Fréttablaðið - 09.07.2001, Síða 17
MÁNUPAGUR 9. júlí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
17
cceiN
PEARL HARBOR kl.5ogB.20||S5
Imemento kl. 8 og io.is[|TH|
IPOLEMON 3 (rsLtal) Idellffll
KRINGLUl, m
afiiffliiimmmmm.mnmnintTiiÆ
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 VIT 249
iDR. DOOLITTLE 2 kl. 4, 6, 8 og lojjTKj
iPEARL HARBOUR kl. 6 og 9.30[ÍTK|
jSPOT HL4Ím
EGGJANDI
Mannkvendin nutu s(n vel á danspöllunum. Talið er að um 400,000 , manns hafi tekið
þátt (Astargöngunni.
Love Parade í Austurríki:
ÆT-
Astargangan
að festa sig í sessi
GÖTUHÁtIð „Það er hrein bilun
hvað margir tóku þátt í þessu,“
sagði Michael Palliardi, einn af
skipuleggjendum Love Parade
eða Ástargöngunnar svokölluðu í
Vín í Austurríki nú um helgina.
„Við bjuggumst við 300,000
manns en gera má ráð fyrir að
fjöldinn hafi slagað uppí 400,000.“
Lögreglan átti erfitt með að halda
tölu á fjöldanum. „Það er erfitt
þegar það koma svo margir inní
gönguna,“ sagði talsmaður lög-
reglunnar.
Rúmlega 25 sviðsbílar, með
plötusnúðum og hljómsveitum,
keyrðu um borgina og trylltu
sveitann lýðinn sem hlykkjaðist
um borgina eins og ormur. Að
venju mættu þátttakendur skraut-
lega klæddir til leiks, sumir í
blómabikíní en aðrir skreyttir lík-
amsmálningu og glimmeri.
Fjögur hundruð lögreglumenn,
14 læknar, 300 sjúkraliðar og 55
sjúkrabílar fylgdu göngunni en
allt fór vel fram. Nokkrir þurftu
að leita aðstoðar vegna hitans,
sem komst í 32 gráður. Lögreglan
fékk um 50 kvartanir vegna há-
vaða en búðareigendur voru him-
inlifandi með daginn enda seldust
drykkjarvörur eins og heitar
lummur. „Ég sel ekki svona mikið
af drykkjarvörum á heilum mán-
uði,“ sagði einn búðareigenda.
Ástargangan er að festa sig í
sessi víðsvegar í höfuðborgum
Evrópu og hyggjast skipuleggj-
endur göngunnar í Berlín, sem fer
fram 21. júlí, halda eina slíka í
Moskvu í september. ■
UNDIR GEISLANUM
Klassískt
undrabarn poppar
iðlusnillingurinn Vanessa-
Mae á sama afmælisdag og
yfirfiðlusnilli allra tíma, Pagan-
ini, en er 196 árum yngri, fædd
27.10.1978 í Singapore, kínversk
í móðurætt, tælensk í föður-,
alin upp í London; lærði á píanó
þriggja ára, fiðlu fimm, spilaði
með Fílharmóníusveit Lundúna
10 ára og inn á fyrstu plötuna 12
ára. 1992 fékk hún rafmagns-
fiðlu, fór að poppa og hafa síðan
komið með henni bæði klassísk-
ar plötur og poppaðar. Af síðar-
nefndu gerðinni er nýlega kom-
in út Subject to change. Á henni
| semur Vanessa flest með Youth
upptökustjóra (úr Killing Joke
er spilaði og bjó hér 1982). Út-
koman er sérkennileg blanda af
teknói, Mike Oldfield, heimstón-
. list, gyðingatónlist, suðrænni
VANESSA-MAE:_______Subject to change
sveiflu, Madonnu-takti, poppi og
fyrsta lagið eins og jólalag,
blanda af Litla trommuleikaran-
um og Heims um ból. Sumum
verður kannski bumbult af til-
hugsun um hvernig þetta hljóm-
ar, en það verkar skemmtilega á
mig, snilldarlegt músakk, gleðj-
andi á allt frá skúringum og upp
í rúm.
Andrea J.
EVOLUTION
Sýnd kl. 4, 6. 8 og 10.10
|tomb RAIDER kl. 4, 6, 8og lO.loj
[ÖR. bÖÖLltlÉ 2 kl4, 6. 8 og 101
I VOIIJTION
Sýnd kl. 6, 8 og 10
|ONE NIGHT AT McCOOLS kL6,8o^íÖI
1EGNBOGINIINI
HVERFISGÖTU SÍMI 551 9000
www.skifan.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10
jDR. DOOLITLE 2 kl. 6, 8, og loj
jSPYKIDS kl. 6, 8 og íoj
[about adám kl. 6, 8, og 10 j
Otrúlea tilboð
Leksand bord + 6 stólar + skenkur
hussösn
Bæjarunu \ • 201 Kopavogur
Sfmt 554 4S44 •
Bikiní tískan 2002:
Fögur fljóð
í Brasilíu
tíska Þótt senn líði að lokum
sumars á íslandi eru enn heitir
og sólríkir dagar víða um heim. í
Brasilíu var haldin tískusýning
fyrir stuttu þar sem sýnd var
nýjasta bikiní tískan fyrir árið
2002. Þó nokkrir af frægustu
hönnuðum heims tóku þátt í sýn-
ingunni sem haldin var í Sao
Paulo, þar á meðal Rosa Cha, Cia
Maritma. Frægustu fyrirsætur
heims tóku að sjálfsögðu einnig
þátt í sýningunni en sú sem vakti
mesta lukku var hin íðilfagra
heimamær Gisele Bundchen.
Hún er hæst launaðasta fyrir-
sæta heims og kærasta leikarans
Leonardo Di Caprio. ■