar búið að
skeyta glænýjum tískufötum á
hann í tölvu. Aðrar frægar per-
sónur kvikmyndasögunnar fengu
svipaða meðferð, úr Gone with
the Wind, North by Northwest,
Saturday Night Fever og The
Seven Year Itch. Hoffman sagði
að ef hann léki í auglýsingum, og
hann myndi aldrei leika í fata-
auglýsingu,
fengi hann væna
summu og því
skuldaði tímaritið
honum laun.
Hann fékk til-
nefningu til Ósk-
ars fyrir hlut-
verkið árið 1983.
Lægra dómstig dæmdi honum í
vil 1999 en tímaritið áfrýjaði. Þá
var sagt að fyrsta grein stjórnar-
skrárinnar leyfði tímaritinu ekki
að koma skoðunum sínum á fram-
færi á kostnað ferils Hoffman.
Nú komust þrír dómarar að þeir-
ri niðurstöðu að stjórnarskráin
verndaði tímaritið þar sem um-
fjöllunin var ekki auglýsing.
Hoffman getur áfrýjað.
Franskt raunveruleikasj ónvarp:
Lokuð inni í 70 daga
sjónvarp Það var glatt á hjalla í
París á föstudag. Fjöldi aðdá-
enda frönsku útgáfu raunveru-
leikasjónvarpsþáttarins Stóra
bróður fögnuðu við Sigurbogann
og stöóvuðu alla umferð í leið-
inni. Dansarinn Loana og félags-
fræðineminn Cristophe voru
þáttakendur í Loft Story, þar sem
hópur ungs fólks er lokaður af í
húsi með fjöldan allan af mynda-
vélum. Milljónir Frakka horfðu á
þáttinn og kusu parið sem tvo
síðustu þáttakendurna eftir að
hafa rekið níu aðra burt.
Fjórir síðustu keppendurnir
voru lokaðir af í 70 daga áður en
Loana og Cristophe urðu ein eft-
ir á fimmtudaginn. Þeim var
skutlað eftir sjónvarpsþáttinn á
næturklúbb rétt hjá Sigurbogan-
um. Hundruð aðdáenda þustu á
götur út og héldu veislu sem
svipaði til þess þegar Frakkar
únnu heimsmeistaratitilinn í
knattspyrnu fyrir þremur árum.
„Ég er alvég ringlaður. Ég
mun ekki jafna mig auðveldlega
en þetta er frábært," sagði
Cristophe og átti þar við um-
skiptin frá því að vera innilokað-
ur í mánuði og umvafinn aðdá-
endum.
Parið verður nú sent í síðustu
þrautina. Þau þurfa að eyða 45
dögum saman í húsi troðnu af
myndavélum í Suður-Frakklandi.
Nú mega þau hinsvegar bjóða
gestum að koma.
Mikil umræða hefur verið í
Frakklandi, sem stærir sig jafn-
an af blómlegu menningarlífi,
um „ruslsjónvarp" eftir vinsæld-
ir Loft Story. Sjónvarpsstöðin
M6, sem er næst stærsta stöðin í
Frakklandi sem gengur á auglýs-
ingum, er búin að græða gífur-
lega á þættinum. Stærsta auglýs-
ingastöðin, TFl, er með sína eig-
in útgáfu af raunveruleikasjón-
varpsþætti í bígerð, franskan
Survivor, sem verður sýndur í
haust. B
SKRfTIN skipti
Aðeins hálftima eftir að hafa verið inni-
lokuð í litlu húsi voru Loana og Cristophe
komin út á götu með fjölda áhorfenda
í kringum sig.